Anonymous réðst á þekktar íslenskar vefsíður vegna hvalveiða Íslendinga

Á meðal þeirra síðna sem ráðist var á voru heimasíða forsætisráðuneytisins, Símans og Mbl.is. Árásirnar ollu miklum truflunum á netþjónustu. Netöryggissveit PFS hefur verið upplýst um málið.

Anonymous
Auglýsing

Atlaga var gerð að ein­stökum vef­síðum á Íslandi í síðust­u viku. Upp­lýs­ingum var dreift á inter­net­inu þess efnis að um væri að ræða ­skipu­lagðar árásir Anonymous sam­tak­anna á Ísland vegna hval­veiða Íslend­inga. 

Atlagan olli miklum trufl­unum á net­þjón­ustu og þjón­ustu­að­ilar til­kynntu við­skipta­vin­um sínum um þær fyrir helgi. Á meðal þeirra síðna sem með­limir sem segjast tengj­ast Anonymous hreykja sér af á Twitter að hafa náð að loka tíma­bund­ið ­fyrir erlendri umferð eru síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Mbl.is, Sím­ans, Menn.is, Iceland.is og Visit­iceland.­is.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sím­an­um, sem á net­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­ið ­Sensa, lág­mark­aði Sensa áhrif atlagn­anna á við­skipta­vini sína. Sensa upp­lýst­i CERT-ÍS, net­ör­ygg­is­sveit Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (PFS), um málið fyr­ir­ helg­i. 

Auglýsing

Anonymous eru nokk­urs konar laus­leg regn­hlíf­ar­sam­tök að­gerð­ar­sinna og hakk­ara út um allan heim. 

Stýrðu umferð inn á vef­síður í því magni að þær lágu niðri

Tækni­borð Sensa sendi skila­boð á við­skipta­vini sína á föstu­dag þar sem sagt var frá því að net­trufl­anir sem hefðu verið í gangi í síð­ustu viku hefðu verið umfangs­meiri en talið væri í fyrstu. Í skila­boð­un­um, ­sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, segir einnig: „Upp­lýs­ingum hefur verið deilt á inter­net­inu þess efn­is að um sé að ræða skipu­lagðar árásir „Anonymous“ hóps­ins vegna stuðn­ings Íslands­ við hval­veið­ar. Tækni­menn Sensa eru á staðnum að verj­ast þessu á ástandi og vinna að lausn. Flókið getur verið að verj­ast slíkum árásum og erfitt er að vita hversu lengi ástandið var­ir. Búast má við þjón­ustu­trufl­unum eða ­þjón­ust­urofi. Til­kynn­ingar munu ber­ast um stöð­una eftir atvik­um. Við þökkum fyr­ir­ ­sýnda bið­lund“.Árásirnar voru að sögn gerenda framkvæmdar vegna hvalveiða Íslendinga.

 

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til Sím­ans, eig­anda Sensa, um mál­ið. Í svari ­upp­lýs­inga­full­trúa hans segir að Sensa hafi upp­lýst við­skipta­vini sína á föstu­dag um trufl­anir á net­þjón­ustu í kjöl­far „atlaga að ein­staka vef­síð­u­m hér á landi. Tækni­menn Sensa lág­mörk­uðu áhrif þeirra og eru á vakt­inni verð­i vart við meiri slíka umferð“. 

Sím­inn segir atlögur á net­inu af þessu tagi snú­ast um að ­stýra umferð inn á vef­síður í því magni að þær taka ekki lengur við heim­sókn­um og liggja því niðri.

Sensa upp­lýsti CERT-ÍS, net­ör­ygg­is­sveit Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar, um mál­ið. Hjá CERT-ís feng­ust þær upp­lýs­ingar að sveit­in viti af mál­inu.

Upp­lýstu um aðgerðir á Twitt­er 

Upp­lýs­ingum um aðgerð Anonymous vegna hval­veiða Íslend­inga, sem kall­ast #OpWhales, hefur verið dreift á sam­fé­lags­miðl­inum Twitt­er. Þar kemur meðal ann­ars fram að síða for­sæt­is­ráðu­neytis Íslands hafi ekki verið aðgengi­leg erlendis frá um tíma í síð­ustu viku vegna árásar á hana frá þeim sem stóðu að aðgerð­inn­i. 



Aðrar síður sem Anonymous-­með­limir hreyktu sér af því að hafa ráð­ist á voru:

Iceland.is:



Mbl.is:



Sím­inn.is:



Menn.is:



Visit­iceland.is:



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None