Sá þingmaður sem keyrir mest fær 385 þúsund í aksturspeninga á mánuði

Einn þingmaður fékk rúmlega 4,6 milljónir króna endurgreiddar vegna aksturs í fyrra. Hann keyrði vegalengd sem jafngildir því að keyra tæplega 36 sinnum hringinn í kringum landið. Alþingi gefur ekki upp hvaða þingmenn fá hæstu greiðslurnar.

Þegar þingmenn eru ekki í sætum sínum á Alþingi þá eru margir þeirra að keyra um kjördæmi sín. Og sumir í umtalsvert meiri mæli en aðrir.
Þegar þingmenn eru ekki í sætum sínum á Alþingi þá eru margir þeirra að keyra um kjördæmi sín. Og sumir í umtalsvert meiri mæli en aðrir.
Auglýsing

Sá þing­maður sem fékk hæstu árlegu end­ur­greiðsl­una vegna akst­urs­kostn­aðar í fyrra fékk sam­tals rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greidd­ar. Það þýðir að þing­mað­ur­inn fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna keyrslu sinn­ar. Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, um akst­ur­kostnað þing­manna.

Í svörum for­seta er greint frá greiðslum til þeirra tíu þing­manna sem fengu hæstu end­ur­greiðsl­urnar vegna akst­urs á und­an­förnum árum. Nöfn þeirra eru ekki birt né er greint frá því hvaða kjör­dæmi þing­menn­irnir til­heyra, þar sem það er talið fara nærri per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ing­um.

Sam­kvæmt svörum for­seta er einn þing­maður sem skar sig veru­lega úr hvað varðar akstur á eigin bif­reið, og end­ur­greiðslur vegna þeirra, á síð­asta ári. Sá fékk rúm­lega 4,6 millj­ónir króna í end­ur­greiðslu vegna þess að hann keyrði alls 47.644 kíló­metra á árinu 2017.

Auglýsing

Til sam­an­burðar má nefna að Hring­veg­ur­inn, Þjóð­vegur 1, er 1.322 kíló­metr­ar. Umræddur þing­maður keyrði því tæp­lega 36 sinnum hring­inn í kringum landið á síð­asta ári.

Keyrði þriðj­ungi meira en næsti maður

Sá þing­maður sem keyrði næst mest keyrði 35.065 kíló­metra og fékk tæp­lega 3,5 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur frá rík­inu vegna þess. Keyrsla þing­manns­ins í öðru sæti var 33 pró­sent minni en keyrsla þess sem trónir á toppn­um. Alls fengu þeir þing­menn sem kröfð­ust hæstu end­ur­greiðsl­unnar vegna akst­urs 29,2 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur í fyrra.

End­ur­greiðsl­urnar hafa dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum eftir að þing­menn voru sér­stak­lega hvattir til þess að not­ast frekar við bíla­leigu­bíla en að nota eigin bíla við akstur um kjör­dæmið og krefj­ast síðan end­ur­greiðslu. Árið 2013 nam end­ur­greiðsla til þing­manna vegna akst­urs­kostn­aðar 59,8 millj­ónum króna og keyrðir kíló­metrar sem kraf­ist var end­ur­greiðslu fyrir voru alls 529,6 þús­und, eða tæp­lega helm­ingi fleiri en þeir voru í fyrra.

Á árinu 2016 fóru tvær af hverjum þremur krónum sem voru end­­ur­greiddar vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar til þing­­manna Suð­­ur­­kjör­­dæm­­is. Þrátt fyrir margar fyr­ir­­spurn­ir, frá þing­­mönnum og fjöl­mið­l­um, þá hefur Alþingi ætíð neitað að greina frá því hvað hver þing­­maður hefur fengið í akst­­ur­s­greiðsl­­ur.

Allskyns við­bót­ar­greiðslur

Þing­far­ar­kaup alþing­is­manna er 1.101.194 krónur á mán­uði. Til við­bótar fá vara­for­setar Alþingis 15 pró­sent álag á þing­far­ar­kaup, for­menn fasta­nefnda fá sama álag ofan á sín laun, vara­for­menn nefnd­anna fá tíu pró­sent og aðrir vara­for­menn fimm pró­sent. Þeir þing­menn sem eru for­menn stjórn­ar­flokka,en eru ekki ráð­herr­ar, fá greitt 50 pró­sent álag á þing­far­ar­kaup.

Auk þess fá þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma greitt 134.041 krónur í hús­næð­is- og dval­ar­kostnað ef þeir halda ekki annað heim­ili í höf­uð­borg­inni. Þá fá þeir ein­ungis 53.616 krónur í við­bót. Allir þing­menn fá greiddar 30 þús­und krónur á mán­uði í fastan ferða­kostnað og 40 þús­und krónur í svo­kall­aðan starfs­kostn­að. Því eru laun þing­manna hærri, og í mörgum til­fellum mun hærri, en þing­fara­kaup segir til um.

Skrá sjálfir akst­ur­inn

Akstur ein­stakra þing­manna innan lands fer svo eftir mjög skýrum regl­um. Litið er svo á að akst­ur­inn teng­ist starfi alþing­is­manna fyrir umbjóð­end­ur, varði sam­band þeirra við kjós­endur og sé því þeirra mál eins og ýmis­legur annar kostn­aður við starf þing­manna.

Þing­menn­irnir sjálfir skrá hversu mikið þeir keyra vegna starfa sinna og fá svo kostn­að­inn vegna akst­urs­ins end­ur­greidd­an. Sá sem keyrði mest í fyrra fékk, líkt og áður sagði, um 385 þús­und krónur end­ur­greiddar á mán­uði vegna akst­urs í starfi.

Sá sem keyrði næst mest fékk um 288 þús­und krónur í end­ur­greiðslur á mán­uði að með­al­tali og sá sem situr í þriðja sæti um 257 þús­und krónur á mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar