Fá 187föld lágmarkslaun fyrir þrotavinnu

Þeir sem vinna við að sjá um eftirstandandi eignir föllnu bankanna Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands þiggja ofurlaun fyrir. Átta slíkir starfsmenn eru á meðal hæstu skattgreiðenda á landinu og þeir sem eru með hæstu launin fá 56 milljónir á mánuði.

Ríkir
Auglýsing

Banka­hrunið og eft­ir­málar þess eru einn arð­bær­asti atvinnu­vegur á Íslandi í dag. Á meðal þeirra 40 ein­stak­linga sem greiddu hæstu skatt­anna á Íslandi í fyrra voru átta ein­stak­lingar sem vinna fyrir félög utan um eft­ir­stand­andi eignir hinna föllnu Glitn­is, Lands­banka Íslands og Kaup­þings.

Þeir sem eru með hæstu mán­að­ar­legu tekj­urnar að með­al­tali voru með 56 millj­ónir króna í laun á hverjum mán­uði í fyrra. Það þýðir að mán­að­ar­laun þeirra voru 187­föld lág­marks­laun, sem eru 300 þús­und krónur á Íslandi í dag.

Allir föllnu bank­arnir luku nauða­samn­ingum í lok árs 2015 og breytt­ust þá í eign­ar­halds­fé­lög utan um eft­ir­stand­andi eignir þeirra. Hlut­verk starfs­mann­anna er því fyrst og síð­ast að selja eign­ir. Og í kjöl­farið leggja félögin nið­ur.

Auglýsing

Allar upp­lýs­ingar hér að neðan eru unnar upp úr tekju­blöðum Frjálsrar versl­unar og DV.

Glitnir

Í stjórn Glitnis HoldCo sitja þrír menn, þeir Tom Grön­dahl og Steen Pars­holt, sem báðir voru með 56 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun í fyrra, og Mich­ael Wheel­er, sem er skráður með um 5,2 millj­ónir króna á mán­uði. Grön­dahl og Pars­holt voru sam­kvæmt þessu með 672 millj­ónir króna í árs­tekjur hvor.

Wheeler er hins vegar skráður sem einn þeirra sem greiddu hæstu skatt­anna á Íslandi í fyrra. Þar situr hann í átt­unda sæti eftir að hafa greitt 259,1 milljón króna í skatta í fyrra vegna tekna sem hann hafði á Íslandi. Aug­ljóst er því að Wheeler hafði meira upp úr krafs­inu á síð­asta ári en þær tekjur sem hann er skráður með í Tekju­blaði Frjálsrar Versl­un­ar.

Fram­kvæmda­stjóri Glitnis Holdco er Ingólfur Hauks­son. Hann er heldur ekki á flæðiskeri staddur með 19,2 millj­ónir króna á mán­uði. Ragnar Björg­vins­son, yfir­lög­fræð­ingur Glitnis HoldCo, er á svip­uðum slóðum með 16,1 milljón króna á mán­uði. Snorri Arnar Við­ars­son, for­stöðu­maður eigna­stýrt­ingar Glitn­is­HoldCo, var með 16,8 millj­ónir krónur á mán­uði.

LBI

Hjá LBI ehf., gamla Lands­bank­an­um, sitja þrír menn í stjórn. Þeir eru Ric­hard Katz stjórn­ar­for­mað­ur, sem var með 32,7 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra, Kol­beinn Árna­son, sem var með 6,7 millj­ónir króna á mán­uði, og Christ­ian Dig­emose, en launa­kjör hans eru til umfjöll­unar í tekju­blöð­un­um. Fram­kvæmda­stjóri LBI er Ársæll Haf­steins­son, sem var með 17,9 millj­ónir króna á mán­uði. Ársæll hefur unnið sleitu­laust fyrir gamla Lands­bank­ann frá því að hann var skip­aður í skila­nefnd bank­ans. Þann 30 júlí 2009 óskaði Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, sem bar ábyrgð á skila­nefnd­inni og skip­aði í hana, eftir því að Ársæll léti að störfum fyrir fyrr skila­nefnd­ina þar sem „verk­efnum sem krefð­ust sér­fræði­þekk­ing­ar“ hans væri lok­ið. Skila­nefndin réð þá Ársæl sem ráð­gjafa og gerði hann síðar að fram­kvæmda­stjóra.

Hjá LBI starfar líka Jakob Bjarna­son. Hann var með 6,4 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra.

Kaup­þing

Þriðja félagið sem er starf­andi og var stofnað utan um eft­ir­stand­andi eignir fall­ins banka er Kaup­þing ehf., sem í dag er að mestu upp­tekið við að selja stóran hlut í Arion banka. Í stjórn Kaup­þings eru Allan Jef­frey Carr, Paul Cop­ley, Óttar Páls­son, Bene­dikt Gísla­son og Piergi­orgio Lo Greco. Copley er einnig fram­kvæmda­stjóri Kaup­þing.

Þrír, hinir íslensku, eru nefndir í tekju­blöð­un­um. Einn þeirra er Bene­dikt Gísla­son, sem starf­aði um tíma sem aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og var síðar efna­hags­ráð­gjafi hans. Þá var Bene­dikt einn þeirra sér­fræð­inga sem var skip­aður í fram­kvæmda­hóp við losun fjár­magns­hafta á árinu 2014.  Vinnu þess hóps lauk með því að sam­komu­lag var gert við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­um. Nokkrum mán­uðum eftir að vinnu Bene­dikts fyrir fram­kvæmda­hóp­inn lauk var hann ráð­inn í ráð­gjafa­starf hjá Kaup­þingi og sett­ist í stjórn bank­ans. Bene­dikt er skráður með 3,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun sam­kvæmt tekju­blaði DV.

Óttar Páls­son, lög­maður hjá Logos, situr einnig í stjórn Kaup­þings. Hann er skráður með tæp­lega 3,8 millj­ónir króna í laun á mán­uði en draga má þá ályktun að þau laun séu bæði fyrir lög­manns­störf og störf hans fyrir Kaup­þing.

Tveir starfs­menn Kaup­þings voru með það há laun á árinu 2017 að þau kom­ast á blað hjá Frjálsri versl­un. Þau eru Arn­aldur Jón Gunn­ars­son og Anna Sig­ríður Arn­ar­dótt­ir, sem bæði eru lög­fræð­ingar hjá félag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar