Tveir uppljóstrarar í hrunmálum hafa samið sig frá ákæru

10016453455-dc0239b163-z.jpg
Auglýsing

Tveir menn hafa fengið rétt­ar­vernd gegn ákæru í hrun­málum þar sem upp­lýs­ingar benda til þess að þeir hafi brotið af sér, gegn því að þeir veiti sak­sókn­ara upp­lýs­ingar sem styrki mála­til­búnað hans. Annar mann­anna, Rós­ant Már Torfa­son, hlaut slíka rétt­ar­vernd árið 2009. Hinn, Magnús Pálmi Örn­ólfs­son, hlaut rétt­ar­vernd­ina með bréfi frá rík­is­sak­sókn­ara í febr­úar 2014. Hann hafði áður haft rétt­ar­stöðu grun­aðs manns í Stím-­mál­inu svo­kall­aða. Ákæra var gefin út í Stím-­mál­inu 10. febr­úar 2014, strax í kjöl­far þess að Magnús Pálmi hlaut rétt­ar­vernd.

Tveir upp­ljóstr­arar samið sig frá ákæru



Í lögum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara frá árinu 2008 er að finna svo­kallað upp­ljóstr­ar­a­á­kvæði. Þar segir að skil­yrði fyrir veit­ingu rétt­ar­verndar séu að „talið sé lík­legt að þessar upp­lýs­ingar eða gögn geti leitt til rann­sóknar eða sönn­unar á broti eða séu mik­il­væg við­bót við fyr­ir­liggj­andi sönn­un­ar­gögn. Þá er það skil­yrði fyrir beit­ingu þess­arar heim­ildar að rök­studdur grunur sé um að upp­lýs­ingar eða gögn teng­ist alvar­legu broti, fyr­ir­séð sé að sök þess sem lætur slíkt í té sé mun minni en sök þess eða þeirra sem gögnin eða upp­lýs­ing­arnar bein­ast gegn og ástæða sé til að ætla að án þeirra muni reyn­ast tor­velt að færa fram full­nægj­andi sönnur fyrir brot­i“.

Í svari Helga Magn­úsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara kemur fram að tveir ein­stak­lingar hafi fengið rétt­ar­vernd og sleppi þar af leið­andi við ákæru í málum þar sem upp­lýs­ingar benda til að þeir hafi sjálfir brotið af sér

Ekki hefur áður verið upp­lýst opin­ber­lega um hversu margir hafi fengið vernd frá sak­sókn á grund­velli upp­ljóstr­ar­a­á­kvæð­is­ins. Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn um málið til emb­ættis rík­is­sak­sókn­ara og emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Í svari Helga Magn­úsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara kemur fram að tveir ein­stak­lingar hafi fengið rétt­ar­vernd og sleppi þar af leið­andi við ákæru í málum þar sem upp­lýs­ingar benda til að þeir hafi sjálfir brotið af sér, vegna þess að þeir hafa haft frum­kvæði að því að bjóða eða láta sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ing­ar.

Auglýsing

Aurum og Stím



Menn­irnir tveir sem hafa fengið þessa rétt­ar­vernd heita Rós­ant Már Torfa­son og Magnús Pálmi Örn­ólfs­son. Þeir störf­uðu báðir hjá Glitni fyrir hrun. Rós­ant var meðal ann­ars fjár­mála­stjóri Glitnis síð­ustu mán­uð­ina áður en bank­inn fór á haus­inn. Hann fékk upp­haf­lega rétt­ar­vernd í Aur­um-­mál­inu svo­kall­aða árið 2009 en hefur einnig tengst fleiri málum sem hafa verið til rann­sóknar hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Aur­um-­málið snýst um sex millj­arða króna lán Glitnis til félags­ins FS38 ehf. sem notað var til að kaupa eign­ar­hlut Fons í félag­inu Aur­um. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Lárus Weld­ing, Magnús Arnar Arn­gríms­son og Bjarni Jóhann­es­son voru ákærðir í mál­inu í des­em­ber 2012. Þeir voru allir sýkn­aðir í hér­aðs­dómi í júní síð­ast­liðn­um. Þeirri nið­ur­stöðu hefur verið áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.

Magnús Pálmi var for­stöðu­maður gjald­eyr­is­miðl­unar Glitnis fyrir banka­hrun. Hann hafði stöðu grun­aðs manns í rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á Stím-­mál­inu svo­kall­aða, sem snýst um tug­millj­arða króna lán Glitnis til eign­ar­halds­fé­lags­ins Stím svo félagið gæti keypt hluta­bréf í bank­anum og FL Group sem bank­inn hélt sjálfur á.

Lárus var for­stjóri Glitn­is, Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvip­skipta bank­ans og Þor­valdur Lúð­vík var for­stjóri Saga Capi­tal. Áður en ákæran var gefnin út var Magn­úsi Pálma veitt réttarvernd

Þann 10. febr­úar 2014 var gefin út ákæra í mál­inu á hendur Lárusi Weld­ing,  Jóhann­esi Bald­urs­syni og Þor­valdi Lúð­vík Sig­ur­jóns­syni fyrir umboðs­svik. Lárus var for­stjóri Glitn­is, Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvip­skipta bank­ans og Þor­valdur Lúð­vík var for­stjóri Saga Capi­tal. Áður en ákæran var gefnin út var Magn­úsi Pálma veitt rétt­ar­vernd.

Mál­efni mann­anna tveggja komust í frétt­irnar nýverið þegar verj­endur í Stím-­mál­inu fóru fram á að sér­stakur sak­sókn­ari myndi afhenda gögn um upp­ljóstr­ar­anna. Þeir vildu fá afrit af bréfa­skriftum sér­staks sak­sókn­ara og rík­is­sak­sókn­ara um nið­ur­fell­ingu á sak­ar­giftum Rós­ants Más og Magn­úsar Pálma. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði beiðn­inni í síð­ustu viku.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None