Álversstarfsmenn launalausir í allt að þrjá mánuði segi þeir upp í verkfalli

alver-1.jpg
Auglýsing

Starfs­maður álvers Rio Tinto Alcan í Straums­vík sem er í verk­falli getur ekki ráðið sig í vinnu hjá öðru fyr­ir­tæki innan Sam­taka atvinnu­lífs­ins meðan verk­fallið stendur yfir, nema hann segi upp störf­um, og þá er hann bund­inn við þriggja mán­aða upp­sagn­ar­frest. „Þetta þýðir að ­starfs­mað­ur­inn er launa­laus í þrjá mán­uði áður en hann getur ráðið sig til­ ­starfa ann­ars staðar (að því gefnu að verk­fallið standi svo lengi yfir­)“. Þetta kemur fram í ábend­ingu frá Jak­obína Jóns­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra ­starfs­manna­sviðs Rio Tinto Alcan, til starfs­manna sem send var í morg­un.

Starfs­menn álvers­ins í Straums­vík fara að óbreyttu í verk­fall 2. des­em­ber næst­kom­andi, eða eftir rúma viku. Ólafur Teitur Guðna­son, tals­mað­ur­ Rio Tinto Alcan á Íslandi, sagði í gær að ekki væri sjálf­gefið að álverið mynd­u opna aftur ef því yrði lokað vegna verk­falls starfs­manna þar. Gylfi Ingv­ars­son, tals­maður starfs­manna álvers­ins, sagði á hinn ­bóg­inn að verði það raunin sé fyr­ir­tækið að nota starfs­fólk sitt og gera það og verka­lýðs­fé­lög að blóra­böggli. 

Kjara­deila starfs­mann­anna í Straums­vík hef­ur ­staðið mjög lengi. Strandað hefur á því að Rio Tinto vill bjóða meira út í verk­töku. Næsti fundur í kjara­deil­unni er ­boð­aður á morg­un.

Auglýsing

Í morgun sendi Jak­obína Jóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri ­starfs­manna­sviðs Rio Tinto Alcan, ábend­ingu um vanga­veltur sem borið hafði á meðal starfs­manna, um hvort þeir geti unnið ann­ars staðar ef til verk­falls kæmi. Jak­obína segir að í sam­þykktum Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA) segi að eng­inn ­fé­lags­maður megi ráða til sín laun­þega sem sé í verk­falli hjá öðrum ­fé­lags­mönn­um. „Til þess að geta ráðið sig í vinnu hjá öðru ­fyr­ir­tæki innan SA þarf starfs­maður í verk­falli því fyrst að segja upp störf­um. Að­eins þannig getur hann bundið enda á aðild sína að verk­fall­in­u“.

Segi starfs­maður upp gild­i hefð­bund­inn þriggja mán­aða upp­sagn­ar­frest­ur. Engar und­an­þágur séu í kjara­samn­ingi starfs­manna álvers­ins sem heim­ili þeim að hætta störfum í verk­falli án þess að virða upp­sagn­ar­frest.

Nið­ur­staðan er því, sam­kvæmt Jak­obínu, að ­starfs­maður sem er í verk­falli „get­ur ekki ráðið sig í vinnu hjá öðru fyr­ir­tæki innan SA meðan verk­fallið stend­ur ­yf­ir, nema hann segi upp störf­um, og þá er hann bund­inn við þriggja mán­aða ­upp­sagn­ar­frest. Þetta þýðir að starfs­mað­ur­inn er launa­laus í þrjá mán­uði áður­ en hann getur ráðið sig til starfa ann­ars staðar (að því gefnu að verk­fall­ið standi svo lengi yfir­)“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None