Mynd: Bára Huld Beck N1 - Bensínstöð
Mynd: Bára Huld Beck

Bensínlítrinn lækkaði í fyrsta sinn á þessu ári en hlutdeild olíufélaganna í hverjum seldum lítra eykst

Framan af ári voru olíufélögin ekki að velta miklum hækkunum á bensíni út í verðið sem neytendum var boðið upp á. Nú þegar heimsmarkaðsverð hefur lækkað umtalsvert eru félögin að sama skapi að velta lækkunum hægar út í verðlagið en tilefni er til.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni lækk­aði í fyrsta sinn í langan tíma milli mán­aða, sam­kvæmt nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarn­ans. Það stendur nú í 328,4 krónum og lækk­aði alls um 17,1 krónur milli mán­aða, eða fimm pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem við­mið­un­ar­verðið lækkar milli mán­aða. 

Verðið í síð­asta mán­uði var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 pró­sent á tveimur árum og um 28 pró­sent frá því í jan­ú­ar. Upp­­­­­reiknað miðað við þróun vísi­­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náð­ist í apríl 2012. 

Þetta má lesa út úr nýj­­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verð­lækk­unin er þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heims­mark­aði með olíu, en heims­mark­aðs­verðið á tunnu af hrá­olíu hefur lækkað um rúm­lega næstum 30 pró­sent á rúmum tveimur mán­uð­um. Á sama tíma hefur verðið lækkað um tæp fimm pró­sent hér­lend­is. 

Á sama tíma hefur gengi krónu gagn­vart Banda­­­­­ríkja­­­­dal veikst um tæp sex pró­­sent, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­­­­neyt­is­verðs hér­­­­­­­lendis þar sem að inn­­­­­­­kaup á elds­­­­neyti fara fram í döl­u­m. Því dýr­­ari sem dal­­ur­inn er, því meira borgum við fyrir bens­ín. 

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­­­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­­­­­tölu í yfir­­­­­­­­lit­i síð­­­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­­­bún­­­­að­­­­ar­­­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­­­­­um. 

Lækkun olíu­verðs temprar verð­bólgu

Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda (FÍB) gagn­rýndi á heima­síðu sinni í síð­ustu viku að bens­ín- og dísel­verð væri enn óeðli­lega hátt hér­lendis þrátt fyrir miklar lækk­anir á heims­mark­aðs­verði síð­ustu tvo mán­uði. Í umfjöllun þess er bent á bensín í Dan­mörku lækkað um 18,4 pró­sent og dísil­olía um 16,8 pró­sent á meðan að lækk­unin hér­lendis er örfá pró­sent. „Bens­ín­verð á Íslandi og í Dan­mörku var svipað í báðum löndum snemma í júní. Núna er verð­mun­ur­inn á milli land­anna yfir 55 krónur á hvern lítra af bens­íni. Elds­neyti ber háa skatta á Íslandi og ekki minni skatta í Dan­mörku. Hlut­falls­leg lækkun nær ekki til krónu­tölu­skatta bæði hér heima og í Dan­mörku. Þennan mikla mun á verð­lækkun milli landa er engan vegin hægt að rétt­læta.“

Verð­bólga mælist mælist 9,9 pró­sent og stefnir í tveggja stafa tölu. Til að reyna að hemja verð­bólg­una hefur Seðla­­banki Íslands hækkað stýri­vexti sína skarpt á skömmum tíma, upp í 4,75 pró­­sent, og vænt­ingar eru um að það hækk­­un­­ar­­ferli haldi áfram í næsta mán­uð­i. Þetta hefur haft mikil áhrif á ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila, enda flest nauð­synja­vara dýr­ari með auk­inni verð­bólgu auk þess sem afborg­anir lána aukast mik­ið.

Í umfjöllun FÍB er bent á að elds­neyt­is­verð vegi þungt í vísi­tölu neyslu­verðs og þar með í verð­bólgu. „Ol­íu­fé­lögin hafa mikil áhrif á afkomu heim­ila og fyr­ir­tækja langt umfram lítra­verð­ið. Lækkun olíu­verðs temprar verð­bólgu en hátt verð kyndir verð­bólgu­bál­ið.“

Þá gagn­rýnir félagið það harð­lega að for­stjóri Skelj­ungs hafi sagt við RÚV í byrjun síð­ustu viku að olíu­fé­lögin hafi haldið aftur af verð­hækk­un­um. „Rökin voru þau að fram­legðin af hverjum seldum lítra væri lægri um þessar mundir en hún var fyrir Covid-19. Það er athygl­is­vert að for­stjóri Skelj­ungs talar fyrir hönd allra olíu­fé­lag­anna sem eiga að heita að vera í sam­keppni. Síðan er það fram­legðin sem getur ekki verið hlut­fallstala í eðli­legri sam­keppni þegar um er að ræða vöru sem tekur miklum verð­sveiflum og er mjög hátt skatt­lögð.“

Hlutur olíu­fé­laga að aukast að nýju

Bens­ín­vakt Kjarn­ans skoðar einmitt þetta, hvernig krón­urnar sem neyt­and­inn greiðir fyrir bens­ín­lítr­ann skipt­ist milli rík­is, olíu­fé­laga og ann­arra. Lík­legt inn­kaupa­verð á lítra af bens­íni er nú 115,1 krónur á lítra, og hefur lækkað um 22,5 pró­sent á tveimur mán­uð­u­m. 

Þegar þær tölur eru skoð­aðar sést að hlutur olíu­­­­­fé­laga í hverjum seldum lítra fylgdi ekki þeim miklu hækk­­­unum á inn­kaupa­verði sem urðu framan af ári. Það þýðir að félögin voru ekki að velta hækk­­unum á heims­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það er nú að breyt­­ast. 

Hann er nú 57,4 krónur eða um 17,7 pró­­­sent af hverjum seldum lítra. Í júlí var hann 48 krónur eða 14 pró­sent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíu­­­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst því um 19 pró­­sent milli júlí og ágúst­mán­aða og um 55 pró­sent á síð­ustu tveimur mán­uð­u­m. 

Sam­an­lagt fer því 172,54 krónur af hverjum seldum lítra til ann­­­arra en rík­­­is­ins, þ.e. þeirra sem selja smá­­­sölum á elds­­­neyti vör­una og til smá­sal­anna sjálfra. 

Hlutur rík­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 152,56 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni og fer lækk­andi í krónum talið en hlut­falls­lega hækk­andi. Það þýðir að 46,9 pró­­­sent af hverjum lítra fer í rík­­­is­­­sjóð.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­leg­ir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­legt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­um. Mis­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­ber­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­að­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­ur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar