Konur eru 20 prósent þeirra sem talað er við eða fjallað um í fréttum hér á landi. Karlar eru því 80 prósent umfjöllunarefna og viðmælenda.
Þetta eru niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar, Global Media Monitoring Project (GMMP) sem kynnt var í dag. Helstu fréttamiðlar í 114 löndum voru vaktaðir 25. mars 2015 og meðal annars kannað hversu oft var talað við eða fjallað um konur, í hvers konar fréttum og í hvers konar hlutverkum, sem og hlutur fréttakvenna og fréttakarla. GMMP er umfangsmesta og langlífasta rannsókn á hlut karla og kvenna í fréttum og hefur verið gerð á fimm ára fresti síðan 1995. Ísland tók nú fullan þátt í annað skipti. Greindar voru fréttir í RÚV útvarpi og sjónvarpi, Stöð 2, Bylgjunni, Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og í netmiðlunum dv.is, eyjan/pressan.is, kjarninn.is, mbl.is, vísir.is og rúv.is.
Eftirbátar hinna Norðurlandanna
Í niðurstöðunum kom einnig fram að 31 prósent frétta í íslenskum miðlum var fluttur af eða skrifaður af konum. 69 prósent þeirra voru fluttar af eða skrifaðar af körlum. Fréttakonur flytja samkvæmt því hlutfallslega færri fréttir hér á landi en að jafnaði í þeim 114 löndum sem könnunin náði til en í heild eru samsvarandi hlutföll 37 prósent konur og 63 prósent karlar. Í Finnlandi voru 44 prósent fréttanna skrifaðar eða fluttar af fréttakonum, í Danmörku 32 prósent og í Noregi og Svíþjóð 35 prósent.
Í tilkynningu vegna birtingar á niðurstöðu rannsóknarinnar segir að fréttakonur á íslenskum miðlum hafi verið mun líklegri en fréttakarlar til að tala við eða fjalla um konur. „Í þriðjungi frétta (33 prósent) eftir konur var talað við eða fjallað um konur en í 8 prósent frétta eftir karla. GMMP rannsóknir hafa bent til þess að konur væru fremur umfjöllunarefni eða viðmælendur í fréttum um t.d. dægurmál, heilbrigðis- eða félagsmál, en síður í því sem gjarnan eru kallaðar „harðar fréttir“, eins og pólitík, efnahagsmál, og glæpir og afbrot. Ekki fundust skýrar vísbendingar um það í íslensku fréttunum. Konur voru t.d. viðmælendur í ríflega 30 prósent frétta um efnahagsmál og í rúmlega 20 prósent frétta um pólitík eða í meira mæli en ætla mætti út frá heildarfjölda þeirra í fréttum almennt. Ekki var heldur að sjá að fréttakonur hér á landi fjölluðu síður um „hörð“ mál en fréttakarlar. Þannig segja/skrifa fréttakonur 42 prósent fréttanna um pólitík þótt þær séu mun færri en karlarnir."
Niðurstöðurnar verða kynntar nánar á Jafnréttisþingi 2015, sem haldið verður miðvikudaginn 25. nóvember 2015 á Hilton Reykjavík Nordica