Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands hefur nú birt tilnefningar sínar til verðlaunanna sem afhent verða á laugardaginn eftir viku, þann 4. mars, og hlýtur Kjarninn eina tilnefningu að þessu sinni.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er tilnefndur í flokknum rannsóknarblaðamennska ársins fyrir umfjöllun um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegu samhengi.
Samkvæmt reglugerð um verðlaunin skal dómnefnd birta þrjár tilnefningar í hverjum af fjórum flokkum verðlaunanna. Tilnefningar dómnefndar eru þessar:
Viðtal ársins
Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV
Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.
Helgi Seljan, Kastljósi RÚV
Fyrir viðtal við hjónin Sigrúnu Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni
Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.
Rannsóknarblaðamennska ársins
Hörður Ægisson, DV
Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag.
Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV
Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.
Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum
Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði.
Umfjöllun ársins
Guðrún Hálfdánardóttir, Mbl.is
Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2
Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.
Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu
Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.
Blaðamannaverðlaun ársins
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV
Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.
Jóhannes Kr. Kristjánsson, Reykjavík Media
Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum.
Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu
Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.