Karolina Fund: HVAÐ barna- og ungmennatímarit

HVAÐ er hvetjandi og eflandi tímarit fyrir börn og ungmenni sem ýtir undir sjálfstæða hugsun og heilbrigða sýn á tilveruna og náttúruna. Nú er safnað fyrir útgáfu þess á Karolina Fund.

HVAD_Final-Mockup.jpg
Auglýsing

Ágústa Mar­grét Arn­ar­dótt­ir, fimm barna móðir á Djúpa­vogi, fann fyrst fyrir vöntun á barna- og

ung­menna­tíma­riti fyrir um 6 árum síðan þegar dóttir hennar sem þá var 6 ára vildi verða

áskrif­andi af tíma­riti en fátt fannst þeim um góða drætti í þeim efn­um.

Öðru hvoru síðan

hefur þetta komið upp í huga Ágústu en það var ekki fyrr en fimmta og síð­asta fæð­ing­ar­or­lofi

lauk í sept­em­ber sl. að hún ákvað að setja hug­mynd­ina í fram­kvæmd.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þegar dóttir mín bað mig um að fá að vera áskrif­andi af tíma­riti fyrir um 6 árum síðan fannst

mér það frá­bær hug­mynd til að auka lestur og fjöl­breyti­leika les­efnis sem hún hafði aðgengi

að. Hins vegar fundum við ekk­ert sem heill­aði okk­ur, mögu­lega var ég haldin ein­hverri

nostal­g­íu­þrá eftir ein­hverju sam­bæri­leg­u A­BC og Æsk­unni eins ég man þau tíma­rit frá minni

barn­æsku.

Auglýsing
Spurningin af hverju er ekki verið að gefa út hvetj­andi og efl­andi efni fyrir börn og

ung­menni í tíma­rita formi kom oftar og oftar upp í haus­inn á mér. Hug­myndir um efni í svona

tíma­rit juk­ust líka jafnt og þétt og trú mín á vöntun á þetta varð til þess að ég ákvað að stíga

fyrstu sporin og kanna áhuga fólks á að taka þátt í þessu með mér. Það má segja að

við­brögðin frá fólki sem ég þekki, og þekki ekki neitt, gerðu úts­lag­ið. Þetta tíma­rit þarf að

koma út.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað er hvatn­ing, efl­ing og þátt­taka barna og ung­menna. Eig­andi fimm börn, sem öll hafa á

ein­hvern hátt stýrt fram­vindu verk­efn­is­ins, veit ég hversu mik­il­vægt er að efla þeirra innri

mann­eskju og tengja þau við það sem skiptir raun­veru­lega máli. Þau verða fyrir stans­lausu

áreiti í gegnum net­ið, bíó­mynd­ir, aug­lýs­ing­ar, sam­fé­lagið og fleira. Það er lát­laust verið að

segja þeim með­vitað eða ómeð­vitað hvernig þau eiga að vera, hvað er töff, hvað er gott,

hvað gerðum við þegar við vorum yngri og fleira.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efn­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk