Lestur Fréttablaðsins orðin 50 prósent - Prentmiðlar ráðandi á auglýsingamarkaði

frettablad.jpg
Auglýsing

Lestur Frétta­blaðs­ins, víð­lesn­asta dag­blaðs lands­ins, mæld­ist 50,01 pró­sent í sept­em­ber. Hann hefur aldrei mælst minn­i frá því að mæl­ingar á lestri blaðs­ins hófust. Frétta­blað­inu er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum inn á heim­ili lands­ins sex daga vik­unn­ar. Lestur Morg­un­blaðs­ins, stærsta áskrif­ar­blaðs lands­ins, lækkar einnig lít­il­lega á milli mán­aða en fækkun les­enda þess það sem af er ári er innan skekkju­marka. Lestur blaðs­ins hefur heldur aldrei verið lægri sam­kvæmt mæl­ing­um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Gallup á lestri prent­miðla sem birt var í gær.



Lestur DV, Frétta­tím­ans og Við­skipta­blaðs­ins hækk­aði lít­il­lega í síð­asta mán­uði en sú hækkun er í öllum til­fellum innan skekkju­marka. Við­skipta­blaðið er eini prent­mið­ill lands­ins sem virð­ist halda nokkuð stöð­ugum lestri þegar horft er yfir lengra tíma­bil. Sú þróun er í takt við það sem gerst hefur hjá sér­hæfð­ari syllu­miðlum í öðrum lönd­um, t.d. við­skipta­blað­inu Bör­sen í Dan­mörku.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður mjög sterk og lest­ur­inn hár í alþjóð­legum sam­an­burði. Hlut­fall þeirra aug­lýs­inga­tekna sem rata til prent­miðla hér­lendis er einnig mun hærra en ger­ist á flest öllum öðrum mark­aðs­svæð­um.

Auglýsing

Lestur lækkar mest hjá fólki undir fimm­tugu



Lestur allra prent­miðla lands­ins lækk­aði hjá fólki undir fimm­tugu í sept­em­ber. Aldrei áður hefur lestur ald­urs­hóps­ins 18 til 49 ára á DV (5,16 pró­sent) og Morg­un­blað­inu (17,38 pró­sent) verið lægri en í þeim mán­uði. Og mikið fall hefur verið í lestri þess ald­urs­hóps á Frétta­tím­anum á síð­ustu mán­uð­um. Í mars var hann 46,26 pró­sent en er nú 39,34 pró­sent, sem er það lægsta sem hann hefur nokkru sinni mælst. Lestur Frétta­tím­ans hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu hefur því dreg­ist saman um 15 pró­sent á hálfu ári.

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur fallið hraðar hjá fólki undir fimm­tugu á und­an­förnum árum en hjá eldri les­end­um. Þegar best lét árið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna Frétta­blaðið og hlut­fall les­enda undir fimm­tugu var nán­ast það sama, eða 63,75 pró­sent. Um mitt ár í fyrra var lest­ur­inn orð­inn 55,18 pró­sent hjá yngri hluta lands­manna og í sept­em­ber 2015 lásu 46,54 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu Frétta­blað­ið. Lestur blaðs­ins hjá ald­urs­hópnum hefur því dreg­ist sam­an­ um 27 pró­sent á fimm árum.

Stór hluti aug­lýs­inga til prent­miðla



Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um stöðu prent­miðla í sögu­legu sam­hengi í frétta­skýr­ingu í sept­em­ber. Þar kom fram að lestur þeirra hefur minnkað hratt á und­an­förnum árum. Þannig hefur heild­ar­lestur Morg­un­blaðs­ins dreg­ist saman um 35 pró­sent á sex árum, les­endum Frétta­blaðs­ins hefur fækkað um 22 pró­sent frá 2010 og lestur Frétta­tím­ans hefur aldrei verið lægri en hann er um þessar mund­ir­. Þá hefur lestur á DV aldrei verið lægri en hann mæld­ist í ágúst 2015 í 40 ára sögu blaðs­ins.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður afar sterk í alþjóð­legu sam­hengi og þeir taka enn til sín stóran hluta af ayg­lýs­inga­birt­ing­um. Í tölum sem H:N Mark­aðs­sam­skipti sendu frá sér í byrjun októ­ber um stöð­una á íslenskum aug­lýs­inga­mark­aði kom fram að um sjö til átta millj­arðar króna fari í aug­lýs­inga­birt­ingar á ári á Íslandi.



Sam­kvæmt tölum sem Fjöl­miðla­nefnd birti í sept­em­ber, og byggði á upp­lýs­ingum frá stærstu birt­ing­ar­húsum lands­ins, fer 37,4 pró­sent birt­ing­ar­fjár á Íslandi til prent­miðla, 29,7 pró­sent fer til sjón­varps­stöða og 15,4 pró­sent til útvarps­stöðva. Tæp­lega 15 pró­sent fer til birt­ingar á aug­lýs­ingum á vef. Þar af fer 12,3 pró­sent til inn­lendra vefja og 2,6 pró­sent til erlendra, sér­stak­lega Face­book og Google. Um 50-60 pró­sent af allir veltu á aug­lýs­inga­mark­aði fer í gegnum birt­ing­ar­hús.

Allt önnur þróun en í Bret­landi og Banda­ríkj­unum



Þessi þróun er mjög í and­stöðu við það sem er að ger­ast víð­ast hvar ann­ars­staðar í heim­in­um. Sam­kvæmt nýlegri spá eMar­keter mun birt­ingafé dreifast þannig í Bret­landi að meira fé verður varið í aug­lýs­ingar í snjall­símum og spjald­tölvum en í blaða­aug­lýs­ingar á þessu ári. Alls gerir spáin ráð fyrir að 20 pró­sent aug­lýs­inga­fjár fari í slíkar birt­ing­ar. Sam­kvæmt henni mun 49,6 pró­sent birt­ing­ar­fjár í Bret­landi fara til staf­rænna miðla á þessu ári og það hlut­fall mun vaxa upp í 57,5 pró­sent árið 2019. Á sama tíma gerir spáin ráð fyrir að prent­miðlar fái 16,4 pró­sent af heild­ar­kök­unni í ár og að það hlut­fall lækki niður í í 12,5 pró­sent árið 2019.

Í Banda­ríkj­unum gerir eMar­keter rá ðfyrir að um 38 pró­sent af birt­ing­arfé fari í sjón­varp á þessu ári, 31 pró­sent fari í staf­ræna miðla, tæp 16 pró­sent í prent­miðla og átta pró­sent í útvarp.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None