Ríkissjóður fær heimild fyrir 52 milljarða láni til að fjármagna Seðlabanka

15744836159-3a17123472-z.jpg
Auglýsing

Rík­is­sjóður fær heim­ild til að taka allt að 52 millj­arða króna lán til að fjár­magna eigið fé Seðla­banka Íslands, sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lög árs­ins 2015 sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði fram í gær. Vig­dís Hauks­dóttir er for­maður fjár­laga­nefndar og einn flutn­ings­manna til­lög­unn­ar. Breyt­ing­ar­til­lagan helst í hendur við frum­varp um lög­fest­ingu á nýrri arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­bank­ann sem tryggir að allur hagn­aður hans yfir ákveðið lág­marks eigið fé verði borg­arður til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu.

Í því frum­varpi kemur fram að lág­marks eigið fé Seðla­bank­ans eigi að vera 52 millj­arðar króna, nákvæm­lega sama upp­hæð og rík­is­sjóður fær heim­ild til að fá lán­aða verði breyt­inga­til­lagan sam­k­þykkt.

Í lok árs 2013 var eigið fé Seðla­bank­ans um 90 millj­arðar króna. Því er nægt svig­rúm til að greiða út úr Seðla­bank­anum verði nýja frum­varpið að lögum og losa fé til ann­arra verka.

Auglýsing

Vaxta­greiðslur skila sér til baka sem arð­greiðslur



Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber að til stæða að leggja fram frum­varp um að lög­festa nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Verði frum­varpið að lögum mun Seðla­bank­inn borga allan hagnað yfir ákveðið lág­marks eigið fé til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu. Frum­varpið var síðan lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að „Heild­ar­fjár­hæð inn­kall­an­legs eigin fjár [...]er 52 millj­arðar kr. Eft­ir­stöðvar inn­kall­an­legs eigin fjár fær­ast upp við hver ára­mót með hækkun vísi­tölu neyslu­verðs“.

Arðgreiðslur Seðlabankans til ríkissjóðs gætu aukist til muna á næstu árum verði lögum um þær breytt. Frumvarp um slíka breytingu var lagt fram 11. nóvember síðastliðinn. Arð­greiðslur Seðla­bank­ans til rík­is­sjóðs gætu auk­ist til muna á næstu árum verði lögum um þær breytt. Frum­varp um slíka breyt­ingu var lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sam­kvæmt frum­varp­inu mun við gild­is­töku lag­anna, verði þau sam­þykkt, verða„heim­ilt að lækka stofnfé rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands um 26 millj­arða króna“. Líkt og Kjarn­inn hefur þegar greint frá mun sú upp­hæð fara í að lækka skulda­bréf sem ríkið skuldar Seðla­bank­anum um 26 millj­arða króna, í 145 millj­arða króna. Sú aðgerð gerir það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins vegna skulda­bréfs­ins verða 8,1 millj­arður króna á næsta ári.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arð­greiðslu­regla geri „ráð fyrir því að auknar vaxta­tekjur vegna skulda­bréfs­ins skili sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagn­aður bank­ans verði greiddur til rík­is­sjóðs sé eigið fé bank­ans yfir skil­greindu við­mið­i“.

Með nýju arð­greiðslu­regl­unni gæt­u því vext­irnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðla­bank­ann skilað sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu í lok hvers árs.

Mikil breyt­ing frá því sem nú er



Um tölu­vert mikla breyt­ingu er að ræða. Í dag eru lögin þannig að þriðj­ungur alls hagn­aðar Seðla­bank­ans rennur í rík­is­sjóð. Með nýju arð­greiðslu­regl­unni mun allur hagn­aður Seðla­bank­ans yfir 52 millj­arða króna eig­in­fjársvið­miðið renna til rík­is­sjóðs. Fyrir utan vext­ina sem ríkið greið­ir, og fær svo til baka, þá gæti þessi hagn­aður verið tölu­vert mik­ill, m.a. vegna sölu á eignum sem Seðla­bank­inn eign­að­ist í hrun­inu. Þær eru í dag vistaðar í dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Eign­ar­safni Seðla­banka Íslands, og voru metnar á um 295 millj­arða króna í lok síð­asta ár á meðan að skuldir þess félags voru um 270 millj­arðar króna. Flestir sér­fræð­ingar telja að virði eign­anna sé van­metið og sala þeirra muni geta skilað Seðla­bank­anum háum fjár­hæðum þegar búið verður að gera upp skuld­ir. Þær fjár­hæðir gætu þá runnið í rík­is­sjóð.

­Með nýju arð­greiðslu­regl­unni mun allur hagn­aður Seðla­bank­ans yfir 52 millj­arða króna eig­in­fjársvið­miðið renna til ríkissjóðs.

Ef Seðla­bank­inn á hins­vegar slæmt ár, og eigið fé hans fer niður fyrir hið ákveðna við­mið, þá mun hagn­aður bank­ans fyrst fara í að ná því aftur upp fyrir áður en arður er greiddur til rík­is­sjóðs. Til­gang­ur­inn er að koma á betri reglu sem bregst fyrr við því hvernig eigið fé bygg­ist upp. Sam­hliða á Seðla­bank­inn að fá aðgang að meira eigin fé frá rík­is­sjóði, ef hann þarf á því að halda, í gegnum hluta­fjár- eða stofn­fjár­lof­orð sem yrði lög­bund­ið. Bank­inn gæti dregið á þetta fé án aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins eða Alþing­is. Heim­ildir Kjarn­ans herma að til standi að lögin muni gilda frá og með næstu ára­mót­um, verði þau sam­þykkt á Alþingi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None