Olíustörfum fækkar hratt í Noregi og Skotlandi

000-Par1126486.jpg
Auglýsing

Olíu­verðs­lækk­unin und­an­farnar vikur hefur nú þegar haft mikil áhrif á umsvif í þjón­ustu­tengdum greinum sem tengj­ast olíu­iðn­aði í Nor­egi og Skotlandi. Verð á norð­ursjáv­ar­olíu er enn lágt, eða um 56 USD/fat­ið. Mörg fyr­ir­tæki sem gera út skip sem þjón­usta olíu­bor­p­alla í Norð­ur­sjónum hafa lent í hremm­ingum síð­ustu vik­ur. Ytri aðstæður hafa breyst hratt til hins verra.  Verð sem stóru olíu­fé­lögin greiða í skamm­tíma­verk­taka­samn­inga við fyr­ir­tækin sem gera út þjón­ustu­skipin hafa lækkað hratt und­an­far­ið. Algengt sól­ar­hrings­verð til olíu­þjón­ustu­skipa er nú um 4.000 pund en var um 14.000 pund ­fyrir ein­ungis sex vikum síðan (pund = 197 íslenskar krón­ur).

7.000 störf horfin í Nor­egi



Vegna ástands­ins hafa olíu­fyr­ir­tækin sem starfa í Norð­ur­sjónum í ein­hverjum til­fellum slegið verk­efnum á frest á meðan olíu­verð er svo lág­t.  Þjón­ustu­fyr­ir­tækin hafa sum hver brugð­ist við þessu með því að fresta pönt­unum á nýjum skip­um. Í nýlegu við­tali við Åge Remöy fram­kvæmda­stjóra REM Offs­hore í Álasundi við tíma­ritið Maritime.no kemur fram að um 46 skip sem gerð eru út frá Stavan­ger, Bergen, Ader­deen og öðrum höfnum hafa verið verk­efna­lítil und­an­farnar vikur vegna ástands­ins á olíu­mörk­uð­um. Að sögn Åge munu aðstæður áfram verða krefj­andi á næst­unni. Verð á bréfum fyr­ir­tækja í þjón­ustu við olíu­iðn­aði í Kaup­höll­inni í Osló hefur lækkað frá því olíu­verðið hrundi.

Sam­kvæmt frétta­síð­unni Skips­Magasinet.no hafa alls 7.000 störf horfið í olíu­iðn­aði í Nor­egi í haust og vet­ur. Statoil, þar sem norkska ríkið er stærsti eig­and­inn með tæp­lega 70 pró­sent hlut, eitt og sér hefur skorið niður á milli 1.600 til 1.900 störf. Sér­fræð­ingar á norska olíu­mark­aðnum ótt­ast að fleiri störf muni glat­ast á næst­unni. Allt hangir þetta á olíu­verðs­þró­un­inni á kom­andi mán­uð­um.

Rússar hafa  stutt Assad-stjórnina mjög ákaflega og er það vegna viðskiptahagsmuna landsins við stjórnina í Sýrlandi. Á hinn bóginn hafa uppreisnarmenn í Sýrlandi, sem samanstanda að mestu af súnní-múslímum, hlotið mikinn stuðning frá stjórn súnní-múslíma í Sádí-Arabíu. Sádarnir eru orðnir þreyttir á ástandinu í Sýrlandi og beina núna sjónum sínum að Rússum og Írönum. Olíu­iðn­að­ur­inn í heim­inum hefur gengið í gegnum erf­ið­leika, eftir að verð á olíu féll úr 110 Band­ríkja­dölum í um 60 Banda­ríkja­dali, á ein­ungis átta vik­um. Sér­stak­lega hefur þetta verið erfitt fyrir Norð­emnn og Rússa.

Auglýsing

Fáfnir Offs­hore siglir þennan ólgu­sjó



Eitt fyr­ir­tæki sem teng­ist Íslandi starfar á hinum við­kvæma þjón­ustu­skipa­mark­aði við olíu­iðn­að­inn, Fáfnir Offs­hor­e.  Fyr­ir­tækið gerir út nýlegt skip, Pol­ar­sys­sel, til að þjón­usta olíu­bor­p­alla á norsku haf­svæði. Að hluta til reiðir Fáfnir Offs­hore sig á skamm­tíma­leigu­mark­að­inn og því má ætla að þessar breyttu aðstæður á mörk­uðum muni hafa nei­kvæð áhrif á rekstur þess eins og ann­arra sam­bæri­legra fyr­ir­tækja. Fyr­ir­tækið er hins vegar með sex ára samn­ing við sýslu­mann­inn á Sval­barða, um gæslu­störf í sex mán­uði á hverju ári. Helstu eig­endur Fáfnir Offs­hore eru Stein­grímur Erlings­son og fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir Horn II, sem er í stýr­ingu hjá Lands­bank­an­um, og Akur, sem er í stýr­ingu hjá Íslands­banka, á­samt smærri hlut­höf­um. Þá tók Íslands­banki þátt í að fjár­magna Pol­ar­sys­sel, en heildar kostn­að­ur­inn við smíði þess nam um 7,3 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None