Íbúðalánasjóður vill endurskilgreina viðmið um hvað sé hæfilegt leiguverð

Þau leigufélög sem eru með lán frá Íbúðalánasjóði eru að rukka leigu í samræmi við markaðsleigu eða aðeins undir henni. Íbúðalánasjóður segir markaðsleigu hins vegar ekki vera réttmætt viðmið og vill endurskilgreina hvað sé hæfilegt leiguverð.

Íbúðalánasjóður - lógó1.jpg
Auglýsing

Húsa­leiga þeirra 20 leigu­fé­laga sem eru með lán frá Íbúða­lána­sjóði, og voru krafin um upp­lýs­ingar um verð­lagn­ingu leigu­í­búða sinna með bréfi sem sent var í maí síð­ast­liðn­um, er annað hvort í sam­ræmi við mark­aðs­leigu á við­kom­andi svæði eða aðeins lægri.

Í bréf­inu voru félög­in, sem sum hver eru hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, spurð hvernig þau séu  rekin með sem hag­kvæmustum hætti með hags­muni íbúa að leið­ar­ljósi.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið segir þó að í ljósi þess ástands sem nú ríkir á leigu­mark­aði sé það hins vegar mat Íbúða­lána­sjóðs að mark­aðs­leiga geti ekki talist rétt­mætt við­mið um það hvort leigu­fjár­hæð sé við­ráð­an­leg í skiln­ingi laga um hús­næð­is­mál ann­ars vegar og reglna sem gilda um leigu­í­búða­lán sjóðs­ins hins veg­ar. „Því vinnur Íbúða­lána­sjóður nú að því að skil­greina ný við­mið um hæfi­legt leigu­verð þar sem horft verði til ann­arra þátta, líkt og hversu hátt hlut­fall hús­næð­is­kostn­aður er af ráð­stöf­un­ar­tekjum íbúa á við­kom­andi svæð­i.“

Auglýsing

Ný skil­greind við­mið Íbúða­lána­sjóðs myndu taka til­lit til við­miða Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, um að hús­næð­is­kostn­aður telj­ist veru­lega íþyngj­andi ef hann er yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekj­um, sem og ákvæða íslenskra laga um almennar íbúðir þar sem við­miðið til að hljóta stofn­fram­lög er að hús­næð­is­kostn­aður leigj­enda íbúð­anna nemi að jafn­aði ekki meira en 25 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum þeirra. „Nið­ur­stöður kann­ana sem Íbúða­lána­sjóður hefur látið fram­kvæma hafa leitt í ljós að hlut­fall ráð­stöf­un­ar­tekna sem lág­tekju­hópar verja til leigu hér á landi er hærra en í nágranna­lönd­un­um. Einnig er fjár­hags­staða leigj­enda mun verri en fjár­hags­staða ann­arra á hús­næð­is­mark­aði og flestir lands­manna gefa þau svör að óhag­stætt sé að vera á leigu­mark­aði í dag.  Meiri­hluti leigj­enda seg­ist í könn­unum sjóðs­ins ekki upp­lifa að þeir búi við hús­næð­is­ör­yggi en telja þrátt fyrir það lík­legt að þeir verði áfram á leigu­mark­aði á næst­unn­i.“

Tvö­fald­ast á átta árum

Leig­u­verð íbúð­­ar­hús­næðis á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hefur tvö­fald­ast á átta árum. Á síð­­­ustu tveimur árum hefur það hækkað um meira en 30 pró­­sent. Í könnun sem gerð var fyrr á árinu fyrir Íbúða­lána­­sjóð kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­að­ar. Ein­ungis 14 pró­­sent þeirra sem eru á leig­u­­mark­aði vilja vera þar.

Stærstu hagn­að­­ar­drifnu leigu­fé­lög lands­ins hafa varið hækk­­­anir sínar með þeim rökum að þau hafi ein­­göngu verið að „að­laga“ leig­u­­samn­inga fast­­eigna­safna sem þau hafi keypt af rík­­inu að mark­aðs­verði.

Lán til að stuðla að fram­boði á við­ráð­an­legum kjörum

Kjarn­inn greindi frá því í  maí að Heima­vell­ir, stærsta hagn­að­­ar­drifna leigu­fé­lag lands­ins sem á um tvö þús­und íbúð­ir, sé að stærstum hluta fjár­­­magnað með lánum frá Íbúða­lána­­sjóði. Íbúða­lána­­sjóður og Kadeco, annað félag í eigu rík­­is­ins, eru líka þeir aðilar sem hafa selt Heima­­völlum flestar eign­­ir.

Lánin eru að hluta til veitt í sam­ræmi við reglu­­gerð Íbúða­lána­­sjóðs frá árinu 2013 til sveit­­ar­­fé­laga, félaga og félaga­­sam­­taka sem ætl­­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leig­u­í­­búð­­um. Mark­mið þeirrar reglu­­gerðar er að „stuðla að fram­­boði á leig­u­í­­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­­legum kjöru­m“.

Til að upp­­­fylla skil­yrði reglu­­gerð­­ar­innar mega félög sem fá slík lán ekki vera rekin í hagn­að­­ar­­skyni né má greiða úr þeim arð. Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­­­ustu viku og ætla sér í kjöl­farið að end­­ur­fjár­­­magna lán sín hjá Íbúða­lána­­sjóði, sem nema 18,6 millj­­örðum króna og eru rúm­­lega helm­ingur af skuldum félags­­ins, svo það geti greitt út arð.

Frá því að Heima­vellir voru stofn­aðir í febr­­úar 2015 hefur leig­u­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækkað um meira en 40 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar