Karolina Fund: Skandali – nýtt (and)menningarrit

Skandali er hugsað sem farartæki fyrir unga höfunda sem eru að stíga sín fyrstu spor á ritvellinum.

Auglýsing
Skandali_poster(jpeg).jpg

Skandali er hug­ar­fóstur nokk­urra ein­stak­linga sem eiga það sam­eig­in­legt, en ekki endi­lega

margt ann­að, að hafa ást og áhuga á orð­um. Skandali er blað sem til stendur að gefa út í

fyrst sinn í vor, og sem fyr­ir­hugað er að birti sem fjöl­breytt­ast efni og taki sér­stak­lega vel

við efni frá yngri og óþekkt­ari penn­um. En Skandali er meira en bara blað. Aðstand­endur

verk­efn­is­ins vilja með þess­ari útgáfu skapa opið sam­fé­lag fyrir skap­andi ein­stak­linga að

koma sama, standa að við­burð­um, deila sínum verkum í öruggu umhverfi og geta þar

fengið yfir­lest­ur, ráð og deilt skoð­un­um. Áhuga­samir geta fylgst með þessu ferða­lagi á

Face­book-­síðu verk­efn­is­ins. Nú stendur yfir söfnun fyrir kostn­aði í gegn­um Karol­ina Fund.

Kjarn­inn hitti rit­stjóra fyrsta tölu­blaðs­ins, Ægi Þór, að máli.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Eins og svo margar góðar sögur hófst ferlið á bar yfir bjór. Vinur minn (og nú með­limur

rit­stjórn­ar) stakk ­upp­á­ því að gefa út bók­mennta­tíma­rit. Í stuttu máli má segja að ég hafi

ekki haft trú á fyr­ir­tæk­inu. Reyndar skaut ég það harka­lega niður enda með­vit­aður um

ves­enið og kostn­að­inn við slíka útgáfu. En einsog eitt­hvað incept­ion ­dæmi þá var engu að

síður búið að planta fræ­inu, og það svo óx og dafn­aði þangað til ég ákvað loks að fara

raun­hæft að skoða mögu­leik­ana. 

Auglýsing
Skiptir þar miklu að ég hafði nýlega gefið sjálfur út mína

fyrstu ljóða­bók og þar sem það ferli gekk allt smurt hugs­aði ég að tíma­rit gæti nú ekki verið

svo mikið mál. Áður en ég vissi af vorum við svo komin með dríf­andi og öfl­uga rit­stjórn og

það varð ekk­ert aftur snú­ið.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Öll erum við (í rit­stjórn) sam­mála um að það skorti val­kosti fyrir unga og óreynda höf­unda

sem eru að stíga sín fyrstu skref í rit­list­inni (og list­inni almennt). ­Jafn­fram­t vantar

aðgengi­legra blað, rit sem er ekki eins hátt skrifað og t.d. Tíma­rit M&M. Blað sem er ódýrt

en samt vel rit­stýrt og sem tekur við óhefð­bundnu og öðru­vísi efn­i. Ægir Þór.

Þetta er það sem við

viljum gera með þessu blaði. Við viljum bjóða ­upp á svona DI­Y fí­líng, án þess þó að gera

bara hvað sem er. Við viljum að umsjón­ar­menn blaðs­ins séu jafn­ingjar þeirra sem skrifa í

það. Blaðið sjálft er svo hugsað sem aðeins fyrsta skref í átt að því að skapa sam­fé­lag

skap­andi ein­stak­linga. Við ætlum að standa fyrir reglu­legum upp­lestrum og öðrum

við­burð­um, ásamt því að bjóða ­upp á sam­fé­lag þar sem fólk getur deilt hug­mynd­um, fengið

yfir­lestur og ráð­lagt hvort öðru.“

Hvað þarf fólk að vita sem gæti viljað taka þátt í þessu ferli?

„Við viljum gjarnan fá fleiri aðila til liðs við okk­ur. Margir með­limir rit­stjórnar þekkj­ast ekk­ert

sér­stak­lega inn­byrðis þannig að við erum alls engin klíka sem býður engum með. Þvert á

móti viljum við að rit­stjórn blaðs­ins og útgáfu­fé­lag þess sé síbreyti­legur félags­skap­ur. Allir

sem vilja taka að sér ein­hver verk­efni, hver svo sem þau eru, eru vel­komnir í hóp­inn. Við

munum svara öllum fyr­ir­spurnum og lesa yfir allt efni sem berst okk­ur.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efn­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk