Vildu að framkvæmdastjóri Kadeco gerði skriflega grein fyrir viðskiptum sínum

Framkvæmdastjóri Kadeco gerði munnlega grein fyrir viðskiptum sínum við kaupanda eigna á Ásbrú á stjórnarfundi í fyrradag. Stjórnin óskaði eftir skriflegum skýringum. Framkvæmdastjórinn á félag með manni sem keypti þrjár fasteignir af Kadeco.

Auglýsing
Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Fram­kvæmda­stjóri Kadeco, Kjartan Þór Eiríks­son, gaf munn­legar skýr­ingar á við­skiptum sínum á Ásbrú og tengslum sínum við kaup­endur eigna sem Kadeco hefur selt á síð­ustu árum á svæð­inu á stjórn­ar­fundi sem fram fór á þriðju­dag. Stjórn félags­ins, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, ákvað í kjöl­farið að óska eftir því að Kjartan geri stjórn­inni skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum á svæð­inu. Þetta segir Sig­urður Kári Krist­jáns­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Kadeco, í sam­tali við Kjarn­ann.

Félög tengd Sverri Sverris­syni keyptu þrjár fast­eignir af Kadeco á und­an­förnum árum á sam­tals 150 millj­ónir króna. Síð­asta eignin sem félög tengd honum keyptu var seld í febr­úar á þessu ári, nokkrum mán­uðum eftir að Kjart­an, fram­kvæmda­stjóri Kadeco, og Sverrir hófu við­skipta­sam­band. Þeir eiga saman félagið Air­port City á Ásbrú sem stundar fast­eigna­við­skipti, þó ekki við Kadeco.

Eftir að stjórn­ar­fund­inum lauk var hald­inn aðal­fundur Kadeco og á honum var kosin ný stjórn. Eng­inn þeirra þriggja sem sat í stjórn var end­ur­kjör­in. Þessi í stað var Georg Brynjars­son, hag­fræð­ingur og stjórn­ar­maður í Við­reisn, kjör­inn stjórn­ar­for­mað­ur. Auk hans komu tveir starfs­menn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins inn í stjórn Kadeco, en félagið heyrir undir það ráðu­neyti. Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stað­festi við Kjarn­ann í gær að til stæði að leggja starf­semi Kadeco niður í núver­andi mynd þar sem upp­runa­legu hlut­verki þess, að selja fast­eignir á Ásbrú á Kefla­vík­ur­flug­velli, væri lok­ið.

Auglýsing

Selt áfram til Bíla­leigu Akur­eyrar

Kjartan fram­kvæmda­stjóri hefur legið undir ámæli eftir að greint var frá því, í vef­miðl­inum Local Suð­ur­nes, að hann ætti helm­ings­hlut í félag­inu Air­port City á Ásbrú. Hinn helm­ing­ur­inn í félag­inu er í eigu fjár­fest­is­ins Sverris Sverr­is­son­ar. Air­port City í nóv­em­ber í fyrra. Ástæða þess að við­skipta­sam­band mann­anna tveggja hefur vakið athygli er sú að Kadeco hefur selt félögum í eigu Sverris fast­eignir í þrí­gang á und­an­förnum árum fyrir sam­tals 150 millj­ónir króna.

Fyrst keypti félagið Þórs­hamar ehf. fast­eign­ina Funa­tröð 3. þann 28. des­em­ber 2015 á 35 millj­ónir króna. Það félag er í eigu Sverris og barna hans. Fast­eigna­mat þeirrar eignar er 27,3 millj­ónir króna. Sú eign hefur verið seld áfram til Höld­ur, eig­anda Bíla­leigu Akur­eyr­ar. Salan var hluti af stærri kaupum fyr­ir­tæk­is­ins á Ásbrú, en alls keypti það hús­næði og lóðir á tæp­lega 17 þús­und fer­metra svæði við Funa­tröð 1-5 í októ­ber 2016.

Næst keypti félagið Sverrir Sverr­is­son ehf. fast­eign­ina Skóg­ar­braut 945 þann 27. apríl 2016 á 55 millj­ónir króna. Fast­eigna­mat þeirrar eignar er 38,5 millj­ónir króna. Síð­ustu við­skipti Kadeco og félags Sverris áttu sér síðan stað í febr­úar 2017 þegar félagið G604 ehf. keypti fast­eign­irnar Grænás­braut 604- 606 á 60 millj­ónir króna. Gild­andi fast­eigna­mat þeirrar eignar er 160 millj­ónir króna, eða 100 millj­ónum króna meira en kaup­verð­ið.

Þarf að gera skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum

Í Frétta­blað­inu fyrr í þess­ari viku sagði Kjartan frá því að hann hefði upp­lýst þáver­andi stjórn­ar­for­mann Kadeco um þessi tengsl í byrjun sum­ars. Sig­urður Kári sagði í sömu frétt að fjár­fest­ingar Air­port City, sem keypti fast­eignir á Ásbrú sem áður voru í eigu Eign­ar­halds­fé­lags­ins AV ehf. (fyrr­ver­andi eig­anda Íslenskra aðal­verk­taka), hafi fyrst komið til umræðu á stjórn­ar­fundi fyrripart maí­mán­að­ar.

Við­skipti Kjart­ans í gegnum Air­port City voru svo tekin aftur fyrir á stjórn­ar­fundi í gær og þar gerði hann munn­lega grein fyrir þeim. Nið­ur­staða fund­ar­ins var sú að  að óskað var eftir því að Kjartan geri stjórn­inni skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum á svæð­inu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar