Í frumvarpi til fjáraukalaga, sem birt var í dag, kemur fram að afkoma ríkissjóðs verður um 60 milljörðum krónum betri í ár en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Í stað þess að hallinn á rekstri hans verði 186 milljarðar króna stefnir nú í að hann verði 126 milljarðar króna. Ástæða þessa er fyrst og síðast rakin til aukinna tekna af skattheimtu og tryggingagjöldum, en þær eru um 100 milljörðum króna hærra en gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið 2022. Þessi aukning hefur verið drifin áfram af mikilli fjölgun ferðamanna og vexti í einkaneyslu landsmanna í kjölfar kórónuveirufaraldursins, þegar sparnaður stórjókst í ljósi þess að tækifærum til eyðslu fækkaði mikið vegna samgöngu- og umgengnistakmarkana. Há verðbólga eykur líka tekjur ríkissjóðs til skamms tíma.
Í frumvarpi til fjáraukalaga er ekki bara að finna upplýsingar um minnkandi halla á rekstri ríkissjóðs. Megininntak frumvarpsins eru tillögur um viðbótarheimildir í upp á 74,7 milljarða króna eyðslu. Þar munar langmestu um 37 milljarða króna vegna endurmetinnar þarfar um vaxtagjöld ríkissjóðs, sem eru tilkomin vegna áhrifa verðbólgu á verðtryggðar skuldir ríkissjóðs.
Þá eru óskað eftir 16,6 milljarða króna viðbótarheimildum vegna kórónuveirufaraldursins, að uppistöðu vegna aukins rekstrarkostnaðar heilbrigðisstofnana sem taka til sín 15 af þeim milljörðum króna.
Fjölgun flóttamanna kostar umtalsvert
Fyrir liggur að það þurfi að eyða 4,9 milljörðum króna í svokallaðar efnahagslegar aðgerðir, en til þeirra teljast 2,2 milljarða króna styrkir til landbúnaðar, þriggja prósenta hækkun bóta almannatrygginga sem kostar 1,6 milljarð króna og barnabótaauki upp á 1,1 milljarð króna. Tveir síðastnefndu útgjaldaliðirnir eru vegna sérstakra efnahagsaðgerða sem kynntar voru í vor til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins.
Viðbótarkostnaður vegna húsakaupa og endurgreiðslna
Einn liðurinn í fjáraukalögunum kallast einfaldlega „önnur útgjaldatilefni“. Þar er meðal annars að finna 2,9 milljarða króna viðbótarútgjöld vegna hæstaréttardóms sem féll fyrr á árinu og sagði að óheimilt væri að skerða framfærsluuppbót örorku- og ellilífeyrisþega á þeim forsendum að þeir hafi búið hluta starfsævi sinnar erlendis.
Stærsti nýi kostnaðarliðurinn sem fellur þar undir er þó sex milljarða króna eyðsla í kaup á hluta af nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Austurbakka. Þar á að koma fyrir utanríkisráðuneytinu auk þess sem hluti þess verður nýtt undir sýningar- og menningartengda starfsemi á vegum Listasafns Íslands, og er þá einkum horft til samtímalistar.
Annað mál sem verið hefur nokkuð í umræðunni á þessu ári er ákvörðun stjórnvalda að hækka endurgreiðslu vegna framleiðslukostnaðar kvikmyndaframleiðenda úr 25 í 35 prósent fyrir stærri verkefni. Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp Lijlu D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um málið í maí og það var afgreitt sem lög frá Alþingi um miðjan júní. Innan kvikmyndageirans er almennt talið að framlagningu frumvarpsins hafi verið flýtt til að tryggja að framleiðsla á fjórðu þáttaröð True Detective færi fram hér á landi, en umfang þess er metið á níu milljarða króna.
Þegar frumvarpið var til umfjöllunar í atvinnuveganefnd snemma í sumar skilaði fjármála- og efnahagsráðuneytið inn minnisblaði þar sem gagnrýnt var að frumvarpið væri ófjármagnað og að skortur hefði verið á samráði við samningu þess. Í minnisblaðinu var bent á kostnaðaráhrif frumvarpsins, um ófjármagnað frumvarp sé að ræða og fjárheimildir væru því ekki til staðar til að mæta þeim kostnaðarauka sem frumvarpið hefði í för með sér. Í umræðum á þingi sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, frá því að hann hefði vakið athygli á því við ríkisstjórnarborðið að útgjaldaliðurinn, sem vistaður væri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu hefði ekki nægilegt svigrúm til að fullnægja þeirri þörf sem myndi skapast fyrir endurgreiðslur.
Það kom enda í ljós og í fjáraukalagafrumvarpinu þarf að leggja tæplega 1,8 milljarð króna til í umframútgjöld vegna endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar.