Þórður Snær tilnefndur til Blaðamannaverðlauna

Blaðamannaverðlaun vegna ársins 2016 verða afhent 4. mars næstkomandi.

blaðamannverðlaun
Auglýsing

Dóm­nefnd Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur nú birt til­nefn­ingar sínar til verð­laun­anna sem afhent verða á laug­ar­dag­inn eftir viku, þann 4. mars, og hlýtur Kjarn­inn eina til­nefn­ingu að þessu sinn­i. 



Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, er til­nefndur í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins fyrir umfjöllun um skipt­ingu auðs á Íslandi og mis­skipt­ingu gæða þrátt fyrir lít­inn launa­mun í alþjóð­legu sam­hengi.

Sam­kvæmt reglu­gerð um verð­launin skal dóm­nefnd birta þrjár til­nefn­ingar í hverjum af fjórum flokkum verð­laun­anna. Til­nefn­ingar dóm­nefndar eru þess­ar:

Við­tal árs­ins

Auður Ösp Guð­munds­dótt­ir, DV

Fyrir við­tal við Mar­gréti Fenton um örlög dóttur henn­ar, Söndru Sig­rún­ar, sem afplánar nú 37 ára fang­elsi fyrir vopnuð rán í Banda­ríkj­un­um.

Helgi Selj­an, Kast­ljósi RÚV

Fyrir við­tal við hjónin Sig­rúnu Eyrúnu Frið­riks­dóttur og Karl Olgeirs­son um barns­missi sem þau urðu fyrir vegna mis­taka í fæð­ingu á Land­spít­al­an­um.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dótt­ir, Stund­inni

Fyrir við­tal við Berg­lindi Ósk Guð­munds­dóttur sem segir sögu systur sinn­ar, Krist­ínar Gerð­ar, sem svipti sig lífi eftir ára­langa bar­áttu við eit­ur­lyfjafíkn og afleið­ingar mis­notk­un­ar.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins

Hörður Ægis­son, DV

Fyrir umfjöllun um millj­arða bón­us­greiðslur slita­stjórna Kaup­þings og ALMC sem greiddar voru í kjöl­far nauða­samn­inga og samn­inga um stöð­ug­leika­fram­lag. 

Auglýsing

Tryggvi Aðal­björns­son, RÚV

Fyrir umfjöllun um brot Brú­neggja ehf. gegn dýra­vernd og svik við neyt­endur og mátt­leysi eft­ir­lits­stofn­ana til að takast á við brot­in.

Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum

Fyrir frétta­skýr­ingar um skipt­ingu auðs á Íslandi og mis­skipt­ingu gæða þrátt fyrir lít­inn launa­mun í alþjóð­legum sam­an­burði.

Umfjöllun árs­ins

Guð­rún Hálf­dán­ar­dótt­ir, Mbl.is

Fyrir frétta­skýr­ingar um Sýr­land, vax­andi þjóð­ern­is­hyggju í tengslum við flótta­menn þaðan og lít­inn áhuga ráða­manna í Evr­ópu fyrir að taka á móti þeim.

Sig­rún Ósk Krist­jáns­dótt­ir, Stöð 2

Fyrir þátta­röð­ina Leitin að upp­runanum sem segir sögu þriggja ætt­leiddra kvenna og árang­urs­ríka eft­ir­grennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðs­son, Frétta­blað­inu

Fyrir frétta­röð um nátt­úruperluna Mývatn, þar sem mengun er marg­falt yfir við­miðum Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­inn­ar, lík­ast til af manna­völd­um.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins

Jóhanna Vig­dís Hjalta­dótt­ir, RÚV

Fyrir skil­merki­lega umfjöllun um íslensk stjórn­mál og vand­aðar frétta­skýr­ingar af störfum Alþing­is, ekki síst á tímum póli­tísks óróa.

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son,  Reykja­vík Media

Fyrir ítar­legar rann­sóknir á þeim hluta Panama­skjal­anna sem vörð­uðu íslenska hags­muni og  umfjöll­un, í sam­starfi við aðra miðla, um mikil við­skipti í skatta­skjól­um.

Ragnar Axels­son og Orri Páll Orm­ars­son,  Morg­un­blað­inu

Fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um áhrif lofts­lags­breyt­inga á Norð­ur­slóðum og sér­stak­lega hvernig þær breyta líf­inu á túndrum Síber­íu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None