Borgun sektað vegna ólöglegra bónusgreiðslna

Borgun hefur gert sátt við Fjármálaeftirlitið og greitt sekt vegna bónusgreiðslna sem allt starfsfólk fyrirtækisins fékk í fyrrahaust vegna þess mikla vaxtar og viðgangs sem Borgun hefur gengið í gegnum.

Borgun
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið og Borgun hf. gerðu með sér sam­komu­lag um sátt vegna brots Borg­unar á reglum um kaupauka­kerfi þann 9. júní síð­ast­lið­inn. Sam­kvæmt sátt­inni við­ur­kennir Borgun að hafa brotið gegn regl­unum og lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og að greiða 11,5 millj­ónir króna í sekt. Frá þessu er greint í gagn­sæ­istil­kynn­ingu á heima­síðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar kemur einnig fram að máls­at­vik séu þau að stjórn Borg­unar ákvað þann 13. sept­em­ber 2016 að greiða starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins ein­greiðslu í launa­upp­bót, eða bón­us, umfram föst launa­kjör þeirra. Þeir sem höfðu verið í fullu starfi und­an­farna 12 mán­uði fengu 900 þús­und krónur en þeir sem voru í minna starfs­hlut­falli fengu hlut­fall af þeirri greiðslu. Alls fengu 148 starfs­menn slíka greiðslu og því má ljóst vera að heild­ar­kostn­aður er hið minnsta um 100 millj­ónir króna. Stærsti eig­andi Borg­unar er Íslands­banki með 63,47 pró­sent hlut. Íslands­banki er í 100 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar hafi verið litið til þess að „mark­miðið með því að tak­marka greiðslur til starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram föst starfs­kjör þeirra er að umbun til starfs­manna sé tengd árangri í starfi og sé í sam­ræmi við und­ir­liggj­andi áhættu. Þannig stuðli fjár­mála­fyr­ir­tæki að ábyrgri áhættu­stýr­ingu og sporni gegn óhóf­legri áhættu­töku. Þá tók sekt­ar­fjár­hæðin mið af flokkun lög­gjafans á alvar­leika brots­ins og því að um ein­skipt­is­greiðslu var að ræða sem tók til allra starfs­manna.“

Auglýsing
Í frétta­til­kynn­ingu sem Borgun sendi frá sér í sept­em­ber í fyrra, þar sem greint var frá hinum ólög­mætu bón­us­greiðsl­um, sagði að Borgun vildi með þeim sjá til þess að „starfs­­menn njóti þess vaxtar og við­­gangs sem orðið hefur á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins síð­­­ustu mis­s­eri, sem er ekki síst mik­illi og góðri vinnu starfs­­fólks að þakka.“

Rík­is­bank­inn í mála­rekstri gegn Borgun

Rekstur Borg­unar gekk sann­ar­lega vel á síð­asta ári. Hagn­aður félags­ins var 7,8 millj­arðar króna sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi og hlut­hafar fengu 4,7 millj­arða króna greidda í arð vegna frammi­stöðu félags­ins á árinu 2016. Þar mun­aði mestu um sölu á hlut Borg­unar í Visa Europe í júní 2016 á 6,2, millj­arða króna.

Rekst­ur, og ekki síður eign­ar­hald á Borg­un, hefur verið mikið í umræð­unni á und­an­förnum árum. Sér­stak­lega vegna þess að Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, seldi  31,23 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Borgun á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014, á bak­við luktar dyr til hóps einka­fjár­festa sem hafa ávaxtað pund sitt ævin­týra­lega á ein­ungis tveimur og hálfu ári. Lands­bank­inn hef­ur, sam­kvæmt eigin mati, orðið af rúm­lega sex millj­örðum króna vegna söl­unn­ar.

Rík­is­end­ur­skoðun birti í fyrra­haust svarta skýrslu um eigna­sölu Lands­bank­ans á und­an­förnum árum. Salan á hlut bank­ans í Borgun leikur þar aðal­hlut­verk. Í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar missti Stein­þór Páls­son, sem hafði verið banka­stjóri Lands­bank­ans frá 2010, starf sitt.

Banka­ráð Lands­­­bank­ans til­­kynnti í ágúst 2016 að ákveðið hefði verið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­­­sent eign­­­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014. Þann 30. des­em­ber 2016 sendi Lands­bank­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að bank­inn hefði stefnt Borgun hf., for­­stjóra Borg­unar hf., BPS ehf. og Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun slf. vegna söl­unn­ar. Í til­kynn­ing­unni seg­ir: „Málið er höfðað til við­­ur­­kenn­ingar á skaða­­bóta­­skyldu stefndu. Það er mat bank­ans að hann hafi orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bank­inn fékk ekki upp­­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ.á.m. mög­u­­lega hlut­­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­­ar­­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar