Samfylkingin samþykkti ekki aldurskvóta í efstu sæti framboðslista

Samfylking
Auglýsing

Flokk­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar sam­þykkti ekki til­lögu um að minnsta kosti einn fram­bjóð­andi yngri en 35 ára skuli vera í einu af þremur efstu sæt­unum á fram­boðs­listum flokks­ins. Til­lagan var lagð fram á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins í gær. Sam­kvæmt til­lög­unni átti einnig ávallt að leit­ast við að á fram­boðs­listum séu fram­bjóð­endur yngri en 35 ára í að minnsta kosti fimmt­ungi þeirra sæta sem stillt er upp í. Í til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni segir að í umræðum hafi komið fram ríkur stuðn­ingur við mark­mið til­lög­unn­ar, þótt deildar mein­ingar hafi verið um aðferð­ina, og var sam­þykkt að Sam­fylk­ingin myndi grípa til sér­stakra aðgerða til þess að styðja við fram­gang ungs fólks og nýrra fram­bjóð­enda fyrir næstu kosn­ing­ar".

Þess í stað var til­laga Árna Páls Árna­son­ar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um að fjölga ungu fólki í efstu sætum fram­boðs­lista til næstu Alþing­is­kosn­inga sam­þykkt. 

Í til­lög­unni sem sam­þykkt var seg­ir: Flokks­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar sam­þykkir að nýliðun í efstu sætum fram­boðs­lista skipti miklu máli fyrir Sam­fylk­ing­una og minnir í því sam­bandi sér­stak­lega á grein 5.6. í gild­andi reglum um val á fram­boðs­lista. Sam­kvæmt þeirri grein er gert ráð fyrir að fimmta hvert sæti sé skipað fólki undir 35 ára aldri. Flokks­stjórn vísar til­lög­unni sem liggur fyrir fund­inum til umfjöll­unar í kjör­dæm­is­ráðum, þannig að þessi sjón­ar­mið komi til umfjöll­unar áður en ákvörðun um leik­reglur verði tek­in. Flokks­stjórn beinir því til kjör­dæm­is­ráða að hafa í huga sjón­ar­mið um hlut­deild ungs fólks í efstu sætum ef stillt er upp á fram­boðs­lista. Ef flokksvali er beitt er því beint til kjör­dæm­is­ráða að valið styðji við nýliðun og að sér­stök kynn­ing fari fram á vegum kjör­dæm­is­ráða á nýjum fram­bjóð­end­um".

Auglýsing

Elsti þing­flokkur lands­ins

Frum­flutn­ings­maður til­lög­unar um ald­urskvóta í efstu sæti á fram­boðs­listum flokks­ins var Natan Kol­beins­son, mið­stjórn­ar­með­limur og fyrrum for­maður Ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík. Á meðal sex með­flutn­ings­manna var Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi til­lög­unni sagði að Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hafi ekki farið í gegnum neina nýliðun við síð­ustu alþing­is­kosn­ingar og þar að auki séu nær allir vara­þing­menn flokks­ins fyrr­ver­andi þing­menn. Sam­fylk­ingin hefði þurft að fjór­falda fylgi sitt til þess að ungt fólk kæm­ist á lista. „Flokk­ur­inn þarf nauð­syn­lega á því að halda að nýtt og ungt fólk eigi raun­hæfa mögu­leika á því að kom­ast á þing eftir næstu kosn­ing­ar. Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar er elsti þing­flokk­ur­inn á alþingi í dag og yngsti þing­maður flokks­ins er sú kona sem hefur þó mesta þing­reynslu og hefur setið á þingi í 12 ár".

ein­róma í gær til­lögu Árna Páls Ár

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None