Allir kerfislega mikilvægu bankarnir þrír hafa nú hækkað óverðtryggða húsnæðislánavexti sína í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í lok ágúst. Íslandsbanki var síðastur til að gera það, en hann tilkynnti að breytilegur óverðtryggðir vextir myndu hækka um 0,15 prósentustig frá og með deginum í dag, 7. september, og vera eftir það 3,8 prósent. Fastir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum héldust óbreyttir en til þriggja ára eru þeir 4,65 prósent hjá Íslandsbanka.
Landsbankinn tilkynnti um vaxtahækkun í byrjun síðustu viku og hækkaði breytilega óverðtryggða vexti um 0,2 prósentustig en fastir vextir haldast óbreyttir (4,2 prósent á láni upp að 50 prósent af kaupverði og 4,4 prósent af 20 prósent viðbótarláni). Við það fóru breytilegu óverðtryggðu vextirnir á 70 prósent grunnláni í 3,65 prósent.
Arion banki fylgdi í kjölfarið og hækkaði og hækkaði breytilegu vextina um 0,20 prósentustig í 3,74 prósent og fasta vexti til þriggja ára um 0,14 prósentustig í 4,49 prósent.
Því eru breytilegir vextir í öllum tilvikum enn umtalsvert undir föstum vöxtum sem bankarnir buðu fyrir stýrivaxtahækkun og bjóða eftir hana.
Flestir í breytilegu þegar vextir voru að lækka
Stýrivextir lækkuðu um 3,75 prósentustig á tveimur árum og í fyrravor voru þeir 0,75 prósent. Þeir höfðu aldrei verið lægri í Íslandssögunni og þar af leiðandi aldrei hagkvæmara að skuldsetja sig til t.d. húsnæðiskaupa. Sú staða leiddi til bólumyndunar á húsnæðismarkaði þar sem eftirspurn var langt umfram framboð og verð hækkaði skarpt. Frá byrjun árs í fyrra hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu til að mynda hækkað um 19 prósent. Á síðustu tíu árum hefur það hækkað um 136 prósent.
Ásókn í lán með föstum vöxtum jókst framan af ári, og ný slík útlán voru upp á 32 milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2021. Svo tilkynnti Seðlabanki Íslands í maí að hann myndi hækka stýrivexti í fyrsta sinn síðan í nóvember 2018, úr 0,75 prósentum í eitt prósent.
Flótti í fasta vexti eftir stýrivaxtahækkun
Eftir að nýtt vaxtahækkunarferli hófst í maí brast á flótti heimila í fasta vexti, þar sem hægt er að festa vexti í þrjú til fimm ár gegn því að borga meira í vaxtagreiðslur. Veðmálið þar snýst um að stýrivextir muni hækka nægilega skarpt á tímabilinu sem vextirnir eru fastir svo að það borgi sig umfram þá hækkun sem verður á kostnaði vegna breytilegu vaxtanna.
Mörg íslensk heimili virðast reiðubúin til að taka þessu veðmáli og í júní og júlí voru ný útlán með föstum vöxtum samtals 42,8 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að frá byrjun árs 2019 og út maímánuð 2021, í alls 29 mánuði, voru ný útlán með fasta vexti umfram uppgreiðslur og umframgreiðslur, 49,3 milljarðar króna.
Á sama tíma drógust ný útlán kerfislega mikilvægu bankanna á breytilegum vöxtum verulega saman. Í júlí voru þau 6,4 milljarðar króna og hafa ekki verið minni frá því í apríl 2019. Ný útlán á föstum vöxtum voru næstum þrefalt meiri en ný útlán á breytilegum vöxtum í síðasta mánuði.
Ásóknin enn öll í óvertryggðu lánin
Heimilin í landinu eru þó ekkert að færa sig úr óverðtryggðum lánum og aftur yfir í verðtryggða umhverfið, enda raunvextir á óvertryggðum húsnæðislánum í mörgum tilvikum enn neikvæðir. Það þýðir að verðbólga, sem er 4,3 prósent, sé hærri en nafnvextir lána.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti svo í annað sinn á árinu í lok ágúst, aftur um 0,25 prósentustig, og standa þeir nú í 1,25 prósentum.
Frá upphafi kórónuveirufaraldursins hérlendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríðlækka sem leiddu til stóraukinnar lántöku til húsnæðiskaupa, hafa heimili landsins tekið 616,6 milljarða króna í ný óverðtryggð lán hjá Landsbanka, Íslandsbanka og Arion banka að frádregnum uppgreiðslum og umframgreiðslum.
Það er 219,4 milljörðum krónum meira en heimili landsins tóku í óverðtryggð húsnæðislán hjá bönkunum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febrúar 2020, eða á sjö árum og tveimur mánuðum. Á þeim tíma tóku heimilin alls 397,2 milljarða króna í óverðtryggð lán til að kaupa sér húsnæði.
Frá mars í fyrra og út júlí í ár hafa útlán verðtryggðra húsnæðislána, að frádregnum uppgreiðslum og umframgreiðslum, verið neikvæð um næstum 100 milljarða króna.