Gert ráð fyrir að virði stöðugleikaframlaga sé nú 458 milljarðar

Virði þeirra stöðugleikaframlaga sem íslenska ríkið fékk frá kröfuhöfum föllnu bankanna hefur aukist um fimmtung. Framlag vegna viðskiptabankanna hefur hækkað langmest, eða um 52,2 milljarða króna.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Þegar íslenska ríkið samdi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um þær eignir sem þeir þurftu að skilja eftir til að mega fara með aðrar eignir sínar út úr íslensku hag­kerfi, var áætlað virði þeirra eigna sem ríkið fékk í sinn hlut, svo­kall­aðar stöð­ug­leika­eign­ir, áætlað 384,3 millj­arðar króna.

Virði þess­ara eigna hefur hækkað umtals­vert síðan að þær voru afhent­ar, í byrjun árs 2016 og áætlað er að í lok þessa árs verði það 457,8 millj­arðar króna, sam­kvæmt frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Það þýðir að eign­irnar hafa hækkað um 73,6 millj­arða króna í virði frá því að ríkið fékk þær í hend­ur.

Þar munar lang­mest um hækkun á eignum sem tengj­ast þeim eign­ar­hlutum í við­skipta­bönk­unum Íslands­banka, sem ríkið eign­að­ist að fullu, og Arion banka, en ríkið fékk afhent sér­stakt skulda­bréf upp á 84 millj­arða króna vegna hans auk þess sem gerður var afkomu­skipta­samn­ingur sem met­inn var á 19,5 millj­arða króna. Sam­an­lagt virði fram­laga vegna við­skipta­bank­anna var metið á 288,2 millj­arða króna í byrjun árs 2016 en er nú metð á 340,4 millj­arða króna. Það er hækkun upp á 52,2 millj­arða króna.

Auglýsing

Aðrar fram­seldar eign­ir, fjár­sóps­eignir og laust fé sem var afhent hafa einnig hækkað um sam­tals 20,5 millj­arða króna í virði.

Seldu Lyfju og ætla að slíta Lind­ar­hvoli

Í gær var greint frá því að félagið Lind­­ar­hvoll, sem stofnað var til að ann­­ast umsýslu og sölu stöð­ug­­leika eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröf­u­hafa föllnu bank­anna, hafi lokið hlut­verki sínu og verði slit­ið.

Alls nemur and­virði þeirra stöð­ug­­leika­­eigna sem búið er að inn­­­leysa um 207,5 millj­­örðum króna en frá­­talin eru fram­lög vegna við­­skipta­­bank­anna Arion banka og Íslands­­­banka og aðrar óinn­­leystar eign­­ir.

Lind­­ar­hvoll sam­­þykkti að selja Lyfju hf. til félags­­ins SID ehf., í eigu SIA III slhf., Þara­bakka ehf. og Kasks ehf., á mán­u­dag. SID hafði átt hæsta til­­­boðið í opnu sölu­­ferli fyr­ir­tæk­is­ins. Kaup­­samn­ing­­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um áreið­an­­leika­könnun og sam­­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaup­veðrið hefur ekki verið gefið upp.

Búið að ráð­stafa 204 millj­örðum

Alls hefur rík­is­sjóður ráð­stafað um 204 millj­örðum króna af tekjum vegna stöð­ug­leika­eigna.  Um 130 millj­örðum króna hefur verið ráð­stafað beint til nið­ur­greiðslna á skuldum rík­is­sjóðs, 34 millj­örðum króna hafa farið í að mæta tapi vegna lækk­unar á stofns til sér­staks skatts á fjár­mála­fyr­ir­tæki og um 40 millj­arðar króna hafa farið í að lækka líf­eyr­is­skuld­bind­ingar gagn­vart Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR). Sú ráð­stöfun lækkar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­­­is­­­­sjóðs við B-deild LSR um áður­­­­­greinda upp­­­hæð.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar