Bankaráð Landsbankans var meðvitað um söluna á 31,2 prósent hlutnum í Borgun, fyrir 2,2, milljarða króna, og að hann hefði ekki farið í gegnum formlegt söluferli þar sem áhugasömum var boðið að bjóða í hlutinn. Ráðið taldi engu að síður rétt að selja hluti á þeim forsendum sem lagt var upp með, það er að selja ekki hlutinn í gegnum opið og gagnsætt söluferli heldur bak við luktar dyr til þess fjárfestahóps sem hafði sýnt áhuga á því að kaupa hlutinn. Landsbankinn hefur í yfirlýsingu sagt, að þetta hefði verið gert að yfirlögðu ráði, meðal annars þar sem bankinn hefur verið undir þrýstingi um að selja eignarhlutinn í fyrirtækinu. Þess í stað voru viðskiptin kláruð eftir að Magnús Magnússon, forsvarsmaður Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf., sem keypti hlutinn, hafði viðrað hugmyndina um kaupin á hlutnum, í samstarfi við stjórnendur Borgunar, við Landsbankann.
Landsbankinn er 98 prósent í eigu íslenska ríkisins.
Eins og Kjarninn greindi frá í fréttaskýringu 27. nóvember fór stofnfundur Eignarhaldsfélags Borgunar slf. fram 23. október síðastliðinn, rúmlega einum mánuði áður en viðskiptin voru kláruð með samningi, en tilkynnt var um þau með fréttatilkynningu frá Landsbankanum 25. nóvember. Viðskiptin höfðu þó verið í undirbúningi um nokkurra mánaða skeið samkvæmt heimildum Kjarnans, sem enn fremur herma að töluverð uppstokkun sé framundan hjá greiðslukortafyrirtækjunum hér á landi á næstunni, bæði hvað varðar eignarhald og rekstur.
Tryggvi Pálsson, formaður bankaráðs Landsbankans, vildi ekki tjá sig um mál sem snéru að viðskiptum með hlutinn í Borgun þegar Kjarninn náði tali af honum í dag, og vísaði til tilkynninga Landsbankans um málið og á stjórnendur Landsbankans varðandi frekari upplýsingar. Hann staðfesti þó að bankaráðið hefði haft vitneskju um viðskiptin og samþykkt þau áður en þau voru formgerð með samningi.
Stofnfé í A, B og C flokki
Landsbankinn er 98 prósent í eigu íslenska ríkisins, en starfsmenn bankans eiga um tvö prósent hlut.
Stofnfé Eignarhaldsfélags Borgunar nemur 500 þúsund krónum sem skiptist í þrjá flokka, 100 þúsund í A flokki, 395 þúsund í B flokki og fimm þúsund í C flokki. Þetta kemur fram í stofnsamningi félagsins sem Kjarninn hefur undir höndum. Í A og B flokki eru eigendur stofnfjár með takmarkaða ábyrgð en í C flokki er ótakmörkuð ábyrgð.
Einu eigendur A flokks stofnfjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hlutabréfa Eignarhaldsfélags Borgunar eru þrettán talsins, samkvæmt samningi um samlagsfélagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti einstaki eigandinn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lárusdóttir hefur stýrt ferðinni í áratugi, með 29,43 prósent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 prósent hlut, en eigendur þess eru Einar Sveinsson og sonur hans Benedikt Einarsson, í gegnum móðurfélagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúxemborg.
Þá á Pétur Stefánsson ehf. 19,71 prósent hlut, en forsvarsmaður þess var Sigvaldi Stefánsson á stofnfundi. Samanlagður eignarhlutur þessara þriggja stærstu eigenda nemur 68,85 prósentum af B flokki stofnfjár.
Á eftir þessum stærstu eigendum kemur félagið Vetrargil ehf. með 5,14 prósent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 prósent. Afganginn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stefánsson er í forsvari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geirfinnsdóttir er í forsvari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í forsvari, Framtíðarbrautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þráinsdóttir er í forsvari, Iðusteinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örnólfsson er í forsvari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Halldórsdóttir er í forsvari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sigurðsson er í forsvari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Kristjánsson er í forsvari.
Stofnfundur í október
Samkvæmt stofnfundargerð félagsins, frá 23. október síðastliðnum, voru fjórir einstaklingar mættir fyrir hönd félaganna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eigendur stofnfjár í C flokki með ótakmarkaða ábyrgð. Þau sem mættu á fundinn fyrir hönd félaganna voru Magnús Magnússon, Óskar V. Sigurðsson, Jóhann Baldursson og Margrét Gunnarsdóttir.
Miklar takmarkanir
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, lét hafa eftir sér í tilkynningu vegna þessara viðskipta að sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið árið 2008, hefði haft í för með sér miklar takmarkanir á aðkomu Landsbankans að félaginu. „Ennfremur hefur það verið markmið samkeppnisyfirvalda að aðeins einn banki sé hluthafi í hverju greiðslukortafyrirtæki á hverjum tíma. Þessi staða var óviðunandi fyrir Landsbankann og því teljum við þetta vera farsæla úrlausn fyrir bankann, félagið og nýja eigendur,“ sagði Steinþór í tilkynningu.