Mengun 50 sinnum yfir heilsuverndarmörkum nyrst í Kína

Orkuframleiðsla með kolabruna til húshitunar eykst á veturnar í Kína.

Fólk setur grímur fyrir vit sín til að vernda sig gegn menguninni.
Fólk setur grímur fyrir vit sín til að vernda sig gegn menguninni.
Auglýsing

Það er svarta­þoka í stærstu borgum í norð­an­verðu Kína. Um er að ræða stæka meng­un­ar­móðu sem, sam­kvæmt við­miðum Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­inn­ar, getur gert loft­gæðin allt að 50 sinnum verri en talið er vera heilsu­spill­andi.

Sífeld loft­mengun í Kína er vana­lega verst á vet­urnar þegar kola­brennsla nær hámarki til þess að fram­leiða orku til hús­hit­un­ar, svo dæmi sé tek­ið. Þessi mikla mengun hefur verið tengd mörg­hund­ruð þús­und ótíma­bærum dauðs­föllum og verið sögð ein ástæða óánægju í garð komm­ún­ista­flokks­ins sem öllu ræður í Kína. Í mynd­band­inu frá Reuter­s-frétta­stof­unni hér að neðan má sjá hversu þykk meng­un­ar­móðan er.

Reuters: Meng­un­ar­teppi yfir borgum Kína



Í borg­inni Changchun búa um átta millj­ónir manna en þar hefur meng­un­ar­móðan verið svo þykk að magn svifryks mæld­ist 860 míkrógrömm á hvern rúmmet­er. Alþjóða­heil­brið­is­stofn­unin segir að sól­ar­hrings­með­al­tal yfir 25 míkrógrömmum sé heilsu­spill­andi fyrir fólk. Til sam­an­burðar þá var magn svifryks í Reykja­vík, nánar til­tekið við Grens­ás­veg 3,05 míkrógrömm á rúmmet­er, í hádeg­inu í dag.

Auglýsing

Fréttir bár­ust af því fyrr í þessum mán­uði að Kína hafi brennt 17 pró­sent meira af kolum en stjórn­völd þar í landi höfðu áður gefið upp. Það þýðir að Kín­verjar losa nærri millj­arð tonna meira af koltví­oxíði út í and­rúms­loftið en áður var reiknað með. Kína hefur tekið fram úr Banda­ríkj­unum sem stærsta meng­un­ar­land heims og situr nú fast á toppi list­ans, með nærri tvö­falt meiri útblást­ur.

Á mynd­band­inu hér að neðan má sjá gögn Geim­ferða­stofn­unar Banda­ríkj­anna, NASA, um upp­runa kolefnis í and­rúms­lofti jarð­ar. Gagn­anna var aflað frá ágúst 2006 til apríl 2007. Síðan þá hefur útblástur Kína auk­ist gríð­ar­lega. Ein­ungis tveimur árum síðar blés Kína nærri átta millj­örðum tonna af koltví­oxíði, miðað við nærri sex millj­arða tonna árið 2006. Fylgist með hvíta reyknum sem mynd­ast við strendur Kína.


Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna hefst 30. nóv­em­ber í Par­ís. Þar er mark­miðið að kom­ast að lagaa­lega bind­andi sam­komu­lagi um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loft­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None