Stórir hlutabréfasjóðir í niðursveiflu

Stærstu eignastýringarfyrirtækjum landsins hefur ekki gengið vel að ávaxta eignir í sjóðum á þeirra vegum að undanförnu. Þrátt fyrir mikinn hagvöxt og efnahagslegan uppgang, þá hafa verið sveiflukenndir tímar á hlutabréfamarkaði.

peningar
Auglýsing

Þrír af fjórum stærstu hluta­bréfa­sjóðum lands­ins, sem skráðir eru sem íslenskir hluta­bréfa­sjóðir á vef Keld­unnar, hafa ekki átt góðu gengi að fagna á mark­aði und­an­farna tólf mán­uði. Stærsti sjóð­ur­inn, Stefnir ÍS 15, er með nei­kvæða ávöxtun upp á tæp­lega 16 pró­sent en stærð þess sjóðs er 37,8 millj­arðar króna. 

Versta ávöxt­unin af öllum sjóð­unum er hjá tveimur hluta­bréfa­sjóðum Lands­bréfa. Nei­kvæð ávöxtun Lands­bréfa - Úrvals­bréfa er 16,8 pró­sent og hjá Lands­bréfum - Önd­veg­is­bréf, er hún 17,3 pró­sent. 

Sam­an­lögð stærð þess­ara tveggja sjóða hjá Lands­bréfum nemur um 22,7 millj­örðum króna. 

Auglýsing

Svona er eignasamsetning Stefnis ÍS 15, eins og hún er uppgefin á netinu.Mikil lækkun á mark­aðsvirði Icelandair hefur komið illa við sjóð Stefnis en eins og staða mála er nú þá er um átján pró­sent af eignum sjóðs­ins í bréfum ferða­þjón­usturis­ans. Stærsta ein­staka eign sjóðs­ins eru hluta­bréf í Mar­el, sem nú eru um 22 pró­sent af eigna­safn­in­u. 



Mark­aðsvirði Icelandair er nú 69 millj­arðar en um mitt ár í fyrra var það 189 millj­arð­ar.

Hjá báðum sjóð­unum á vegum Lands­bréfa eru skráð hluta­bréf á íslenskum mark­aði lang­sam­lega stærsti hluti eigna­safns­ins, á bil­inu 75 til 89 pró­sent. Hjá Lands­bréfum - Úrvals­bréf eru um 21 pró­sent eigna sjóðs­ins í bréfum Icelandair en hjá Lands­bréf - Önd­veg­is­bréf er um 22 pró­sent eigna í bréfum Icelanda­ir.

Besta ávöxt­unin hjá íslenskum hluta­bréfa­sjóð­um, sam­kvæmt vef Keld­unn­ar, er hjá Gamma Equity Fund, en ávöxtun þess sjóðs er 6,8 pró­sent á und­an­förnu ári. 

Landsbréf - Úrvalsbréf, skiptir eignasafni sínu með þessum hætti. Mynd: Vefur Landsbréfa.

Aðeins einn annar hluta­bréfa­sjóður hefur sýnt jákvæða ávöxtun á síð­ustu tólf mán­uðum en það er hluta­bréfa­sjóður Íslenskra verð­bréfa (ÍV) en ávöxtun hans er 3,7 pró­sent. Gamma sjóð­ur­inn er upp á 3,7 millj­arða og sjóður ÍV upp á 1,9 millj­arða. 

Landsbréf - Öndvegisbréf, skipta eignum sínum með þessum hætti. Mynd: Vefur Landsbréfa.

Hér má sjá ávöxtun sjóða sem flokkaðir eru sem íslenskir hlutabréfasjóðir á vef Keldunnar. Mynd: Keldan.Sam­an­lögð stærð þess­ara hluta­bréfa sem finna má á lista Keld­unnar er 85,2 millj­arðar króna. Gengi þeirra á mark­aði skiptir almenn­ing máli, enda er hann óbeinn eig­andi að stórum hluta þeirra fjár­muna sem eru í stýr­ingu sjóð­anna, í gegnum líf­eyr­is­sjóði lands­ins.

Upp­fært 19:43: Hlekkjum á nákvæm­ari skipt­ingu eigna í sjóðum Lands­bréfa, hefur verið komið inn í text­ann, og hann upp­færður í sam­ræmi við það. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None