Borgin vill að Sigmundur víki sæti í friðunarmáli og dregur stjórnsýslulegt hæfi hans í efa

austurbakki.jpg
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg hefur farið fram á að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra víki sæti þegar ákvörðun verður tekin um hvort hafn­ar­garður á lóð við hlið Toll­húss­ins í Reykja­vík verði frið­að­ur. Borgin dregur í efa stjórn­sýslu­legt hæfi for­sæt­is­ráð­herra til að taka afstöðu til máls­ins, meðal ann­ars vegna greinar sem hann birti um skipu­lags­mál í Reykja­vík í ágúst. Reykja­vík­ur­borg telur einnig að friðun muni hafa í för með sér "stór­kost­legan kostnað fyrir rík­is­sjóð“. Þetta kemur fram í bréfi Krist­bjargar Steph­en­sen borg­ar­lög­manns til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem sent var í síð­ustu viku, og Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­haf­arn­ir ­sem um ræðir telji að frið­lýs­ingin muni að lág­marki valda sér 2,2 millj­arða króna tjóni verði hún stað­fest af Sig­mundi Dav­íð. Loð­ar­haf­arnir munu sækja það tjón úr hendi Minja­stofn­unar og því myndi það lenda á rík­is­sjóði Íslands verði tjónið stað­fest. ­Sig­mundur Davíð hefur til 22. októ­ber að ákveða hvort hann muni stað­festa frið­lýs­ing­una eða ekki.

Byrj­aði allt með nýjum lögum



Á síð­asta þingi voru sam­þykkt lög um vernd­ar­svæði í byggð. Flutn­ings­maður þeirra var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. ­Sam­kvæmt lög­unum get­ur ­for­sæt­is­ráð­herra tekið ákvörðun um vernd byggðar að feng­inni til­lögu sveit­ar­stjórnar eða Minja­stofn­unar Íslands, ekki sveit­ar­fé­lögin sem byggðin er í. Minja­stofnun var færð undir for­sæt­is­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar tók við völd­um. Hún heyrði áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­ið. Var þetta gert sér­stak­lega að ósk Sig­mundar Dav­íðs, sem er mik­ill áhuga­maður um skipu­lags- og vernd­ar­mál. Minja­stofnun er eina eft­ir­lits­stofnun lands­ins sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Auglýsing

Lög­in hafa verið gagn­rýnd harka­lega, meðal ann­ars af Sam­bandi íslenskra sveita­fé­laga. Hall­dór Hall­dórs­son, for­maður Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sagði í vor að frum­varpið stríði gegn skipu­lags­valdi og sjálf­stjórn­ar­rétti sveit­ar­fé­lag­anna, og að minnsta kosti sé farið mjög nálægt því að brjóta ákvæði stjórn­ar­skrár­innar með því.

Þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn ákvað Minja­stofnun að ­skyndi­friða hafn­ar­garða við Aust­ur­höfn­ina í Reykja­vík. Frið­unin gildir í sex vikur og þarf for­sæt­is­ráð­herra að ákveða hvort garð­ur­inn verði frið­lýstur fyrir 22. októ­ber næst­kom­andi.

Heiða Kristín Helga­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, beindi fyrir­spurn til Sig­mundar Dav­íðs fyrir nokkrum vikum og vildi fá að vita hvort hann hefði haft ein­hverja aðkomu að skyndi­friðun garðs­ins. Fyr­ir­spurn­inni hefur enn ekki verið svar­að.

Reitirnir sem um ræðir eru í hjarta Reykjavíkur og framkvæmdir á þeim munu hafa mikið áhrif á brag miðborgarinnar. Reit­irnir sem um ræðir eru í hjarta Reykja­víkur og fram­kvæmdir á þeim munu hafa mikið áhrif á brag mið­borg­ar­inn­ar.

Kjall­ari á tveimur hæðum



Lóðin að Aust­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­metrar að stærð og liggur frá Ing­ólfs­garði, yfir Geirs­götu að Tryggva­götu. Lóð­ar­haf­ar eru Tón­list­ar- og ráð­stefnu­hús ohf., Situs ehf., Kolu­fell ehf., Lands­bank­inn og Bíla­stæða­sjóður Reykja­vík­ur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið henn­ar, lóð­ina sem Lands­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­húss­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­areit neð­an­jarð­ar. Sá bygg­ing­areitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­ara á tveimur hæðum með þjón­ustu og bíla­stæð­um.

Allt í allt eru níu bygg­ing­areitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Land­stólpar þró­un­ar­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­un­um. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni seg­ir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­vík­ur. Sam­kvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka,  21.400 m2  of­anjarð­ar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa  atvinnu­starf­semi, s.s. versl­an­ir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­kvæmd­unum á að ljúka árið 2018 sam­kvæmt áætl­un.

Skyndi­friðun setur fram­kvæmdir í upp­nám



Skyndi­friðun hafn­ar­garð­anna hefur hins vegar sett þær fram­kvæmdir í upp­nám, sér­stak­lega sá nýrri. Hafn­ar­garð­arnir tveir eru nefni­lega á reitum Lands­stólpa. Þessir tveir hafn­ar­garð­ar, standi þeir frið­að­ir, koma bein­línis í veg fyrir að hægt veðri að byggja neð­an­jarð­ar.

Gamli garð­ur­inn telst sann­ar­lega til forn­leifa, þar sem hann er yfir 100 ára gam­all. Minja­stofnun hafði í ágúst til­kynnt lóð­ar­hafar að hann ætti því að standa en að heim­ilt væri að hylja hann að fullu, sem lóð­ar­hafar sam­þykktu.

Hinn garð­ur­inn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki forn­minjar sam­kvæmt 100 ára skil­grein­ing­unni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggð­ur. Þennan garð stóð til að fjar­lægja. Þrátt fyrir þetta til­kynnti Minja­stofnun um skyndi­friðun alls garðs­ins án afmörk­unar 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Borgin vill að Sig­mundur Davíð víki



Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­hafar hafi gert alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð Minja­stofn­un­ar. Þeir segja enn­fremur að ef for­sæt­is­ráð­herra kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að frið­lýsa nýrri garð­inn muni það valda þeim gríð­ar­legu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 millj­arða króna að lág­marki og segj­ast munu sækja það til Minja­stofn­unar ef nýrri garð­ur­inn verður frið­lýst­ur. Ef Minja­stofnun myndi bera ábyrgð á því tjóni þyrfi að greiða það úr rík­is­sjóði.

Reykja­vík­ur­borg hefur einnig sent athuga­semdir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna skyndi­frið­un­ar­inn­ar. Kjarn­inn hefur bréf borg­ar­inn­ar, sem borg­ar­lög­maður sendi 9. októ­ber síð­ast­lið­inn, undir hönd­um. Þar er meðal ann­ars farið fram á að Sig­mundur Davíð víki sæti við með­ferð máls­ins. ­Borgin dregur í efa stjórn­sýslu­legt hæfi for­sæt­is­ráð­herra til að taka afstöðu til erindis Minja­stofn­un­ar, m.a. vegna greinar sem hann birti á heima­síðu sinni 27. ágúst síð­ast­lið­inn.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóðaeigendur hafi gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Minjastofnunar. Þeir segja ennfremur að ef forsætisráðherra komist að þeirri niðurstöðu að friðlýsa nýrri garðinn muni það valda þeim gríðarlegu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 milljarða króna að lágmarki. Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­hafar hafi gert alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð Minja­stofn­un­ar. Þeir segja enn­fremur að ef for­sæt­is­ráð­herra kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að frið­lýsa nýrri garð­inn muni það valda þeim gríð­ar­legu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 millj­arða króna að lág­marki.

Í nið­ur­lagi grein­ar­inn­ar, sem fjallar um það sem for­sæt­is­ráð­herra telur ugg­væn­lega þróun í skipu­lags­málum Reykja­vík­ur, skrif­aði Sig­mundur Dav­íð: „Forn­leifar sem fund­ust á lóð­inni við hlið Iðn­að­ar­banka­húss­ins verða frið­aðar sem og hafn­ar­garð­ur­inn við hinn enda Lækj­ar­göt­unn­ar“. Þar er hann að vísa í hafn­ar­garð­anna tvo sem frið­aðir voru. Í bréfi borg­ar­lög­manns segir að það verði að telja „að ráð­herr­ann tjái sig þarna um skoðun sína á friðun hafn­ar­garðs­ins með afger­andi hætti. Í annan stað upp­lýsti for­stöðu­maður Minja­stofn­unar Íslands um það á fundi borg­ar­ráðs 1. októ­ber sl. að for­sæt­is­ráð­herra væri nú þegar búinn að koma að málum á fyrri stig­um.  Upp­lýsti for­stöðu­mað­ur­inn um að ráð­herra hefði á fundi í ráðu­neyt­inu síð­ast­liðið sumar fengið kynn­ingu frá stofn­un­inni á því sem komið hefði í ljós við forn­leifa­rann­sóknir á svæð­inu. Ljóst er að sú kynn­ing fór fram um það leyti sem greina má að stefnu­breyt­ing hafi orðið á afstöðu Minja­stofn­unar Íslands í mál­in­u“.

Í borg­ar­lög­maður tel­ur, í ljósi þess að Sig­mundur Davíð hafi áður tjáð skoðun sína á friðun hafn­ar­garðs­ins með afger­andi hætti og átt aðkomu að mál­inu að fyrri stig­um, þá leiði „öll rök til þess að draga megi í efa stjórn­sýslu­legt hæfi hans til að taka nú afstöðu til máls­ins með vísan til hæf­is­reglna stjórn­sýslu­rétt­ar­ins. Gerir Reykja­vík­ur­borg því þá kröfu að for­sæt­is­ráð­herra víki sæti við með­ferð erindis Minja­stofn­unar Íslands um til­lögu að frið­lýs­ingu hafn­ar­garðs­ins“.

Afstaða Reykja­vík­ur­borgar til frið­unar hafn­ar­garðs­ins er einnig skýrð í bréf­inu. Þar segir að þegar allir fletir máls­ins hafi verið virtir sé ljóst að mati borg­ar­innar að ekki hafi verið nauð­syn­legt að grípa til jafn íþyngj­andi úrræðis og skyndi­friðun garðs­ins sé. Gengið sé mun lengra en nauð­syn­legt sé. „Það er því von Reykja­vík­ur­borgar að ná megi sam­komu­lagi um ásætt­an­lega lausn í mál­inu sem ekki hefði í för með sér veru­legt tjón fyrir þá aðila sem eiga rétt­indi á lóð­inni og stór­kost­legan kostnað fyrir rík­is­sjóð“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None