Félag í eigu starfsmanns Seðlabanka Íslands, sem hafði aðgang að trúnaðarupplýsingum, stóð í umsvifamiklum fjárfestingum með hlutabréf, framvirka samninga og gjaldmiðla á árunum 2007 og 2008. Upp komst um umsvif viðskipta félags mannsins sumarið 2013 og var honum sagt upp störfum nokkrum mánuðum síðar.
Hann höfðaði mál á hendur Seðlabankanum vegna uppsagnarinnar sem hann tapaði í héraðsdómi á fimmtudag. Starfsmenn Seðlabankans sem báru vitni í málinu sögði manninn hafa brotið gróflega trúnað, brotið gegn lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og brotið gegn reglum Seðlabankans um heimild starfsmanna hans til setu í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja.
Seðlabankinn hefur ekki gripið til neinna annarra aðgerða gagnvart manninum en að segja honum upp störfum. Mál hans er því ekki til rannsóknar.
Vann á gjaldeyrisborði en átti viðskipti með gjaldeyri
Seðlabanki Íslands var á fimmtudag sýknaður af kröfu fyrrum starfsmanns sem höfðaði skaðabótamál á hendur bankanum vegna þess hann taldi ólögmæta uppsögn. Maðurinn, Hallgrímur Ólafsson, vildi fá 19,7 milljónir króna frá bankanum vegna þess að honum var sagt upp starfi sínu í fyrra. Uppsögnin átti sér stað eftir að upp komst að félag sem maðurinn átti 30 prósent hlut í hefði farið út í fjárfestingar á árinu 2007, meðal annars á verðbréfamarkaði, með gjaldeyri og framvirka samninga um kaup á hlutabréfum. Samkvæmt ársreikningi átti félagið, Skólabrú hf., eignir upp á 120,5 milljónir króna í lok árs 2007.
Félagið hafði áður átt fasteign sem var seld haustið 2007 og söluágóðinn notaður í ofangreindar fjárfestingar.
Starfsmenn Seðlabankans, sem unnu með honum og gáfu vitnaskýrslur við aðalmeðferð, báru allir að hann hefði haft aðgang að trúnaðarupplýsingum sem engan veginn hafi getað samrýmst því að hann væri jafnframt framkvæmdastjóri félags sem hafi verið í umsvifamiklum fjárfestingum.
Hallgrímur hélt því fram fyrir dómi að hann, sem starfsmaður Seðlabankans, ekki haft neinn aðgang að markaðsupplýsingum umfram almenning og hvað þá að hann hafi búið yfir innherjaupplýsingum. Starfsmenn Seðlabankans, sem unnu með honum og gáfu vitnaskýrslur við aðalmeðferð, báru allir að hann hefði haft aðgang að trúnaðarupplýsingum sem engan veginn hafi getað samrýmst því að hann væri jafnframt framkvæmdastjóri félags sem hafi verið í umsvifamiklum fjárfestingum. Enginn þeirra virðist hafa hafa haft hugmynd um fjárfestingaumsvif Hallgríms fyrr en í fyrrasumar. Næsti yfirmaður hans sagði til dæmis fyrir dómi að „Meðal annars hafi Skólabrú ehf., í viðskiptum við Landsbankann í ágúst 2008, gert framvirkan hlutafjársamning um kaup í fyrirtækinu Atlantic petrolium, samningurinn hafi verið í dönskum krónum og sett hafi verið að handveði innistæða á evrugjaldeyrisreikningi. Á sama tíma hafi stefnandi verið að vinna á gjaldeyrisborði stefnda sem sé ótrúlegt. Því hafi stefnandi brotið gróflega trúnað gagnvart sér sem næsta yfirmanni sínum".
Umfang upplýst sumarið 2013
Aðallögfræðingur Seðlabankans komst að aðkomu mannsins að félaginu Skólabrú ehf. þegar hún var að vinna að fruminnherjalista Seðlabankans á árinu 2012. Hann var í kjölfarið beðinn um að gera Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og regluverði bankans grein fyrir félaginu og starfsemi þess. Kom þá í ljós að Skólabrú hf. hefði farið út í fjárfestingar í hlutabréfum, með gjaldeyri og framvirka samninga, eftir að hafa selt fasteign sem það átti á árinu 2007. Þar kom einnig fram að félagið ætti í deilum við slitastjórn Landsbankans og Virðingu vegna fjárfestinga sinna og að líklegt væri að málið myndi enda fyrir dómstólum. Hallgrímur sagði sig í kjölfarið úr stjórn félagsins eftir að seðlabankastjóri hafði hafnað bón hans um að sitja áfram í henni.
Í júní 2013 féll dómur í máli Skólabrúar hf. gegn Virðingu og var sá dómur birtur á vef dómstóla landsins. Málið snérist um að Skólabrú taldi Virðingu hafa farið út fyrir fjárfestingaheimildir sínar með fé félagsins og krafðist skaðabóta. Virðing var sýknuð af kröfu félagsins.
Í dómnum kemur hins vegar ýmislegt athyglisvert fram sem olli áhyggjum innan Seðlabankans. Þar segir meðal annars að Skólabrú hafi fjárfest í hlutabréfum og framvirkum samningum í félögum á borð við Atorku, Kaupþingi, Straumi-Burðarás og Existu
Í dómnum kemur hins vegar ýmislegt athyglisvert fram sem olli áhyggjum innan Seðlabankans. Þar segir meðal annars að Skólabrú hafi fjárfest í hlutabréfum og framvirkum samningum í félögum á borð við Atorku, Kaupþingi, Straumi-Burðarás og Existu. Í greinargerð Skólabrúar í málinu segir að Hallgrímur hafi sent tölvupóst í janúar 2008 þar sem hann vildi að öll samskipti Virðingar við Skólabrú ættu að fara fram við stjórnarformann Skólabrúar, ekki framkvæmdastjóra, sem var Hallgrímur sjálfur. Í dómnum segir að sú skýring hafi verið gefin á fyrirkomulaginu „að vegna starfa Hallgríms í Seðlabanka Íslands gæti hann ekki af „augljósum ástæðum“ staðið í símtölum eða kaupum á verðbréfum í vinnutíma[..] Hallgrímur hafi þó oft haft samband við [...] í farsíma hans“.
Í dómnum segir að sú skýring hafi verið gefin á fyrirkomulaginu „að vegna starfa Hallgríms í Seðlabanka Íslands gæti hann ekki af „augljósum ástæðum“ staðið í símtölum eða kaupum á verðbréfum í vinnutíma[..] Hallgrímur hafi þó oft haft samband við [...] í farsíma hans“.
Í greinargerðinni kemur líka fram að Hallgrímur hafi sjálfur hringt í þann starfsmann Virðingar sem sá um fjárfestingar fyrir Skólabrú til þess að óska „fyrir hönd stefnanda eftir kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. og að jafnframt yrðu gerðir framvirkir samningar um kaup á hlutabréfum í Exista hf. og Straumi-Burðarási hf.“. Á árinu 2008 hafi Hallgrímur síðan verið í beinum samskiptum fyrir hönd Skólabrúar við þáverandi starfsmann Virðingar um fjárfestingar Skólabrúar.
Kröfu mannsins um miskabætur vegna uppsagnar var hafnað í héraðsdómi á fimmtudag, 18. desember.
Sagt upp í október 2013
Dómar í málum Skólabrúar gegn þrotabúi Landsbankans og Virðingu gengu báðir á fyrri hluta ársins 2013 og voru báðir birtir opinberlega. Í sýknudómnum yfir Seðlabankanum, sem féll á miðvikudag, segir: „Urðu dómar þessir tilefni þess að stefnandi var kallaður á fund seðlabankastjóra þann 28. júní 2013 og honum afhent bréf undirritað af seðlabankastjóra og regluverði bankans. Í bréfinu kemur fram að þann 10. júní 2013 hafi gengið dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í málinu E-198/2012: Skólabrú ehf. gegn Virðingu hf. og dómurinn birtur á vefsíðu héraðsdómsins þann 26. júní sl. Í dóminum komi fram upplýsingar um aðkomu stefnanda að verðbréfa-, gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum Skólabrúar á árunum 2007 og 2008, sem framkvæmdastjóri Skólabrúar ehf. og jafnframt starfsmaður Seðlabanka Íslands á sama tíma.
Vísað var síðan til 5. gr. reglna stefnda nr. 831/2002 um meðferð trúnaðarupplýsinga og verðbréfa- og gjaldeyrisviðskipti starfsmanna. Þess var óskað af hálfu stefnda að stefnandi tæki sér tímabundið leyfi frá störfum á launum frá 28. júní 2013 á meðan athugað væri hvort stefnandi hefði gerst brotlegur í starfi við lög og starfsreglur stefnda. Síðan fór í gang rannsókn af hálfu stefnda á málinu og var m.a. aflað gagna frá utanaðkomandi aðilum sem stefnandi hafði veitt heimild til að afla gagna frá.“
Í október 2013 komst Seðlabankinn að þeirri niðurstöðu að Hallgrímur hefði brotið gróflega gegn lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem og gegn reglum Seðlabankans um heimild starfsmanna hans til setu í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja. Eftir að honum hafði verið gefið tækifæri til að andmæla var Hallgrími sagt upp störfum þann 23. október 2013 það sem það væri mat Seðlabankans að hann hefði „brotið gróflega gegn trúnaðarskyldum í starfi sínu“.
Hallgrímur sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og höfðaði skaðabótamál. Upphaflega fór hann fram á 47,6 miljónir króna í miskabætur. Við upphaf aðalmeðferðar var sú krafa síðan lækkuð niður í 19,7 miljónir króna. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði þeirri kröfu á fimmtudag.