Sýndarveruleikinn og CCP áhrifin

EVE.Online..Mining.jpg
Auglýsing

Það er mik­il­vægt að staldra við góðar fréttir sem gefa vís­bend­ingu um jákvæða þróun þegar upp­bygg­ing þekk­ing­ar­iðn­að­ar, sem byggir á hug­vit­inu örðu frem­ur, er ann­ars veg­ar. Tvær slíkar fréttir hafa nú komið fram á jafn­mörgum dög­um. 

Sprota­fyr­ir­tækið Sól­far Studios til­kynnti um það í gær, að það hefði samið um fjár­mögnun upp á tæp­lega 300 millj­ónir króna til að þróa starf­semi sína á sviði sýnd­ar­veru­leika áfram. Í apríl síð­ast­liðnum tók Kjarn­inn stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins tali, en þeir hafa allir verið á meðal þeirra sem byggt hafa fyr­ir­tækið CCP upp. Þá töl­uðu þeir um að hverfa aftur í bíl­skúr­inn og hefja frum­kvöðla­starfið alveg frá grunni. Ljóst er að þeir stöldr­uðu ekki lengi við í bíl­skúrn­um, og mikið upp­bygg­ing­ar­starf er greini­lega framund­an.

Í dag kom síðan önnur jákvæð frétt, þar sem sýnd­ar­veru­leiki kemur við sögu. Til­kynnt var um það á hlut­hafa­fundi CCP í dag að stærsti fram­taks­sjóður heims, New Enter­prise Associ­ates, með þátt­töku Novator Partners, fjár­fest­inga­fé­lags í meiri­hluta­eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar, hefði ákveðið að leggja félag­inu til fjóra millj­arða króna. Veðjað er á sýnd­ar­veru­leik­ann í þess­ari fjár­fest­ingu.

Auglýsing

Saga CCP hefur verið saga mik­illar rús­sí­ban­areiðar frá upp­hafi. Mik­illa sigra en líka erf­ið­leika, eins og Hilmar Veigar Pét­urs­son for­stjóri, hefur greint frá sjálf­ur. En þessi nýj­ustu tíð­indi sýna hversu mikil þekk­ing hefur byggst upp innan fyr­ir­tæk­is­ins á krefj­andi hliðum tölvu­leikja­iðn­að­ar­ins.

Hverfum nú aðeins vestur um haf, svona eins og við séum í sýnd­ar­veru­leika.

Í Seattle í Band­ríkj­unum er stundum talað um „Microsoft áhrif­in“ á allt nær­sam­fé­lagið í borg­inni, vegna þess að stofn­endur hug­bún­að­ar­risans, Bill Gates og Paul Allen, ákváðu að byggja höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins upp á sínum heima­slóð­um. Þús­undir starfs­manna með góða menntun hafa mikil áhrif á borg­ina og mann­lífið fyrir vik­ið.



Að mörgu leyti virð­ist það órök­rétt að hafa höf­uð­stöðv­arnar þarna, þar sem hjartað í hug­bún­að­ar­geir­anum er stundum sagt slá í Síli­kondalnum eða ann­ars staðar fjarri Seattle borg. 

Hver veit nema að í fram­tíð­inni verði talað um CCP áhrifin í Reykja­vík. Fyr­ir­tækið hefur með sköp­un­ar­krafti starfs­manna haft mikil áhrif á frum­kvöðla­starf­semi á Íslandi, og þessi nýj­ustu tíð­indi virð­ast benda til þess að ný áhrifa­bylgja kunni að vera að byggj­ast upp. En ekk­ert er sjálf­sagt í heimi hug­bún­að­ar­ins, svo mikið er víst. Full þörf er á því að íslenskt atvinnu­líf og stjórn­völd fylgist grannt með því, hvernig mögu­lega megi fjölga fyr­ir­tækjum eins og CCP, og Sól­far Studi­os, hér á landi. Ekki bara vegna þess að starfs­fólk þess er með góða menntun og starf­semin alþjóð­leg, heldur ekki síður vegna þess að það hljómar næstum of gott til að vera satt, að geta vaxið inn í sýnd­ar­veru­leika. Þar eru mögu­leik­arnir næstum enda­laus­ir...





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None