Fjórtán hrunmál fullrannsökuð og bíða ákvörðunar um saksókn

10016453455-dc0239b163-z.jpg
Auglýsing

Alls eru fjórtán svokölluð hrun­mál full rann­sökuð hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og bíða þess að ákvörðun verði tekin um hvort sak­sótt verði í þeim eða ekki. Til við­bótar eru 24 slík mál í rann­sókn, og mörg þeirra mjög langt kom­ið. Búist er við ákvörðun um hvort ákært verði í flestum mál­anna á þessu ári.

Þetta kemur fram í svari emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um stöðu ýmissa mála hjá því.

Eng­inn sótti upp­haf­lega um



Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara var sett á fót eftir banka­hrun­ið. Upp­haf­lega var aug­lýst eftir sér­stökum sak­sókn­ara í des­em­ber 2008. Eng­inn sótti um. Ólafur Þór Hauks­son, þá sýslu­maður á Akra­nesi, var skip­aður í emb­ættið í jan­úar 2009 eftir að aug­lýst var aft­ur.

Emb­ættið átti upp­haf­lega að rann­saka grun um refsi­verða hátt­semi í aðdrag­anda, tengslum við og í kjöl­far atburða sem leiddu til banka­hruns­ins. Eftir birt­ingu skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í apríl 2010 var ljóst að af ýmsu yrði að taka hjá emb­ætt­inu. Árið 2011 var efna­hags­brota­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra síðan sam­einuð emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og við það flutt­ist rann­sókn og sak­sókn allra efna­hags­brota­mála, líka þeirra sem höfðu ekk­ert með hrunið að gera, til þess.

Auglýsing

Hrun­málin voru 200



Síðan þá hafa 667 mál komið inn á borð emb­ætt­is­ins. Af þeim eru um 200 svokölluð hrun­mál. Alls hefur 139 þeirra verið vísað frá, hætt við rann­sókn þeirra eða málin sam­einuð öðrum mál­um.

Í dag eru 64 mál í rann­sókn hjá sér­stökum sak­sókn­ara og 50 til við­bótar í því ferli að ákveða hvort sak­sótt verði í þeim eða ekki. Alls bíða 29 mál sem hafa verið kærð til emb­ætt­is­ins úthlut­unar í rann­sókn og í fjórum málum er verið að greina sak­ar­efn­ið.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, ásamt Stefáni Eiríkssyni, fyrrum lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, ásamt Stef­áni Eiríks­syni, fyrrum lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Af þessum fjölda eru 43 hrun­mál. Þrjú þeirra eru skráð í bið, tvö eru í grein­ingu, 24 í rann­sókn ( mörg þeirra langt kom­in) og fjórtán bíða ákvörð­un­ar­töku um sak­sókn.

Til við­bótar eru nokkur hrun­mál þegar fyrir dóm­stól­um. Alls eru sjö mál í dóms­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi og sjö mál eru í áfrýjun til Hæsta­rétt­ar. Í þeim sex hrun­málum sem dæmd hafa verið í í Hæsta­rétti hefur verið sak­fellt í fimm. Eina málið sem var sýknað í fyrir Hæsta­rétti var Vafn­ings­málið svo­kall­aða.

Ekki hægt að manna allar rann­sóknir



Í lok síð­asta árs var til­kynnt að emb­ættið hefði lokið rann­sókn á meintum umboðs­svikum fyrrum stjórn­enda og eig­enda trygg­inga­fé­lags­ins Sjó­vá. Nið­ur­staðan er að eng­inn verður ákærður og málið látið niður falla. Ákvörðun þess efnis var tekin skömmu fyrir jól. Þeir sem voru til rann­sóknar í mál­inu höfðu þá verið með stöðu grun­aðs manns í 65 mán­uði.

Fjár­fram­lög til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara voru skorin umtals­vert niður í fjár­lögum árs­ins 2015. Emb­ættið fær 291,4 millj­ónir króna á þessu ári en það fékk 561 milljón króna í fyrra. Ólafur Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, segir að skert fjár­fram­lög muni mögu­lega gera það að verkum að hætt veri við rann­sókn mála án þess að þau verði full rann­sök­uð. Auk þess mun rann­sókn mála sem þegar eru í rann­sókn mögu­lega drag­ast. „Á fjórtán mán­aða tíma­bili hefur fækkað um meira en helm­ing starfs­manna og að sama skapi hefur sér­fræð­ingum sem vinna við emb­ættið í verk­töku verið fækkað líka. Þetta mikil skerð­ing mun hafa áhrif þótt enn sé nokkuð snemmt að segja til hvers hún leiðir á end­an­um. Ljóst er þó að ekki hefur reynst unnt að manna allar þær rann­sóknir sem emb­ættið hefur með höndum eins og sakir standa nú.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None