Greiningaraðilar spá því að útboðsgengi Símans verði 28 prósent hærra en stjórnendur greiddu

siminn2.jpg
Auglýsing

Grein­ing­ar­að­ilar telja að útboðs­gengi í til­boðs­bók B hjá Sím­anum verði allt að 3,2 krónur á hlut, en útboði á 18-21 pró­sent hlut í honum lýkur á mið­viku­dag. Þar af verður 13-16 pró­sent selt í gegnum til­boðs­bók B. Þeir telja einnig að verðið muni hækka á næstu tólf mán­uðum í kjöl­far skrán­ingar Simans á mark­að, eru jákvæð­ir á kaup í útboð­inu og segja að færa með rök fyrir þvi að þátt­tak­endur í því fái að njóta frumút­boð­afslátt­ar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein­ingum IFS-­grein­ingar og Grein­ingar Íslands­banka á hluta­fjár­út­boði Sím­ans, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Í lok ágúst var hópi stjórn­enda í Sím­anum og völdum fjár­festum seldur fimm pró­sent hlutur í félag­inu fyrir 2,5 krónur á hlut. Miðað við efstu spá grein­ing­ar­að­ila hefur virði hlutar þeirra þegar hækkað um 28 pró­sent. Auk þess var völdum við­skipta­vinum í einka­banka­þjón­ustu Arion banka, selj­enda hlut­anna og umsjón­ar­að­ila útboðs­ins, seldur hlutur á geng­inu 2,8 krónur á hlut fyrir nokkrum dögum síð­an. Sá hlutur er orð­inn rúm­lega fjórtán pró­sent verð­mæt­ari í dag miðað við vænt útboðs­gengi.

Útboði lýkur á mið­viku­dag



Al­mennt útboð á 18-21 pró­sent hlut í eigu Arion banka í félag­inu hófst í dag á að ljúka á mið­viku­dag. Út­boðið fer þannig fram að um tvær til­boðs­bækur verður að ræða. Í þeirri fyrri, til­boðs­bók A, geti þeir skráð sig sem vilja kaupa hlut fyrir 100 þús­und krónur og upp að tíu millj­ónum króna. Þetta eru litlir fjár­fest­ar. Þeim býðst að bjóða á bil­inu 2,7 til 3,1 krónur á hlut. Tak­mark­aður hlutur er í boði og því gilda því vit­an­lega hæstu til­boð umfram önn­ur. Með öðrum orðum ætti til­boð upp á 3,1 krónur á hlut að duga áhuga­sömum fjár­festi til að eign­ast hlut í Sím­anum í útboð­inu. Í gegnum þessa til­boðs­bók ætlar Arion banki að selja fimm pró­sent hlut í Sím­an­um.

Seinni til­boðs­bók­in, til­boðs­bók B, er fyrir þá sem ætla að kaupa fyrir meira en tíu millj­ónir króna. Í gegnum hana fer stóra útboðið fram, enda eru þar til sölu 13 til 16 pró­sent hlutur í Sím­an­um.

Auglýsing

Þeir sem taka þátt í þess­ari leið eru aðal­lega fag­fjár­fest­ar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóð­ir. Í þess­ari leið er ekk­ert hámark á því hvað við­kom­andi fjár­festir getur skráð sig fyrir stórum hluta þess hluta­fjár sem er til sölu, en ef umfram­eft­ir­spurn verð­ur, sem er oft­ast í íslenskum hluta­fjár­út­boð­um, meðal ann­ars vegna eins­leits fjár­fest­inga­um­hverfis hag­kerfis í höft­um, mun sú upp­hæð skerð­ast. Í þess­ari leið er ein­ungis lág­marks­verð, 2,7 krónur á hlut, en ekk­ert hámarks­verð.

Vænt útboðs­gengi 3,2 krónur á hlut



Sér­fræð­ingar hafa und­an­farið verið að greina útboðið fyrir við­skipta­vini sína. Kjarn­inn hefur undir höndum tvær slíkar grein­ing­ar­skýrsl­ur. Sú fyrri er frá IFS-­grein­ingu. Sam­kvæmt henni býst IFS-­grein­ing við því að fjár­festar í til­boðs­bók B muni greiða 3,2 krónur á hlut í útboð­inu og að það verð sé sann­gjarnt. Þar segir einnig að sú grein­ing byggi á spá um að virði hlutar fari upp í 3,6 krónur á hlut innan árs. IFS eru jákvæðir á kaup í útboð­inu og segja að færa með rök fyrir þvi að þátt­tak­endur í því fái að njóta frumút­boð­afslátt­ar.

Hitt matið er frá Grein­ingu Íslands­banka. Sam­kvæmt því er verð­mats­gengi hlutar í Sím­anum 3,08 krónur á hlut, eða rétt við efra verð­bil til­boðs­bókar A, sem 3,1 krónur á hlut. Þetta verð­mat byggir á sjóð­streym­is­grein­ingu á Sím­anum miðað við 9,6 pró­sent ávöxt­un­ar­kröfu.

Búist er við því að fyrsti við­skipta­dagur Sím­ans á aðal­mark­aði Kaupa­hallar Íslands verði 15. októ­ber næst­kom­andi.

Stjórn­endur og valdir fjár­festar fengu að kaupa



Á síð­ustu vik­um, í aðdrag­anda útboðs­ins valdir aðil­ar, hópur fjár­festa, yfir­stjórn­endur Sím­ans og vild­ar­við­skipta­vinir Arion banka, fengið að kaupa hluti í Sím­anum á mun lægra verði en því sem grein­ing­ar­að­ilar spá að fjár­festar þurfi að greiða í útboð­inu.

Í ágúst siðast­lið­inum fékk félagið L1088 ehf. að kaupa fimm pró­sent hlut í Sím­anum á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Sá hópur var settur saman af Orra Hauks­syni, for­stjóra Sím­ans, og hann átti frum­kvæði að því að leita til Arion banka til að koma við­skipt­unum á. Að hópnum standa nokkrir erlendir fjár­festar með reynslu úr fjar­skipta­geir­anum og Orri. For­stjór­inn á alls 0,4 pró­sent hlut í Sím­anum og greiddi hann rúm­lega 100 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

Aðrir í yfir­stjórn Sím­ans fengu líka að kaupa hluti. Eign þeirra er þó öllu minni, en stjórn­end­urnir keypta alls fyrir um 1,8 milljón króna í eigin nafni. Þessum kaupum fylgja ákveðnar sölu­höml­ur. L1088 ehf, félag Orra og fjár­fest­anna, má ekki selja fyrr en í jan­úar 2017 og yfir­stjórn­end­urnir mega ekki selja fyrr en 1. mars 2016.

Á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var hjá Sím­anum skömmu eftir að á­kvörð­unin um að selja ofan­greindum hópi fimm pró­sent hlut var hand­salað að öllum fast­ráðnum starfs­mönnum myndi bjóð­ast að kaupa fyrir allt sex hund­ruð þús­und krónur á ári á geng­inu 2,5 krónur á hlut í þrjú ár. Þegar hafa 613 starfs­menn gert samn­inga um slík kaup fyrir sam­tals 1,1 millj­arð króna. Nýtt hlutafé verður gefið út vegna kaup­rétt­ar­á­ætl­unar starfs­manna. Við það þynn­ist hlutur ann­arra hlut­hafa, sem að mestu eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Hlutur þeirra sem fengu að kaupa á 2,5 krónur mun hafa hækkað um 28 pró­sent ef skrán­ing­ar­gengi Sím­ans verður það sem IFS-­grein­ing spáir að það verði, eða 3,2 krónur á hlut.

Síð­ari hluta sept­em­ber­mán­að­ar, nokkrum dögum áður en yfir­stand­andi hluta­fjár­út­boð hóf­st, fengu nokkrir valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut í Sím­anum á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Ekki hefur verið gefið upp hverjir fjár­fest­arnir eru. Þessi hópur má ekki selja hluti sína fyrr en 15. jan­úar 2016. Hlutur þessa hóps mun hafa hækkað um 14,3 pró­sent í verði á nokkrum dögum miðað við spá IFS-­grein­ingu um útboðs­gengi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None