Leyniskjöl frá Wikileaks: Google afhenti stjórnvöldum tölvupósta starfsmanna

Screen-Shot-2015-01-25-at-21.12.51.png
Auglýsing

Google afhenti banda­rískum stjórn­völdum aðgang að tölvu­póstum og öðrum gögnum þriggja starfs­manna Wiki­leaks í tengslum við rann­sókn á Wiki­leaks og stofn­anda þess, Julian Assange. Blaða­menn­irnir sem um ræðir eru Sarah Harri­son, Jos­eph Farrel og Krist­inn Hrafns­son.

Þetta kemur fram í gögnum sem Wiki­leaks hefur undir höndum og birt­ast nú í Kjarn­anum einum íslenskra fjöl­miðla, ásamt völdum erlendum fjöl­miðl­um.

Sam­kvæmt skjöl­unum sem birt­ast nú, sem eru meðal ann­ars dóms­úr­skurðir um leit­ar­heim­ild­ir, bein­ist málið að „stofn­end­um, stjórn­endum og eig­endum Wiki­leaks.“ Leit­ar­heim­ild­irnar eru meðal ann­ars byggðar á grun um njósn­ir, sam­særi og þjófn­aði á eigum banda­rískra stjórn­valda, og telur Wiki­leaks að málið bein­ist að Julian Assange en mögu­lega einnig gegn fleiri starfs­mönnum Wiki­leaks.

Auglýsing

Lestu skjölin hér:

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Krist­ins Hrafns­sonar

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Sarah Harri­son

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Jos­eph Farrel

Bréf lög­manna Wiki­leaks til Google



Gríð­ar­lega miklar upp­lýs­ingar látnar af hendi



Eftir dóms­úr­skurð lét Google banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni, FBI, í té öll gögn tengd reikn­ingum blaða­mann­anna þriggja hjá Google. Á meðal gagn­anna eru allir tölvu­póstar þeirra og allt sem þeim teng­ist, þar með talið allir eyddir póstar og drög að póstum sem og upp­lýs­ingar um hvenær og hvert póstar voru sendir og hversu stórir og langir þeir voru.

Þá fengu stjórn­völd fullt nafn, heim­il­is­fang, síma­númer og ann­ars konar auð­kenni sem tengd­ust reikn­ingum þeirra, gögn um það hversu oft og lengi þau not­uðu reikn­ing­ana, IP-­tölur sem not­aðar voru til að kom­ast inn á þá og banka- og kredit­korta­upp­lýs­ing­ar. Einnig var veittur aðgangur að daga­töl­um, myndum og skjölum sem tengd­ust Goog­le-­reikn­ing­um.

Fengu ekk­ert að vita í tæp þrjú ár



Kristinn Hrafnsson og Julian Assange. Krist­inn Hrafns­son og Julian Assange.

Google greindi blaða­mönn­unum frá aðgerð­unum gegn þeim þann 23. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­kvæmt skjöl­unum voru leit­ar­heim­ild­irnar þó sam­þykktar tæpum þremur árum fyrr, eða þann 22. mars 2012, af John F. And­er­son, dóm­ara í Alex­andriu í Virg­in­íu-­fylki í Banda­ríkj­un­um. And­er­son þessi gaf út hand­töku­skipun á hendur upp­ljóstr­ar­anum Edward Snowden á sínum tíma. Google þurfti sam­kvæmt úrskurð­inum að afhenda lög­reglu gögnin um blaða­menn­ina fyrir 5. apríl sama ár.

Fyr­ir­tækið seg­ist í bréfum sem send voru til blaða­mann­anna þriggja þann 23. des­em­ber að sam­kvæmt úrskurð­inum hafi það ekki mátt greina þeim frá því að aðgangur var veittur að öllum gögnum þeirra þegar það átti sér stað. Nú hafi hins vegar annar úrskurður geng­inn þar sem fyr­ir­tæk­inu hafi verið heim­ilað að segja frá mál­inu. Þó virð­ist ekki vera ljóst hvenær nákvæm­lega fyr­ir­tækið mátti segja þeim frá mál­inu.

Krefj­ast upp­lýs­inga um málið



Lög­menn Wiki­leaks og blaða­mann­anna þriggja hafa sent Google bréf þar sem þess er kraf­ist að þre­menn­ing­arnir fái allar upp­lýs­ingar um mál­ið, hvað banda­rísk stjórn­völd fengu nákvæm­lega frá Google og hvers vegna þeim var ekki greint frá mál­inu fyrr. Einnig hvort ein­hverjar aðrar kröfur hafi komið fram frá stjórn­völdum um að veita upp­lýs­ingar um blaða­menn­ina.

Þá er þess kraf­ist að Google upp­lýsi um það hvort fyr­ir­tækið hafi gert ein­hverjar til­raunir til að hnekkja dóms­úr­skurð­inum til þess að þurfa ekki að veita aðgang að gögn­unum eða að mega láta blaða­menn­ina vita af mál­inu.

Sarah Harrison Sarah Harri­son.

Bent er á það í bréf­inu að sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter hafi barist fyrir því að upp­lýsa fólk tengt Wiki­leaks um það þegar banda­rísk stjórn­völd vildu aðgang að reikn­ingum þeirra á miðl­inum árið 2011. Julian Assange, stofn­andi Wiki­leaks, hafi komið þessum ábend­ingum á fram­færi við for­svars­menn Google og óskað eftir því að fyr­ir­tækið gerði slíkt hið sama. Það hafi því komið á óvart að fyr­ir­tækið hafi ekki brugð­ist við þessu.

Wiki­leaks segir banda­rísk stjórn­völd beina spjótum sínum að blaða­mönnum með þessum aðgerðum og lík­lega hafi útgáfa aldrei verið rann­sökuð með svo umfangs­miklum hætti og verið hefur með Wiki­leaks. Saka­mála­rann­sókn hefur verið í gangi í meira en fjögur ár. Rann­sókn­inni á Wiki­leaks hefur verið mót­mælt af blaða­mönnum og mann­rétt­inda­sam­tök­um. Í júní síð­ast­liðnum hvöttu rúm­lega fimm­tíu sam­tök til þess að málið yrði látið niður falla, enda gæti áfram­hald­andi rann­sókn á Wiki­leaks gert frétta­öflun að glæp og gert alla blaða­menn og rit­stjóra ber­skjald­aða fyrir mál­sókn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None