Reykjavíkurborg hefur farið fram á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra víki sæti þegar ákvörðun verður tekin um hvort hafnargarður á lóð við hlið Tollhússins í Reykjavík verði friðaður. Borgin dregur í efa stjórnsýslulegt hæfi forsætisráðherra til að taka afstöðu til málsins, meðal annars vegna greinar sem hann birti um skipulagsmál í Reykjavík í ágúst. Reykjavíkurborg telur einnig að friðun muni hafa í för með sér "stórkostlegan kostnað fyrir ríkissjóð“. Þetta kemur fram í bréfi Kristbjargar Stephensen borgarlögmanns til forsætisráðuneytisins sem sent var í síðustu viku, og Kjarninn hefur undir höndum.
Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóðarhafarnir sem um ræðir telji að friðlýsingin muni að lágmarki valda sér 2,2 milljarða króna tjóni verði hún staðfest af Sigmundi Davíð. Loðarhafarnir munu sækja það tjón úr hendi Minjastofnunar og því myndi það lenda á ríkissjóði Íslands verði tjónið staðfest. Sigmundur Davíð hefur til 22. október að ákveða hvort hann muni staðfesta friðlýsinguna eða ekki.
Byrjaði allt með nýjum lögum
Á síðasta þingi voru samþykkt lög um verndarsvæði í byggð. Flutningsmaður þeirra var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Samkvæmt lögunum getur forsætisráðherra tekið ákvörðun um vernd byggðar að fenginni tillögu sveitarstjórnar eða Minjastofnunar Íslands, ekki sveitarfélögin sem byggðin er í. Minjastofnun var færð undir forsætisráðuneytið þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við völdum. Hún heyrði áður undir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Var þetta gert sérstaklega að ósk Sigmundar Davíðs, sem er mikill áhugamaður um skipulags- og verndarmál. Minjastofnun er eina eftirlitsstofnun landsins sem heyrir undir forsætisráðuneytið.
Lögin hafa verið gagnrýnd harkalega, meðal annars af Sambandi íslenskra sveitafélaga. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í vor að frumvarpið stríði gegn skipulagsvaldi og sjálfstjórnarrétti sveitarfélaganna, og að minnsta kosti sé farið mjög nálægt því að brjóta ákvæði stjórnarskrárinnar með því.
Þann 7. september síðastliðinn ákvað Minjastofnun að skyndifriða hafnargarða við Austurhöfnina í Reykjavík. Friðunin gildir í sex vikur og þarf forsætisráðherra að ákveða hvort garðurinn verði friðlýstur fyrir 22. október næstkomandi.
Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, beindi fyrirspurn til Sigmundar Davíðs fyrir nokkrum vikum og vildi fá að vita hvort hann hefði haft einhverja aðkomu að skyndifriðun garðsins. Fyrirspurninni hefur enn ekki verið svarað.
Reitirnir sem um ræðir eru í hjarta Reykjavíkur og framkvæmdir á þeim munu hafa mikið áhrif á brag miðborgarinnar.
Kjallari á tveimur hæðum
Lóðin að Austurbakka 2 er um 55 þúsund fermetrar að stærð og liggur frá Ingólfsgarði, yfir Geirsgötu að Tryggvagötu. Lóðarhafar eru Tónlistar- og ráðstefnuhús ohf., Situs ehf., Kolufell ehf., Landsbankinn og Bílastæðasjóður Reykjavíkur. Um er m.a. að ræða lóðina sem Harpa stendur á, lóðina sem lúxushótel á að rísa á við hlið hennar, lóðina sem Landsbankinn hefur haft hug á að reisa sér höfuðstöðvar og lóðina við hlið Tollhússins.
Á lóðinni er gert ráð fyrir byggingareit neðanjarðar. Sá byggingareitur nær yfir alla lóðina. Um er að ræða kjallara á tveimur hæðum með þjónustu og bílastæðum.
Allt í allt eru níu byggingareitir á Austurbakka 2. Félagið Landstólpar þróunarfélag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upphafs framkvæmda á reitunum. Í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar af því tilefni segir: „Fyrirhugaðar framkvæmdir eru hluti af stærsta byggingaverkefni fram til þessa í hjarta Reykjavíkur. Samkvæmt deiliskipulagi má byggja á reitum 1 og 2 við Austurbakka, 21.400 m2 ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjölbreytt húsnæði fyrir ýmsa atvinnustarfsemi, s.s. verslanir, veitingahús, skrifstofur og þjónustu. Auk þess verður byggður bílakjallari á reitnum sem verður samtengdur öðrum bílakjöllurum á lóðinni, allt að Hörpu. Áætlað að sameiginlegur kjallari rúmi um 1.000 bíla“.
Framkvæmdunum á að ljúka árið 2018 samkvæmt áætlun.
Skyndifriðun setur framkvæmdir í uppnám
Skyndifriðun hafnargarðanna hefur hins vegar sett þær framkvæmdir í uppnám, sérstaklega sá nýrri. Hafnargarðarnir tveir eru nefnilega á reitum Landsstólpa. Þessir tveir hafnargarðar, standi þeir friðaðir, koma beinlínis í veg fyrir að hægt veðri að byggja neðanjarðar.
Gamli garðurinn telst sannarlega til fornleifa, þar sem hann er yfir 100 ára gamall. Minjastofnun hafði í ágúst tilkynnt lóðarhafar að hann ætti því að standa en að heimilt væri að hylja hann að fullu, sem lóðarhafar samþykktu.
Hinn garðurinn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki fornminjar samkvæmt 100 ára skilgreiningunni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggður. Þennan garð stóð til að fjarlægja. Þrátt fyrir þetta tilkynnti Minjastofnun um skyndifriðun alls garðsins án afmörkunar 7. september síðastliðinn.
Borgin vill að Sigmundur Davíð víki
Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóðarhafar hafi gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Minjastofnunar. Þeir segja ennfremur að ef forsætisráðherra komist að þeirri niðurstöðu að friðlýsa nýrri garðinn muni það valda þeim gríðarlegu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 milljarða króna að lágmarki og segjast munu sækja það til Minjastofnunar ef nýrri garðurinn verður friðlýstur. Ef Minjastofnun myndi bera ábyrgð á því tjóni þyrfi að greiða það úr ríkissjóði.
Reykjavíkurborg hefur einnig sent athugasemdir til forsætisráðuneytisins vegna skyndifriðunarinnar. Kjarninn hefur bréf borgarinnar, sem borgarlögmaður sendi 9. október síðastliðinn, undir höndum. Þar er meðal annars farið fram á að Sigmundur Davíð víki sæti við meðferð málsins. Borgin dregur í efa stjórnsýslulegt hæfi forsætisráðherra til að taka afstöðu til erindis Minjastofnunar, m.a. vegna greinar sem hann birti á heimasíðu sinni 27. ágúst síðastliðinn.
Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóðarhafar hafi gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Minjastofnunar. Þeir segja ennfremur að ef forsætisráðherra komist að þeirri niðurstöðu að friðlýsa nýrri garðinn muni það valda þeim gríðarlegu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 milljarða króna að lágmarki.
Í niðurlagi greinarinnar, sem fjallar um það sem forsætisráðherra telur uggvænlega þróun í skipulagsmálum Reykjavíkur, skrifaði Sigmundur Davíð: „Fornleifar sem fundust á lóðinni við hlið Iðnaðarbankahússins verða friðaðar sem og hafnargarðurinn við hinn enda Lækjargötunnar“. Þar er hann að vísa í hafnargarðanna tvo sem friðaðir voru. Í bréfi borgarlögmanns segir að það verði að telja „að ráðherrann tjái sig þarna um skoðun sína á friðun hafnargarðsins með afgerandi hætti. Í annan stað upplýsti forstöðumaður Minjastofnunar Íslands um það á fundi borgarráðs 1. október sl. að forsætisráðherra væri nú þegar búinn að koma að málum á fyrri stigum. Upplýsti forstöðumaðurinn um að ráðherra hefði á fundi í ráðuneytinu síðastliðið sumar fengið kynningu frá stofnuninni á því sem komið hefði í ljós við fornleifarannsóknir á svæðinu. Ljóst er að sú kynning fór fram um það leyti sem greina má að stefnubreyting hafi orðið á afstöðu Minjastofnunar Íslands í málinu“.
Í borgarlögmaður telur, í ljósi þess að Sigmundur Davíð hafi áður tjáð skoðun sína á friðun hafnargarðsins með afgerandi hætti og átt aðkomu að málinu að fyrri stigum, þá leiði „öll rök til þess að draga megi í efa stjórnsýslulegt hæfi hans til að taka nú afstöðu til málsins með vísan til hæfisreglna stjórnsýsluréttarins. Gerir Reykjavíkurborg því þá kröfu að forsætisráðherra víki sæti við meðferð erindis Minjastofnunar Íslands um tillögu að friðlýsingu hafnargarðsins“.
Afstaða Reykjavíkurborgar til friðunar hafnargarðsins er einnig skýrð í bréfinu. Þar segir að þegar allir fletir málsins hafi verið virtir sé ljóst að mati borgarinnar að ekki hafi verið nauðsynlegt að grípa til jafn íþyngjandi úrræðis og skyndifriðun garðsins sé. Gengið sé mun lengra en nauðsynlegt sé. „Það er því von Reykjavíkurborgar að ná megi samkomulagi um ásættanlega lausn í málinu sem ekki hefði í för með sér verulegt tjón fyrir þá aðila sem eiga réttindi á lóðinni og stórkostlegan kostnað fyrir ríkissjóð“.