Geymdi háleynileg gögn heima hjá sér

Meðal þess sem alríkislögreglan lagði hald á í húsleit á heimili Donalds Trump voru háleynileg gögn sem ekki má opna nema undir öryggisgæslu innan ríkisstofnana Bandaríkjanna.

Um er að ræða enn eitt skrefið í margþættri rannsókn á tilraunum Trump til þess að halda völdum.
Um er að ræða enn eitt skrefið í margþættri rannsókn á tilraunum Trump til þess að halda völdum.
Auglýsing

Mikið fjaðrafok varð í Banda­ríkj­unum á dög­unum þegar fregnir bár­ust af því að alrík­is­lög­reglan hefði farið inn á eitt heim­ila Don­alds Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, til þess að gera þar hús­leit. Trump og stuðn­ings­fólk hans fór hörðum orðum um stofn­un­ina, sem það sagði spillta öfga­stofnun undir stjórn vinstri­manna, en það virt­ist alveg gleym­ast í hama­gangnum að það var sjálfur Trump sem til­nefndi for­stjóra henn­ar, Christopher Wray.

Til að byrja með ná lokkur leynd yfir því hvað það var nákvæm­lega sem alrík­is­lög­reglan var að leita að í Mar-a-La­go, „vetr­ar­heim­ili for­set­ans“ í Flór­ída, en stutt er síðan hluti rétt­ar­hald­anna vegna árás­ar­innar á þing­húsið í Was­hington DC þar sem til­raun var gerð til að varpa hluta ábyrgð­ar­innar á for­set­ann fyrr­ver­andi stóðu yfir.

Auglýsing

Í gær gerði alrík­is­lög­reglan loks grein fyrir hús­leit­inni og því sem þar fannst. Um var að ræða aðgerð vegna rann­sóknar vegna gruns um brot á njósn­a­lög­gjöf­inni meðal ann­ars og lagði alrík­is­lög­reglan hald á ell­efu gagna­söfn, þar af nokkur sem inni­héldu háleyni­leg gögn, og önnur sem inni­héldu leyni­leg og við­kvæm gögn, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Sam­kvæmt lögum má aðeins geyma og bera augum háleyni­leg gögn innan öruggra veggja rík­is­stofn­ana Banda­ríkj­anna.

Um er að ræða enn eitt skrefið í marg­þættri rann­sókn á til­raunum hans til þess að halda völd­um. Ljóst þykir að hann er hald­inn alls kyns rang­hug­myndum um heim­ildir for­seta, nú eða fyrr­ver­andi for­seta, en ekki er um að ræða fyrsta dæmi þess að hann líti svo á að á gögn sem hann hafði yfir­sýn með sem for­seti til­heyri honum per­sónu­lega, þó kannski sé um að ræða alvar­leg­asta dæm­ið.

Þá þykir hús­leit þessi og það sem þar upp­götv­að­ist til marks um hversu háal­var­legir glæp­irnir sem for­set­inn fyrr­ver­andi er grun­aður um eru, en Trump þykir lík­legur til þess að bjóða sig aftur fram til for­seta í næstu for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent