Seðlabankinn selur félag troðfullt af fasteignum og útlánum sem metin eru á milljarða króna

15367564864-a2c806a43e-z.jpg
Auglýsing

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag aug­lýsti Seðla­banki Íslands dótt­ur­fé­lag sitt Hildu ehf. til sölu. Það fór ekki mikið fyrir aug­lýs­ing­unni, sem birt­ist meðal ann­ars í Við­skipta­blað­inu, og litlar upp­lýs­ingar komu fram í henni um þær eignir sem í félag­inu eru.

Hilda hefur hins vegar leikið stórt hlut­verk í upp­gjöri Seðla­bank­ans við banka­hrunið und­an­farin ár, ásamt móð­ur­fé­lagi sínu Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ). Inn í þessi félög hefur þeim fulln­ustu­eignum og upp­gjörs­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur leyst til sín verið hrúg­að. Í til­felli Hildu eru aðal­lega um fast­eignir og útlán að ræða, en sam­an­lagt bók­fært virði eign­anna er um 15 millj­arðar króna. Vegna þessa eru félögin tvö oft kölluð "ruslakist­ur" Seðla­bank­ans í hálf­kær­ingi.

Og nú á að selja þetta félag, sem er fullt af eignum sem teknar hafa verið upp í hrunskuld­ir, úr opin­berri eigu til einka­að­ila. Einka­væð­ing er að fara að eiga sér stað.

Auglýsing

Var stofnað utan um rík­is­skuld Sögu



Við banka­hrunið var Seðla­banki Íslands tækni­lega gjald­þrota. Íslenska ríkið tók yfir mörg hund­ruð millj­arða króna skuldir hans og afskrif­aði. Þær kröfur sem urðu til vegna þess­arra skulda voru síðan færðar aftur til Seðla­bank­ans árið 2009 svo hægt væri að end­ur­heimta eitt­hvað af því tapi sem rík­is­sjóður hafði tekið á sig vegna hruns­ins.

Ákveðið var að stofna sér­stakt dótt­ur­fé­lag utan um þessar him­in­háu kröf­ur. Sum­arið 2011 tók ESÍ yfir félag sem heitir Hilda. Það hafði verið sett á fót til að halda utan skuld Saga Capi­tal við rík­is­sjóð, en hann hafði veitt bank­anum 19,6 millj­arða króna fyr­ir­greiðslu í mars 2009. Sú fyr­ir­greiðsla dug­aði ekki til að halda Sögu á lífi og Hilda end­aði í fangi ESÍ.

Síðan þá hefur Hilda leikið stórt hlut­verk í „við­skipt­um“ ESÍ.

Tók við fullt af eignum frá Dróma



Í lok árs 2013 var hluti eigna og skulda hins alræmda félags Dróma hf. (eigna­safns SPRON og Frjálsa fjár­fest­inga­bank­ans) fært til Hildu. Um var að ræða fyr­ir­tækja­lán og fulln­ustu­eignir Dróma, meðal ann­ars það íbúða­hús­næði sem félagið hafði gengið að á starfs­tíma sín­um. Ein­stak­lings­lán Dróma fóru hins vegar til Arion banka.

Við þessa breyt­ingu juk­ust eignir Hildu mik­ið. Allt í einu voru bók­færðar eignir félags­ins metnar á 32,5 millj­arða króna. Stór hluti þeirra voru mynda­legt fast­eigna­safn, en það verður að telj­ast afar óvenju­leg staða fyrir seðla­banka að eiga stórt safn fast­eigna. Kjarn­inn fjall­aði um umsvif Hildu á fast­eigna­mark­aði í apríl 2014. Í þeim kom fram að Hilda héldi á þeim tíma á 350 fast­eign­um,  250 íbúðum og um 100 fast­eignum sem telj­ast til atvinnu­hús­næð­is. Hluti íbúð­anna vöru í útleigu, aðrar voru í sölu­ferli og sumar voru ekki í íbúð­ar­hæfu ástandi. Á þessum tíma var því komin upp sú sér­staka staða að Seðla­banki Íslands var, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt, að selja íbúðir á mark­aði. Í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans í apríl 2014 kom enn fremur fram að Hilda kapp­kost­aði að selja eignir ekki of hratt „þar sem slíkt gæti haft mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn og jafn­vel stuðlað að lækkun fast­eigna­verðs.“

Samkvæmt upplýsingum sem Kjarninn hefur undir höndum skiptast eignir Hildu þannig að í félaginu eru nú 364 fasteignir sem metnar eru á 6,6 milljarða króna, 387 útlán (til 260 lántakenda) og önnur skuldabréf sem metin eru á 5,7 milljarða króna og handbært fé/kröfur upp á 2,9 milljarða króna. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur undir höndum skipt­ast eignir Hildu þannig að í félag­inu eru nú 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/­kröfur upp á 2,9 millj­arða króna.

Hund­ruð fast­eigna og millj­arða virði



Ljóst er að Hildu hefur gengið ágæt­lega að selja eignir und­an­farin ár. Um mitt þetta ár voru eignir félags­ins komnar niður í 15,4 millj­arða króna, og höfðu lækkað um 17,1 millj­arð króna á einu og hálfu ári.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur undir höndum skipt­ast eignir Hildu þannig að í félag­inu eru nú 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/­kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekj­ur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Þarft að eiga 750 millj­ónir til að taka þátt



Og nú á að selja allt hlutafé Hildu. Í því ferli gengur Seðla­bank­inn út frá því að láns­fjár­mögnun hans til Hildu, alls 12,6 millj­arðar króna, verði greidd upp til við­bótar við greiðslu fyrir hlutafé félags­ins. Því er ljóst að kaup­verðið mun hlaupa á millj­örðum króna og ekki á hvers manns færi að taka þátt í sölu­ferl­inu.

Arion banki sér um söl­una. Sam­kvæmt skil­yrðum sem sett hafa verið fyr­ir  þátt­töku í sölu­ferl­inu þurfa fjár­festar að sýna fram á að þeir eigi að lág­marki 750 millj­ónir króna sem þeir geti nýtt til fjár­fest­ingar í félag­inu til að fá að taka þátt. Stefnt er að því að þeir sem upp­fylla skil­yrði sölu­ferl­is­ins fái afhent frek­ari gögn, svo sem árs­reikn­inga og fjár­festa­kynn­ingu, þann 10. sept­em­ber 2015.

Þótt Hilda selj­ist þá er upp­gjöri Seðla­bank­ans á hrun­inu fjarri því lok­ið. ESÍ er enn í fullu fjöri og eignir félags­ins voru metnar á 209 millj­arða krona um síð­ustu ára­mót. Þeim á enn eftir að koma í verð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None