Laun ráðherra og aðstoðarmanna 461 milljón í ár

Kostnaður vegna launa ráðherra og aðstoðarmanna þeirra hefur aukist um 82 prósent á nokkrum árum. Hækkanir Kjararáðs á launum þeirra og fjölgun aðstoðarmanna eru ástæðan. Hækkun á framlögum til stjórnmálaflokka um 127 prósent er í fjárlögum.

Alls eru ellefu ráðherrar í ríkisstjórninni. Hver þeirra má ráða tvo aðstoðarmenn auk þess sem stjórnin má bæta þremur til viðbótar við þann fjölda.
Alls eru ellefu ráðherrar í ríkisstjórninni. Hver þeirra má ráða tvo aðstoðarmenn auk þess sem stjórnin má bæta þremur til viðbótar við þann fjölda.
Auglýsing

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands mun kosta 461 milljón króna á þessu ári. Undir mála­flokk­inn falla laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra. Kostn­aður vegna þessa rekst­urs hefur auk­ist um 208 millj­ónir króna frá árinu 2012. Þegar tekið hefur verið til­lit til verð­bólgu þá nemur hækk­unin samt sem áður um 180 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í fjár­lögum árs­ins 2018, sem sam­þykkt voru skömmu fyrir ára­mót.

Alls eru ell­efu ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands. Hver og einn þeirra má vera með tvo aðstoð­ar­menn auk þess sem heim­ild er til staðar sam­kvæmt ákvörðun rík­is­stjórnar að ráða þrjá til við­bótar ef þörf kref­ur. Einn þeirra er sér­stakur upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar sem starfar innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Auglýsing
Laun bæði ráð­herra og aðstoð­ar­manna hafa hækkað umtals­vert á síð­ustu árum vegna ákvarð­ana Kjara­ráðs. Í nóv­em­ber 2015 hækk­aði Kjara­ráð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­sent. Árið síð­ar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun for­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði.

Aðstoðarmenn ráð­herra fengu líka dug­lega hækkun sum­arið 2016, þegar laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum voru hækkuð um allt að 35 pró­sent. Laun aðstoð­ar­manna mið­ast við laun skrif­stofu­stjór­anna. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru sem stendur 15 tals­ins, að með­töldum upp­lýs­inga full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Enn er svig­rúm til að ráða allt að tíu aðstoð­ar­menn til við­bót­ar.

Fram­lög til stjórn­mála­flokka hækka um 127 pró­sent

Í fjár­lög­unum var til­laga full­trúa sex flokka sem eiga sæti á Alþingi um að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018 úr 286 millj­ónum króna í 648 millj­ónir króna. Fram­lagið eykst því um 362 millj­ónir króna eða um 127 pró­sent.

Full­trú­arnir sex sendu sam­eig­in­legt erindi til fjár­­laga­­nefnd Alþingis 18. des­em­ber síð­­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir við­bót­ar­fram­lag­inu.

Full­trú­arnir sex eru Ásgeir Run­­ólfs­­son, full­­trúi Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, Birna Þór­­ar­ins­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri Við­reisn­­­ar, Björg Eva Erlends­dótt­ir, fram­­kvæmda­­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­­ar­s­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, Svanur Guð­­munds­­son, full­­trúi Mið­­flokks­ins, og Þórður Þór­­ar­ins­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins skrif­uðu sig á erind­ið.

Erindið bar yfir­­­skrift­ina „Nauð­­syn­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­mála­­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­­ar­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­hæð sem stjórn­­­mála­­flokkum sé ætluð á fjár­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­mála­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­mála og sveit­­ar­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­burðar má nefna að dóms­­mála­ráðu­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­kosn­­ing­anna á síð­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­mála­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­magn á við helstu hags­muna­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­menn, Sam­tök iðn­­að­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­mála­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­mála­­flokka og að upp­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Kostnaður vegna reksturs ríkisstjórnar

2012: 253 millj­ónir króna

2013: 338 millj­ónir króna

2014: 280 millj­ónir króna

2015 312 millj­ónir króna

2016 387 millj­ónir króna

2017: 445 millj­ónir króna

2018: 461 millj­ónir króna

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar