Verjandi Hannesar líkti gagnaleka lögreglu við lekamálið

Hannes_Sm.rason_headshot.jpg
Auglýsing

Sér­stakur sak­sókn­ari telur hæfi­legt að Hannes Smára­son verði dæmdur í tveggja til þriggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt í Sterl­ing-­mál­inu, en munn­legum mál­flutn­ingi í mál­inu lauk fyrir hér­aðs­dómi í morg­un.  Verj­andi Hann­esar sak­aði Helga Magnús Gunn­ars­son, fyrrum sak­sókn­ara efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og núver­andi vara­rík­is­sak­sókn­ara, um að hafa lekið gögnum í mál­inu til þriðja aðila. Þau gögn hafi síðan ratað til fjöl­miðla. Til­gang­ur­inn hafi verið að skapa „réttu stemmn­ing­una“ í kringum mál­ið. Verj­and­inn, Gísli Guðni Hall, líkti þessu við leka­málið svo­kall­aða og sagði að um skýrt lög­brot hafi verið að ræða. Með þessu hafi ákæru­valdið haft óeðli­leg áhrif á rann­sókn máls­ins. Frá þessu er greint á vef Vís­is.is. Hann ­byggir vörn Hann­esar á að ekki hafi verið sýnt fram á að bind­andi fyr­ir­mæli hafi verið gefin um milli­færsl­una eða ekki. Hannes sagð­ist sjálfur vera sak­laus af ákærunni og að ekk­ert benti til þess að milli­færslan hefði yfir höfuð átt sér stað.

Gísli Guðni Hall minnt­ist einnig á frétta­skýr­ingu sem birt­ist í hér, hér og hér.

Hannes Smára­son kærði Valtý Sig­urðs­son, þáver­andi rík­is­sak­sókn­ara, og Helga Magnús Gunn­ars­son fyrir brot á þagn­ar­skyldu í opin­beru starfi vegna þess að gögnin voru afhent fyrr­ver­andi hlut­hafa í FL Group. Málið var fellt niður sum­arið 2011. Lög­reglu­rann­sókn fór auk þess fram á því hvernig gögnin röt­uðu í fjöl­miðla og var grein­ar­höf­undur meðal ann­ars beð­inn um að upp­lýsa um hver hefði látið hann fá gögn­in. Þeirri beiðni var neit­að.

Auglýsing

Millifærslan sem Hannes er sakaður um að hafa fyrirskipað á að hafa verið notuð til að borga fyrir danska flugfélagið Sterling. Milli­færslan sem Hannes er sak­aður um að hafa fyr­ir­skipað á að hafa verið notuð til að borga fyrir danska flug­fé­lagið Sterl­ing.

Milli­færsla á tæpum þremur millj­örðum króna



Hann­es, sem er fyrrum for­stjóri og stjórn­ar­for­maður FL Group, var í lok októ­ber 2013 ákærður fyrir fjár­drátt fyrir að láta milli­færa tæp­lega þrjá millj­arða króna af banka­reikn­ingi FL Group í úti­búi Danske Bank í New York og inn á nýjan banka­reikn­ing FL Group hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg sem Hannes hafði látið stofna fimm dögum áður. Sam­kvæmt sér­stöku umboði hafði Hannes fullt og ótak­markað umboð til ráð­staf­ana á fjár­munum félags­ins á þeim banka­reikn­ing.

Fjár­mun­irnir voru sama dag færðir frá nýja banka­reikn­ingnum yfir á banka­reikn­ing Fons eign­ar­halds­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar. Þar var fjár­hæð­inni skipt í danskar krónur og í kjöl­farið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáver­andi eig­anda flug­fé­lags­ins Sterl­ing Air­lines. Millj­arð­arnir þrír mynd­uðu því stóran hluta af þeim fjórum millj­örðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterl­ing á þessum tíma.

Kjarn­inn fór yfir málið í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á mánu­dag.

Segir ekki sýnt fram á að milli­færslan hafi átt sér stað



Sam­kvæmt frétt mbl.is af mál­flutn­ingnum byggir verj­andi Hann­esar vörn hans á að ekki hafi verið sýnt fram á að milli­færslan hafi raun­verlu­ega átt sér stað. Til þess að svo hefði ver­ið hefðu ýmis skjöl þurft að liggja fyrir lögum sam­kvæmt. Þau skjöl hafa aldrei fund­ist.

Finnur Þór Vil­hjálms­son sak­sókn­ari vill að Hannes verði dæmdur í 2-3 ára fang­elsi og sagði í munn­legum mál­flutn­ingi sínum að sekt Hann­esar væri óyggj­andi. Alveg ljóst væri að milli­færslan hefði átt sér stað og að Hannes hafi haft for­ræði á því máli og verið drif­kraft­ur­inn að baki þess. „Starfs­­menn Kaup­þings í Lúx­emburg hafi stað­fest það og starfs­­menn og stjórn­­end­ur FL Group sem reynt hafi að fá upp­­lýs­ing­ar um reikn­ing­inn og stöðu hans hafi verið neitað um þær með vís­an í banka­­leynd og að sá eini sem hefði rétt á þeim væri Hann­es,“ er haft eftir Finni í frétt mbl.­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None