1,9°?

Samanlögð fyrirheit ríkja heims um samdrátt í losun hafa í fyrsta sinn, samkvæmt vísindamönnum frá Ástralíu, meira en helmings líkur á því að hemja hlýnun jarðar við 2° fyrir lok aldar. Ef þeim verður öllum framfylgt.

Á meðal nýrra fyrirheita sem sett hafa verið fram á ráðstefnunni í Glasgow er markmið Indlands um kolefnishlutleysi árið 2070. Þaðan er myndin.
Á meðal nýrra fyrirheita sem sett hafa verið fram á ráðstefnunni í Glasgow er markmið Indlands um kolefnishlutleysi árið 2070. Þaðan er myndin.
Auglýsing

Þjóð­ar­leið­tog­arnir sem söfn­uð­ust saman á Glas­gow á fyrstu dögum Cop26-ráð­stefn­unnar eru nú flestir á bak og burt, en þau fyr­ir­heit sem gefin hafa verið um aðgerðir í lofts­lags­málum standa eft­ir. Verði þau öll upp­fyllt, gæti það leitt til þess að hlýnun jarðar hald­ist innan við tvær gráður fyrir lok ald­ar­inn­ar.

Það segja hið minnsta lofts­lags­vís­inda­menn við Mel­bo­ur­ne-há­skóla í Ástr­al­íu, sem hafa rennt nýjasta lof­orða­flaumi leið­tog­anna inn í líkan sitt og fengið út þá nið­ur­stöðu að ef allt gangi full­kom­lega eftir sem sett hafi verið fram nú þegar séu meira en 50 pró­sent líkur á að hlýnun jarðar frá upp­hafi iðn­bylt­ingar og fram að næstu alda­mótum fari ekki yfir 2°.

Ný fyr­ir­heit sveigja kúr­f­una

Lang­tíma­mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi, fyrir árið 2070 frá Ind­landi og fyrir árið 2060 frá Kína, eru í stöðu­skýrslu vís­inda­mann­anna sögð hafa haft mikil áhrif á þær nið­ur­stöður sem líkanið sýnir fram á. Auk þess hafi ell­efu ríki upp­fært mark­mið sín um sam­drátt í losun (NDCs) frá 18. októ­ber, er vís­inda­menn­irnir keyrðu spálíkanið í síð­asta skipti fyrir ráð­stefn­una í Glas­gow.

Mynd: Climate Resource

Lofts­lags­vís­inda­menn­irnir segja að þetta sé „sögu­legt augna­blik,“ enda sé þetta í fyrsta skipti sem fyr­ir­heit 194 ríkja hafi meira en helm­ings­líkur á að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráður við loka ald­ar­inn­ar.

Auglýsing

Það eru þó enn 37 pró­sent líkur á að það mark­mið náist ekki og með­al­hita­stig muni hafa hækkað um meira en tvær gráður fyrir lok aldar – og það þrátt fyrir að öll fyr­ir­heit yrðu upp­fyllt að fullu og gangi eftir eins og vonir standa til.

Þetta er þó skárri staða en var sett fram í skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­un­um, UNEP Gap Report, sem birt­ist í síð­asta mán­uði. Þar var gert ráð fyrir því að núver­andi fyr­ir­heit ríkja um sam­drátt í losun myndu setja jörð­ina á braut í átt að 2,7° hlýnun við lok ald­ar­inn­ar.

Í skýrslu sinni um þessar nið­ur­stöður segja vís­inda­menn­irnir að enn sé langur vegur í átt að því, sem er mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins, að hlýnun jarðar verði hamin við 1,5°. Til þess hafi ekki nægi­lega háleit mark­mið verið sett fram.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent