Allra augu ættu að vera á genginu

Hvað má krónan styrkjast mikið?

ferðamenn
Auglýsing

Flestir hag­vísar snúa í rétta átt. Atvinnu­leysi er lítið sem ekk­ert, eða um þrjú pró­sent, hag­vöxtur er á milli fjögur og fimm pró­sent á ári og vöru- og við­skipta­jöfn­uð­ur, sam­an­lagð­ur, er jákvæður svo um mun­ar.

Vöru­skipta­jöfn­uður er reyndar við­var­andi nei­kvæð­ur, um 12,7 millj­arða í ágúst sam­kvæmt Hag­stofu Íslands, en mik­ill upp­gangur í ferða­þjón­ust­unni heldur stöðu mála réttu megin við strik­ið. Þannig var ­þjón­ustu­jöfn­uður jákvæður um 202 millj­arða í fyrra, og 62 millj­arða sé ein­ung­is litið til ann­arsárs­fjórð­ungs á þessu ári.

Mikið inn­streymi

Gjald­eyr­is­inn­streymi frá ferða­mönnum verður meira á þessu ári, en spáð hafði verið fyrir árið. Búist er við að það verði meira en 430 millj­arðar á þessu ári, en náði yfir 500 millj­arða á því næsta, sem ger­ir þennan vax­andi atvinnu­veg lang­sam­lega stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­veg lands­ins.

Auglýsing

Gengi krón­unnar hefur styrkst um 10,55 pró­sent gagn­vart ­evr­unni á einu ári, og er gjald­eyr­is­inn­streymið frá ferða­mönn­um, inn­an­ fjár­magns­hafta, þar ríkur þátt­ur. Evran kostar nú 128 krónur en var fyrir rúmu ári á ríf­lega 150 krón­ur. Banda­ríkja­dalur er kom­inn niður fyrir 115 krónur og pundið kostar nú 148 krón­ur, eftir hálf­gert verð­hrun í kjöl­far Brex­it­kosn­ing­ar­innar í sum­ar. Fyrir ári síðan kost­aði pundið um 205 krón­ur.

Hvað ger­ist?

Styrk­ing krón­unnar er lík­leg til að halda áfram, ef spár um vöxt­inn í ferða­þjón­ust­unni ræt­ast. Mun meira gjald­eyr­is­inn­streymi til lands­ins heldur en frá því, getur leitt til mik­illar styrk­ingar á geng­inu á skömmu tíma. Það leiðir síðan til þess að verð­lag hér á landi, mælt í erlendri mynt, hækkar hratt. Auk þess sem úflutn­ings­fyr­ir­tæki almennt fá minna fyrir sinn snúð. 

Stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, Icelandair Group, hefur fallið nokkuð í mark­aðsvirði upp á síðkast­ið, en geng­is­styrk­ingin hefur mikil áhrif á arð­semi fyr­ir­tæk­is­ins þar sem tekjur eru að stærstu leyti erlendis frá. Í maí á þessu ári var gengi bréf félags­ins tæp­lega 36, en eftir 1,26 pró­sent fall í dag, er það 25,3. Lækk­unin á mark­aðsvirði á síð­ustu fimm mán­uðum nemur meira en 40 millj­örðum króna.

Í ljósi þess hve vaxt­ar­skeiðið í ferða­þjónst­unni er nýtil­komið er erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif hækk­andi verð mun hafa á áhuga ­ferða­manna á land­inu. Í versta falli getur hann minnkað hratt, með til­heyr­and­i erf­ið­leikum fyrir fyr­ir­tæki í grein­inni og íslenskt þjóð­ar­bú.

Eins og sést á þessari mynd, sem fengin er af vef Keldunnar, þá hefur gengi krónunnar styrkst mikið að undanförnu gagnvart helstu viðskiptamyntum. Að jeninu undanskildu.

Allra augu í hag­stjórn­inni ættu því að vera á geng­inu á næstu miss­erum, og hefur pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, í grein­ar­gerð til­ ­rík­is­stjórn­ar, sér­stak­lega vikið að því að geng­is­þróun geti haft mikið um það að segja hvernig staða mála mun þró­ast í íslenska hag­kerf­inu á næstu miss­er­um.

Eins og oft í Íslands­sög­unni þá geta snöggar geng­is­sveifl­ur, ým­ist til styrk­ingar eða veik­ing­ar, breytt stöð­unni hratt til hins betra eða verra. Verð­bólga hefur hald­ist niðri að und­an­förnu og mælist nú 0,9 pró­sent. Það er ekki síst að þakka hraðri styrk­ingu krón­unnar gagn­var helst­u við­skipta­mynt­um, en einnig mik­ill verð­lækkun á hrá­vörum, ekki síst olíu, sem hefur leitt til lægra verð­lags á inn­fluttum vör­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None