Ný útlán lífeyrissjóða til íbúðarkaupa, að frádregnum upp- og umframgreiðslum, í janúar námu 1,9 milljarði króna. Það er hæsta fjárhæð sem þeir hafa lánað innan eins mánaðar til íbúðarkaupa síðan í mars 2020, þegar kórónuveirufaraldurinn skall af fullum krafti á Ísland.
Viðsnúningur hefur verið á útlánum lífeyrissjóðanna til sjóðsfélaga sinna vegna íbúðarkaupa frá því seint á síðasta ári. Frá júnímánuði árið 2020 og út október í fyrra, alls í 16 mánuði, þá voru upp- eða umframgreiðslur lána sjóðanna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 milljarða króna umfram ný lán á tímabilinu. Frá byrjun nóvember og út janúarmánuð lánuðu lífeyrissjóðirnir hins vegar 5,1 milljarð króna meira en upp- og umframgreiðslur. Þar munaði mestu um aukinn áhuga lántakenda á óverðtryggðum lánum, en þeir tóku 10,5 milljarða króna af nýjum slíkum lánum á tímabilinu á meðan að verðtryggð lán voru greidd upp fyrir 5,4 milljarða króna.
Ástæðan liggur í stóraukinni verðbólgu, sem mælist nú 6,2 prósent, en hún gerir verðtryggð lán verulega óhagstæð sem stendur.
Bankarnir sópuðu til sín markaðnum
Bankarnir tóku yfir íslenska íbúðarlánamarkaðinn eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á. Það sem gerði þeim það kleift voru aðgerðir Seðlabanka Íslands, sem lækkaði stýrivexti niður í 0,75 prósent og afnam tímabundið hinn svokallaða sveiflujöfnunarauka, og ríkisstjórn Íslands, sem lækkaði bankaskatt þannig að tekjur ríkissjóðs af honum rýrnuðu um sex milljarða króna á ári.
Frá mars 2020 og fram í janúar síðastliðinn jukust hrein ný útlán Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka, með veði í íbúð, um 610 milljarða króna. Markaðshlutdeild bankanna í öllum útistandandi lánum til íbúðarkaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 prósent.
Þessi miklu útlánavöxtur myndaði grunninn að gríðarlegum hagnaði bankanna þriggja í fyrra, sem samtals var 81,2 milljarðar króna. Hann hafði líka mikil ruðningsáhrif á húsnæðisverð sem hefur hækkað um tugi prósenta á skömmum tíma.
Bjóða nú upp á miklu lægri vexti sem hækka hægar
Frá mars 2020 og út október í fyrra drógust útlán lífeyrissjóðanna til íbúðarkaupa, að frádregnum upp- og umframgreiðslum, saman um 64 milljarða króna og markaðshlutdeild þeirra skrapp skarpt saman.
Frá þeim tíma hefur orðið umtalsverður viðsnúningur. Þar skiptir sennilega mestu að Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, ákvað í haust að stofna nýjan lánaflokk sjóðsfélagalána og lánar nú óverðtryggð lán til íbúðarkaupa með breytilegum vöxtum.
Um er að ræða þá tegund lána sem notið hefur mestra vinsælda hjá íslenskum húsnæðiskaupendum síðastliðin ár. Vextirnir eru nú mun betri en þeir bestu sem bankarnir bjóða upp á og þeir hækka ekki jafn skarpt og hjá bönkunum, sem elta hverja tilkynnta stýrivaxtahækkun. Frá því að nýi lánaflokkurinn var tilkynntur í október í fyrra hafa vextir einungis verið hækkaðir einu sinni, og sú hækkun tók gildi í febrúar 2022. Sem stendur eru vextir á breytilegum óverðtryggðum vöxtum hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna 4,13 prósent á grunnláni á meðan að þeir eru 4,7 prósent hjá Landsbankanum, sem hefur verið allra banka stórtækastur á íbúðalánamarkaði undanfarin tvö ár.
Lífeyrissjóðirnir njóta þess fram yfir banka að bera engan kostnað vegna fjármögnunar. Bankar þurfa að fá lánaða peninga, annað hvort hjá viðskiptavinum sínum í formi innlána eða frá fjárfestum með skuldabréfaútgáfu, og greiða vexti af því fé. Lífeyrissjóðir eru áskrifendur að fé almennings sem flæðir inn í hirslur þeirra um hver áramót án vaxta, þótt krafa sé gerð um að þeir ávaxti það fé. Það gefur sjóðunum tækifæri á að bjóða upp á betri viðskiptakjör.