Notendur geta náð sér í Beta-útgáfu af Vivaldi

Jón Von Tetzchner
Auglýsing


Almennir not­endur geta nú loks náð sér í Beta-­út­gáfu af Vivald­i-vef­vafr­an­um, ­sem hefur verið í þróun und­an­farin miss­eri. Stór hluti þeirra starfs­manna sem unnið hafa að gerð vafrans eru stað­settir á Íslandi og fyr­ir­tækið er að stærstum hluta í eigu hins íslenska Jón Von Tetzchner.

Í til­kynn­ingu frá Vivaldi segir að til­gang­ur­inn hafi verið að þróa vafra sem væri hrað­ur, öfl­ugur og aðlög­un­ar­hæfur fyrir stórnot­end­ur.

Hægt er að ná sér í vafr­ann hér.

Auglýsing

Hefur fengið frá­bæra dóma

Vivaldi er fyr­ir­tæki sem frum­kvöðul­inn Jón Von Tetzchner stofn­aði fyrir nokkrum miss­er­um. Það gaf út svo­kall­aða tækni­lega útgáfu af vafra í jan­ú­ar ­síð­ast­liðn­um, sem þýddi í raun að enn væri verið að þróa vafr­ann og útgáfan því ekki end­an­leg. Nú þegar er búið að nið­ur­hala vafr­anum í yfir tvö millj­ón ­skipti og hann hefur einnig fengið frá­bæra dóma hjá tækni­fjöl­miðl­um.

Jón hafði áður byggt upp fyr­ir­tæki í kringum vef­vafra, Operu, sem hann seldi síð­an. Í við­tali við Kjarn­ann í maí sagði hann að það hefði verið erfið ákvörðun að fara aftur í vafra­geir­ann. Hann taldi sig búinn með hann. „Þegar ég fór út úr Operu þá leit ég á það þannig að ég væri búinn með vafra­geir­ann. En svo á sér stað ákveð­in á­kvörð­un­ar­taka í Operu sem í fólst að þeir kasta grunn­inum og skipta um not­enda­hóp. Það eru 350 millj­ónir not­endur af Operu í dag. Ég myndi giska á að 300 millj­ónir þeirra séu að nota gamla grunn­inn. Þetta er sér­stakt. Oper­a ­sagði að þessi not­enda­hópur sem þeir væru með væru ein­hverjir nördar og að nú vildu þeir ná í venju­lega not­end­ur. Því var ákveðið að búa til ein­fald­ari vafra og fara í sam­keppni við alla. Ég tel það mjög erfitt. Að fara í sam­keppni án þess að hafa neinar við­bæt­ur. Augjós­lega þarf vara að vera öðru­vísi til að hægt sé að keppa.“

Fyrir stórnot­endur

Fyr­ir­ flesta net­not­endur er vafri bara vafri og erfitt að sjá hvað einn vafri get­ur ­boðið upp á fram yfir ann­an. Jón sagði við Kjarn­ann í maí að Vivaldi sé vafri fyrir not­endur sem krefj­ast meira. „Venju­legir not­endur sem eru bara að fara á Face­book og skoða nokkrar net­síður hafa enga þörf fyrir það sem við erum að byggja. En ef þú ert not­andi sem ert mikið á net­inu, til dæmis með mjög marga fána (e. tabs) opna, eða byrjar með marga fána, þá bjóðum við upp á svo­kallað „stack­ing“ sem þýð­ir að þú getur geymt marga fána undir ein­um. Þá er ein­fald­ara að finna hluti. Við fundum upp mögu­leik­ann að hafa síður hlið við hlið á sama skján­um. Og ýmis­leg­t ann­að. Þetta er fyrir stórnot­endur á net­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None