Ekki bæta svefninn upp um helgar

Með því að bæta upp svefninn um helgar erum við að eyðileggja svefninn fyrstu tvær til þrjár næturnar vikuna á eftir.

Þótt margir Danir séu skráðir einir í búsetu þá þýðir það ekki að þeir sofi allir einir. Margir þeirra eiga auðvitað kærustur eða kærasta.
Auglýsing

Margir kann­ast við að vera í „svefnskuld“ eftir langa vinnu­viku. Dag­arnir ein­hvern veg­inn rúma ekki öll þau verk­efni sem við ætlum okkur að leysa svo það bitnar á svefn­in­um. Til að bæta upp fyrir það leyfum við okkur að sofa lengur um helg­ar, en það er lík­lega ekki lausn­in, sam­kvæmt rann­sókn sem birt­ist í Cur­rent Biology.

Þegar við fáum ekki nægan svefn fer lík­ams­takt­ur­inn úr skorð­um. Lík­am­inn er m.a. orku­laus og við sækj­umst í að borða meira til að við­halda orku­þörf­inni. Þetta getur t.d. leitt til auk­innar lík­ams­þyngd­ar, auk þess minn­kar insúl­ín­næmi lík­am­ans sem þýðir að lík­am­inn á erf­ið­ara með að taka upp ork­una sem við gefum hon­um.

Í rann­sókn hóps­ins við Háskól­ann í Colora­do voru ýmsir líf­eðl­is­fræði­legir þættir skoð­aðir eins og insúlín næmi og lík­ams­þyngd. Einnig var fylgst með þátt­tak­endum og orku­inn­töku þeirra yfir dag­inn.

Auglýsing

Þátt­tak­endum var skipt í þrjá hópa, einn hóp­ur­inn fékk nægan svefn (níu klukku­stund­ir) níu nætur í röð, sá næsti fimm klukku­stunda svefn níu nætur í röð og sá þriðji fékk fimm ­klukku­stunda svefn í fimm næt­ur, tvær nætur þar sem þátt­tak­endur réðu svefni sínum sjálfir og svo tvær nætur þar sem svefn­inn var styttur niður í fimm klukku­stund­ir á ný.

Hóp­arnir tveir sem ekki fengu nægan svefn sýndu strax breytta orku­inn­töku, þ.e. þau sóttu öll í meiri mat á kvöldin auk þess minnk­aði insúl­ín-­næmi þeirra. Þetta ástand var stöðugt meðan hóp­arnir fengu ekki nægan svefn.

Þegar hópur númer þrjú fékk svo að bæta upp svefn­inn sinn, „um helg­ina“, minnk­aði orku­þörfin og þau hættu að snarla á kvöld­in. En þrátt fyrir það breytt­ist insúl­ín­næm­ið ekki.

Þegar kom svo aftur að svefn­litlum nóttum var hóp­ur­inn verr staddur í sam­an­burði við hóp­inn sem svaf ein­ungis fimm ­klukku­stund­ir­ níu nætur í röð. Ástæðan var sú að auk þess að hafa meiri orku­þörf og vera með minna insúl­in­næmi þá var lík­ami þátt­tak­enda einnig dott­inn úr takti, þ.e. lík­ams­klukkan hafði seinkað sér um þá klukku­stund sem þau sváfu lengur yfir helg­ina.

Lík­ams­klukkan okkar pass­ar ­upp­á­ að við seytum réttum horm­ónum á réttum tíma, sem aftur stjórnar svefn­mynstri okkar og svefn­gæð­um. Það má því segja að með því að bæta upp svefn­inn um helgar erum við að eyði­leggja svefn­inn fyrstu tvær til þrjár næt­urnar vik­una á eft­ir.

Skila­boð rann­sak­enda eru því, senni­lega svipuð og við höfum heyrt áður, að nægj­an­legur og umfram allt reglu­legur svefn er lyk­ill­inn að góðri heilsu. Þetta eru kannski ágæt­is­skila­boð inn í helg­ina.

Fréttin birt­ist fyrst á vef Hvatans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk