Viðræður við aðilann sem vill selja íslenskum yfirvöldum upplýsingar um eignir Íslendinga í skattaskjólum eru ekki komnar á það stig að hann hafi sett upp ákveðið verð fyrir upplýsingarnar, segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. Í kjölfar yfirlýsingar fjármála- og efnahagsráðuneytisins í gær, þar sem skattrannsóknarstjóra var heimilað að kaupa gögnin að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, er embættið að stilla því upp hvernig næstu samskiptum við þann sem vill selja upplýsingarnar verði háttað. Bryndís segir að það liggi á að klára málið, en vill ekki nefna sérstök tímamörk í því sambandi.
Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri.
Í gær tilkynnti Fjármála- og efnahagsráðuneytið að „meti skattrannsóknarstjóri það svo að gögnin geti nýst embættinu við úrlausn mála sem það sinnir og að mögulegt sé að skilyrða greiðslu til seljanda gagnanna þannig að þær nemi að hámarki tilteknu hlutfalli af innheimtu þeirra skattkrafna sem af gögnunum leiðir er ráðuneytið reiðubúið að tryggja þær fjárheimildir sem nauðsynlegar eru til að ráðast í öflun umræddra gagna, með eðlilegum fyrirvörum um sarmáð áður en til skuldbindinga er gengið.“
Mikill áhugi einkaaðila á að kaupa gögnin
Bryndís segir að boltinn sé því kominn aftur til embættis hennar. „Við munum kanna hvort þessi skilyrði séu uppfyllt, sem er þá gert í viðræðum við þennan aðila sem er að selja gögnin. Og hins vegar er það gert með því að fara betur yfir gögnin og setja fram nánar hvernig unnið yrði úr þeim“.
Við munum kanna hvort þessi skilyrði séu uppfyllt, sem er þá gert í viðræðum við þennan aðila sem er að selja gögnin. Og hins vegar er það gert með því að fara betur yfir gögnin og setja fram nánar hvernig unnið yrði úr þeim
Kjarninn hafði áhuga á að vita hver verðmiðinn væri með það fyrir augum að kanna hvort hann gæti sjálfur keypt upplýsingarnar. Hópur einstaklinga hafði lýst yfir áhuga á við Kjarnann um að taka þátt í slíkum kaupum. Að sögn Bryndísar hafa fjölmargir einkaaðilar líka sett sig í samband við embætti hennar með það fyrir augum að fjármagna kaupin á gögnunum.
Fleiri hundruð aðilar
Embætti skattrannsóknarstjóra fékk nöfn 50 íslenskra aðila síðasta sumar sem vísbendingar eru um að hafi stundað skattaundanskot og komið fyrir eignum í skattaskjólum. Upplýsingarnar komu frá manni sem bauð embættinu gögnin til sölu. Um var að ræða um tíu prósent þeirra gagna sem hann segist vera með undir höndum og var þeim ætlað að vera sýnishorn fyrir íslensk stjórnvöld. Til að fá öll gögnin, sem innihalda mörg hundruð nöfn íslenskra aðila, vildi maðurinn fá greitt. Bryndís segir hann hins vegar ekki hafa sett upp ákveðið verð. „Hugsanlega kann það að taka mið af þeim fjármunum sem myndu innheimtast, en dæmi eru um það.“
Í lok september sendi embætti skattrannsóknarstjóra greinargerð til fjármála- og efnahagsráðuneytisins eftir að hafa farið yfir sýnishornin 50, enda bentu þau sterklega til þess að skattaundanskot hafi átt sér stað. Ráðuneytið tilkynnti í gær að skattrannsóknarstjóri réði því hvort hann keypti gögnin, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Ráðuneytið svaraði ekki fyrirspurn
Kjarninn sendi fyrirspurn á upplýsingafulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins þann 28. október síðastliðinn þar sem óskað var eftir því að fá upplýsingar um hvers konar vinna væri í gangi í ráðuneytinu vegna skattaskjólsupplýsinganna. Kjarninn óskaði sömuleiðis eftir því að fá upplýsingar um hvenær væri von á að þeirri vinnu myndi ljúka. Þrátt fyrir fjölmargar ítrekanir þá hefur upplýsingafulltrúinn ekki svarað fyrirspurn Kjarnans, sem var send fyrir meira en mánuði síðan. Tilkynning ráðuneytisins, sem var birt í gær, svaraði henni að hluta til.
Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, hefur heimilað embætti skattrannsóknarstjóra að kaupa gögn um eignir Íslendinga í erlendum skattaskjólum.
Bæði bandarísk og þýsk stjórnvöld hafa farið þá leið að kaupa gögn um skattaundanskot þegna sinna frá aðilum sem hafa boðið þau til sölu. Þýsk stjórnvöld greiddu til að mynda um 20 milljónir evra fyrir slík gögn á árunum 2006 til 2012. Samkvæmt frétt Der Spiegel um kaupin var ávinningur þýska ríkisins vegna kaupanna margfaldur, eða um tvö þúsund milljónir evra.
Eiga um 1.500 milljarða króna erlendis
Á góðæristímanum var lenska að geyma eignarhald fyrirtækja, og peninga, á framandi slóðum. Útibú eða dótturfélög íslensku bankanna settu upp allskyns félög fyrir viðskiptavini sína í Lúxemborg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyjunum Jersey og Guernsey þar sem bankaleynd var, og er, rík.
Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jómrúareyjunum fyrir viðskiptavini þeirra, nánar tiltekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hundruðum og langflest þeirra voru stofnuð í Kaupþingi í Lúxemborg, sem hélt sérstakar kynningar fyrir viðskiptavini sína til að sýna fram á hagræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinning af hlutabréfasölu í aflandsfélögunum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal annars hjá því að greiða skatta á Íslandi.
Í lok síðasta árs, rúmum fimm árum eftir bankahrun og setningu gjaldeyrishafta, áttu Íslendingar enn tæpa 1.500 milljarða króna í erlendri fjármunaeign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lánveitingar á milli aðila í sömu eigu.
Í lok síðasta árs, rúmum fimm árum eftir bankahrun og setningu gjaldeyrishafta, áttu Íslendingar enn tæpa 1.500 milljarða króna í erlendri fjármunaeign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lánveitingar á milli aðila í sömu eigu. Á meðal þess sem kemur fram í tölunum er að Íslenskir aðilar eigi 28,5 milljarða króna eignir á Tortóla-eyju. Eignir Íslendinga þar hafa snaraukist að raunvirði síðan fyrir hrun, en í árslok 2007 áttu þeir 8,4 milljarða króna á eyjunum. Gengisfall krónunnar skýrir aukninguna að einhverju leyti.
Mest af erlendum auði Íslendinga er í Evrópu, rúmir 1.000 milljarðar króna. Tæplega 400 milljarðar króna eru í Ameríkuálfunum og um 30 milljarðar króna annarsstaðar í heiminum.
Stór hluti eignanna, 651,2 milljarður króna, er vistaður í eignarhaldsfélögum. Til samanburðar eru eignir þeirra sem stunda framleiðslu, til dæms í matvæla- eða efnaiðnaði, 491 milljarður króna. Eignir sem vistaðar eru í eignarhaldsfélögum hafa vaxið mjög á undanförnum árum. Árið 2007 nam virði þeirra til að mynda 287 milljörðum króna.
Byrjaði með skattahagræði
Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda áratuginn þegar íslensk fjármálafyrirtæki fóru að bjóða stórum viðskiptavinum sínum að láta söluhagnað af hlutabréfaviðskiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skattalög á Íslandi þannig að greiddur var tíu prósent skattur af slíkum söluhagnaði upp að 3,2 milljónum króna. Allur annar hagnaður umfram þá upphæð var skattlagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 prósent skattur.
Þótt bankareikningar, eða verðbréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjármunirnir þó ekki raunverulega geymdir þar. Í tilfelli Íslendinga er oftast um að ræða bankareikninga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönkunum í Lúxemborg.
Lögum um skattlagningu fjármagnstekna var hins vegar breytt um aldarmótin og eftir þá breytingu var allur söluhagnaður af hlutabréfum skattlagður um tíu prósent. Við það varð íslenskt skattaumhverfi afar samkeppnishæft og skattahagræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf. Frá þeim tíma voru ný félög því aðallega stofnuð til að fela raunverulegt eignarhald eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitthvað athugavert var við hvernig mynduðust.
Þótt bankareikningar, eða verðbréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjármunirnir þó ekki raunverulega geymdir þar. Í tilfelli Íslendinga er oftast um að ræða bankareikninga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönkunum í Lúxemborg. Fjármunirnir sjálfir voru og eru síðan geymdir þar þótt þeir séu skráðir til heimilis á framandi slóðum.