Starfsmannasamtök RÚV segja að þeir sem vilji hag fyrirtækisins sem minnstan tali "tala hátt og finna starfseminni og starfi okkar flest til foráttu í þeim augljósa tilgangi að stuðla að því að Alþingi skeri enn eina ferðina niður fjárveitingar til RÚV". Sama atburðarrásin fari af stað á hverju hausti þegar vinna við fjárlagafrumvarp hefst. Samtökin segja andstæðinga RÚV hagræða sannleikanum varðandi rekstur fyrirtækisins og að alger viðsnúningur hafi orðið í rekstri RÚV ohf. á síðustu misserum. Þau óska eftir því að "stjórnmálamenn og aðrir sýni þá sjálfsögðu kurteisi að byggja mál sitt á staðreyndum. Starfsfólk RÚV er langþreytt á ófaglegri umræðu".
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem stjórn Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins sendi frá sér í dag. Undir yfirlýsinguna skrifa Gunnar Magnússon formaður og Ragna Fossberg gjaldkeri.
Málefni RÚV hafa verið mikið í umræðunni undanfarna daga eftir útkomu skýrslu nefndar, sem Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra skipaði til að greina þróun á starfsemi RÚV. Í skýrslunni er farið ófögrum orðum um rekstur fyrirtækisins. Þar sagði meðal annars að rekstur RÚV hafi verið ósjálfbær frá því að fyrirtækið var gert að opinberu hlutafélagi árið 2007. Alls nemur tap umfram hagnað 813 milljónum króna á því tímabili, og er þar gert ráð fyrir þeim tekjum sem RÚV hefur af útvarpsgjaldi sem landsmönnum er skylt að greiða. Samt sem áður gera áætlanir RÚV, sem fyrirtækið vinnur eftir, ráð fyrir því að það fái hærra útvarpsgjald en gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi ársins, að 3,2 milljarða króna lán vegna lífeyrisskuldbindinga hverfi úr efnahag RÚV og að sala á byggingarétti á lóð fyrirtækisins gangi eftir. Gangi allar þessar forsendur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyrirtækið er rekið í dag ósjálfbær.
Forsvarsmenn RÚV hafa hafnað mörgu sem fram kemur í skýrslunni og hafa gagnrýnt hana harðlega.
Yfirlýsing starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins í heild sinni:
Skýrsluhöfundar skauta framhjá raunverulegri hagræðingu og jákvæðum viðsnúningi í rekstri RÚV ohf.
Á hverju hausti þegar vinna við fjárlagafrumvarp stendur yfir hefst sama atburðarrásin þar sem þyrlað er upp moldviðri í kringum starfsemi RÚV ohf. Þeir sem vilja hag fyrirtækisins sem minnstan tala hátt og finna starfseminni og starfi okkar flest til foráttu í þeim augljósa tilgangi að stuðla að því að Alþingi skeri enn eina ferðina niður fjárveitingar til RÚV.
Mikil fækkun starfsfólks
RÚV hefur hagrætt mikið á undanförnum árum og veitir nú landsmönnum meiri þjónustu með mun færra starfsfólki og fyrir minna fjármagn en áður. Frá 2007 hefur verið hagrætt mjög mikið í rekstri RÚV og starfsmönnum meðal annars fækkað um tæplega eitt hundrað talsins.
Andstæðingar RÚV hagræða staðreyndum.
Fyrir rúmu ári síðan gall í andstæðingum RÚV að fyrirtækið þyrfti að hagræða og ná tökum á rekstrinum. Þá var líka kallað eftir því að RÚV lækkaði skuldir. Nú, ári síðar, hefur RÚV nýlega kynnt uppgjör sem sýnir algeran viðsnúning og hallalausan rekstur. Starfsfólk hefur rýmt stóran hluta af nýtanlegu rými í Útvarpshúsinu og RÚV leigt frá sér til Reykjavíkurborgar sem skilar miklum ávinningi. Nýfrágengin sala á byggingarrétti á lóðinni við Efstaleiti mun svo leiða til mestu skuldalækkunar í sögu RÚV. Það er því óhætt að segja að markverður árangur hafi náðst. En nýtur félagið góðs af þessum góða árangri í umræðu andstæðinga RÚV? Nei þvert á móti er eins og þeir verði bara enn ákveðnari í að fela þennan góða rekstrarárangur sem náðst hefur á undanförnu árum.
Viðsnúningur í rekstri RÚV
Staðreyndin er sú að RÚV ohf hefur verið yfirskuldsett frá stofnun og allar stjórnir þess hafa frá upphafi bent á það. Frá stofnun RÚV ohf. hefur ríkið haldið eftir hátt í þremur milljörðum af útvarpsgjaldi sem almenningur taldi sig vera að greiða til RÚV. Framlög til RÚV eru margfalt lægri en allra systurstofnana á Norðurlöndum og jafnvel þó borin séu saman framlög á hvern einstakling (per capita), þá fær RÚV minna en þær flestar, þrátt fyrir fámenni þjóðarinnar. Alger viðsnúningur hefur orðið í rekstri RÚV ohf síðustu misserin eins og ársreikningar félagsins staðfesta.
Við óskum eftir vinnufriði
Við starfsfólkið óskum eftir því að stjórnmálamenn og aðrir sýni þá sjálfsögðu kurteisi að byggja mál sitt á staðreyndum. Starfsfólk RÚV er langþreytt á ófaglegri umræðu.
Fyrir hönd stjórnar Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins,
Gunnar Magnússon, formaður,
Ragna Fossberg, gjaldkeri.