Dagblaðalestur stendur í stað milli mánaða

DV Morgunblaðið
Auglýsing

Lestur dag­blaða lands­ins stóð í stað á milli sept­em­ber og októ­ber­mán­að­ar. Breyt­ingar á lestr­inum eru það litlar að þær eru langt innan skekkju­marka. Frétta­blað­ið, stærsta dag­blað lands­ins, mælist með 50 pró­sent lestur í ald­urs­hópnum 12-80 ára. Þrátt fyrir að lestur blaðs­ins hafi minnkað hratt síð­ustu ár þá ber það enn höfuð og herðar yfir önnur blöð þegar kemur að lestri. Vert er að taka fram að Frétta­blað­inu er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unn­ar. Þetta kemur fram í nýrri prent­miðla­könnun Gallup sem birt var í gær.



Auglýsing

Lestur DV og Við­skipta­blaðs­ins hækk­aði lít­il­lega í síð­asta mán­uði en sú hækkun er  innan skekkju­marka. Við­skipta­blaðið er eini prent­mið­ill lands­ins sem virð­ist halda nokkuð stöð­ugum lestri þegar horft er yfir lengra tíma­bil. Sú þróun er í takt við það sem gerst hefur hjá sér­hæfð­ari syllu­miðlum í öðrum lönd­um, t.d. við­skipta­blað­inu Bör­sen í Dan­mörku.

Lækk­andi lestr­ar­tölur

Frétta­tím­inn stendur nán­ast í stað í lestri. Alls lesa 36,4 pró­sent lands­manna á aldr­inum 12-80 ára frí­blað­ið, sem er prentað í 82 þús­und ein­tökum einu sinni í viku og dreift í hús. Blaðið var fyrst með í mæl­ingum Gallup í mars 2011 og mæld­ist þá með tæp­lega 42 pró­sent lest­ur. Síðan þá hefur lest­ur­inn rokkað tölu­vert en Frétta­tím­inn virt­ist á mik­illi sigl­ingu í upp­hafi árs, á sama tíma og aðrir miðlar með stórt upp­lag voru í frjálsu falli. Í mars síð­ast­liðnum mæld­ist lestur hans 40,57 pró­sent. Frétta­tím­inn hefur aldrei mælst með jafn lít­inn lestur og blaðið er að mæl­ast með síð­ast­liðna mán­uð­i. 

Sömu sögu er að segja af Morg­un­blað­inu, stærsta áskrift­ar­blaði lands­ins.  Það mælist nú með 28,2 pró­sent lest­ur. Les­endum Morg­un­blaðs­ins hefur fækkað um 35 pró­sent á sex árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None