Hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson birti í nótt myndband af íbúð í Hlíðunum sem forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær, þann 9. nóvember, sagði í fyrirsögn að væri „útbúin til nauðgana". Vilhjálmur biður fólk um að horfa á myndbandið og dæma hvert fyrir sig, en hann er lögmaður annars mannanna sem kærðir hafa verið nauðgun sem átti að hafa átt sér stað í íbúðinni.
Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær sagði að rannsókn „lögreglu í tveimur aðskildum kynferðisbrotamálum beinist að húsnæði í fjölbýlishúsi í Hlíðahverfi í Reykjavík, þar sem talið er að árásirnar hafi átt sér stað. Lögregla staðfestir að tvær kærur hafi verið lagðar fram í málinu. Samkvæmt heimildum blaðsins voru árásirnar hrottalegar og íbúðin búin tækjum til ofbeldisiðkunar[...]Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins fann lögregla í íbúðinni ýmis tól og tæki sem mennirnir eiga að hafa notað við nauðganirnar, svo sem svipur, reipi og keðjur. Þá voru hankar í loftinu sem grunur leikur á að mennirnir hafi notað til að hengja upp aðra konuna á meðan ráðist var á hana".
Báðar árásirnar sem kærðar hafa verið áttu sér stað í októbermánuði. Samkvæmt Fréttablaðinu eru tveir karlar væru grunaðir um árásirnar, Annar væri á fertugsaldri og stundi nám við Háskólann í Reykjavík. Hinn væri á svipuðum aldri og starfaði á hótelinu Reykjavik Marina.
Frétt Fréttablaðsins vakti mikla reiði á meðal almennings, sérstaklega þar sem mennirnir höfðu ekki verið hnepptir í gæsluvarðhald. Myndir af þeim voru birtar á Facebook og færslum sem sýndu andlit þeirra deilt mörg þúsund sinnum. Á Twitter átti sér stað heit umræða undir hashtaginu #almannahagsmunir.
Þegar leið á gærdaginn steig Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur á skrifstofu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, fram og sagði það ekki rétt sem fram kom á forsíðu Fréttablaðsins að íbúð í Hlíðarhverfinu hafi „verið sérútbúin fyrir þessar athafnir". Það væri orðum aukið. Við RÚV sagði Alda: „Sú mynd sem hefur verið máluð í þessu máli í fjölmiðlum er gríðarlega alvarleg og ég held að við getum alveg sagt það að hefði hún verið rétt þá hefðum við farið fram á almannagæslu. Ef það væri sérútbúin íbúð til að brjóta á öðru fólki. Ég hef sagt það að það er ekki rétt. Hún er ekki sér útbúin til þess.“
Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og aðalritstjóri 365, sem gefur út Fréttablaðið, sagði við RÚV í gærkvöldi að engin ástæða væri til að bera efnisatriði fréttarinnar til baka. Orðið „sérútbúin" hafi ekki verið að finna í frétt blaðsins.
Í Fréttablaðinu í dag er fréttinni fylgt eftir. Þar er haft eftir Öldu Hrönn að „í okkar gögnum höfum við ekki neitt sem sýnir að íbúðin sé útbúin til nauðgana og við getum ekki fullyrt neitt um það. Þetta er þó matskennt hugtak sem og önnur hugtök sem maður hefur séð í dag, til dæmis hugtakið raðnauðganir".
Vilhjálmur, sem birtir myndband af umræddri íbúð á Facebook-síðu sinni í gær segir í stöðuuppfærslu að kærðu neiti alfarið sök og að gögn málsins og vitnisburðir styðji framburð þeirra. „Aftaka kærðu á netinu í gær mun verða íslendingum til vansa um aldir alda. Á því ber Fréttablaðið fulla ábyrgð ásamt hlutaðeigandi mykjudreifurum. Á þá ábyrgð mun reyna".