Þórsmörk ehf., eignarhaldsfélagið sem á Árvakur, tapaði um 414 milljónum króna á árinu 2018. Árvakur er útgáfulega Morgunblaðsins, mbl.is og K100. Þetta má lesa úr ársreikningi Hlyns A ehf. eins stærsta eiganda Þórsmerkur. Þar kemur fram að hlutdeild Hlyns A í tapi Þórsmerkur í fyrra hafi verið 61,8 milljónir króna.
Hlynur A er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda Ísfélagsins, og barna hennar. Eina eign Hlyns A í lok síðasta árs var 16,45 prósent hlutur í Þórsmörk og tapið af rekstri Hlyns A reiknast því 16,45 prósent af heildartapi Þórsmerkur. Þegar tap Hlyns A er uppreiknað út frá hlutdeild félagsins kemur í ljós að heildartap Þórsmerkur var um 414 milljónir króna.
Yfir tveggja milljarða tap á áratug
Árvakur hefur glímt við mikinn hallarekstur á undanförnum árum og hluthafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáfunni til fé.
Frá því að nýir eigendur tóku við rekstrinum árið 2009 og fram til loka árs 2018 tapaði félagið um 2,2 milljörðum króna miðað við ofangreinda útreikninga á tapi Árvakurs í fyrra. Tapið eykst umtalsvert á milli ára, en Árvakur tapaði 284 milljónum króna árið 2017.
Kjarninn greindi frá því í febrúar síðastliðnum að hlutafé í Þórsmörk, eiganda Árvakurs, hefði verið aukið um 200 milljónir króna þann 21. janúar 2019. Auk þess var samþykktum félagsins breytt á þann veg að stjórn þess er heimilt að hækka hlutaféð um allt að 400 milljónir króna til viðbótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heimild gildir til ársloka 2019.
Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og félög tengd Ísfélagi Vestmannaeyja lögðu til 80 prósent þeirra 200 milljóna króna sem settar voru inn í rekstur Árvakurs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 milljónir króna af milljónunum 200. Þær 40 milljónir króna sem upp á vantaði dreifðust á nokkra smærri hluthafa en enginn nýr hluthafi bættist í hópinn við hlutafjáraukninguna.
Alls tóku fimm skráðir hluthafar ekki þátt í hlutafjáraukningunni og minnkaði hlutfallsleg eign þeirra samhliða henni. Á meðal þeirra var félagið Ramses II ehf., í eigu Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Reykjavíkur. Eignarhlutur Ramses hefur skroppið saman úr 22,87 prósentum í 20,05 prósent. Stundin hefur greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með 325 milljón króna kúluláni frá félagi í eigu Samherja. Þar hefur meðal annars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upplýsa um hvernig hann hafi fjármagnað kaupin á hlutnum og sagt að viðskiptin væru trúnaðarmál.
Flestir minni eigendur Þórsmerkur eru tengdir sjávarútvegsfyrirtækjum.
Færðu niður hlutaféð um milljarð
Frá því að nýir eigendur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félaginu til rúmlega 1,6 milljarð króna. Þar af nemur framlagt hlutafé KS um 324 milljónum króna og framlagt hlutafé tveggja félaga sem tengjast Ísfélaginu um 484 milljónum króna. Annað þeirra er áðurnefnt Hlynur A en hitt er Ísfélagið sjálft.
Við það lækkaði hlutafé Þórsmerkur úr 1,6 milljarði króna í 606 milljónir króna. Það þýðir að eigendur félagsins hafa afskrifað milljarð af því fjármagni sem þeir settu inn í félagið.
Virði Þórsmerkur hefur farið hratt lækkandi í bókum Hlyns A síðustu ár. Félagið mat eignarhlut sinn í Þórsmörk á 177,7 milljónir króna í lok árs 2016 á 135 milljónir króna ári síðar. Um síðustu áramót var hluturinn metinn á 99,8 milljónir króna sem þýðir að heildarvirði Þórsmerkur, og þar af leiðandi Árvakurs, hefur farið úr um 1.080 milljónum króna í um 606 milljónir króna á einu ári. Það er í samræmi við virði alls hlutafjár Þórsmerkur eftir að það var lækkað um milljarð króna í maí.
Eignarhald Þórsmerkur er eftirfarandi:
- Ramses II ehf., eigandi Eyþór Laxdal Arnalds, 20,05 prósent
- Íslenskar sjávarafurðir ehf., forsv.m. Sigurjón Rafnsson, 20,00 prósent
- Hlynur A ehf., forsv.maður Guðbjörg Matthíasdóttir, 16,45 prósent
- Ísfélag Vestmannaeyja hf., forsv.maður Stefán Friðriksson, 13,43 prósent
- Legalis sf., forsv.maður Sigurbjörn Magnússon, 12,37 prósent
- Rammi hf., forsv.maður Ólafur Marteinsson, 6,14 prósent
- Þingey ehf., forsv.maður Aðalsteinn Ingólfsson, 3,59 prósent
- Stálskip ehf., forsv.maður Halldór Kristjánsson, 3,08 prósent
- Brekkuhvarf ehf., forsv.maður Ásgeir Bolli Kristinsson, 2,05 prósent
- Fari ehf., forsv.maður Jón Pálmason, 1,54 prósent
- Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf., forsv.maður Einar Valur Kristjánsson, 1,30 prósent