Launahækkun ráðamanna „gjöreyðir sáttinni“

Trúnaðarmannaráð Rafiðnaðarsambands Íslands krefst þess að launahækkanir ráðamanna, ákvarðaðar af kjararáði, verði dregnar til baka.

img_3130_raw_1807130188_10016391586_o.jpg
Auglýsing

Trún­að­ar­manna­ráð Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands krefst þess að Kjara­ráð dragi til baka úrskurð­i sína um hækk­un ­launa helstu ráða­manna þjóð­ar­inn­ar, það er alþing­is­manna, ráð­herra og for­seta Íslands sem og þá úrskurði sem hækk­uðu laun afmark­aðra hópa umfram það sem almennt ger­ist á íslenskum vinnu­mark­að­i. 

For­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hefur þegar afþakkað hækk­un­ina, en þing­menn og ráð­herrar hafa ekki gert það.

Í til­kynn­ingu sem trún­að­ar­manna­ráðið sendi frá sér í dag, og vitnað er til á vef RÚV, segir að launa­hækkun ráða­manna „gjör­eyði“ sátt­inni sem unnið hefur verið að því að ná á vinnu­mark­aði. „Úr­skurðir kjara­ráðs eru til þess fallnir að gjör­eyða þeirri sátt í sam­fé­lag­inu sem reynt hefur verið að móta á und­an­förnum árum með miklum átök­um. Nauð­syn­legt er að árétta að öll ábyrgð á úrskurðum kjara­ráðs hvílir á Alþingi og alþing­is­mönnum sjálf­um.“

Auglýsing

Sam­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs verða laun for­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna verður 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi verða 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­arra ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi verða 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­­lega 1,5 millj­­­ónir en laun for­­­seta voru tæpar 2,5 millj­­­ón­­­ir.

Öll helstu sam­tök verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar, vinnu­veit­enda og opin­berar starfs­manna hafa mót­mælt launa­hækkun ráða­manna harð­lega, og sagt hana grafa undan mögu­leik­anum á því að ná sátt á vinnu­mark­aði, þegar kemur að samn­ingum um kaup og kjör. 

Í til­kynn­ingutil­kynn­ingu frá Sam­töku atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráði segir að Alþingi hafni alfarið nýlegum launa­hækk­unum Kjara­ráðs. „Sam­tök atvinn­u­lífs­ins og Við­­skipta­ráð Íslands skora á nýtt Alþingi að hafna nýlegum ákvörð­unum kjara­ráðs og leggja málið í sátta­­ferli. Með því er bæði átt við úrskurði um þing­far­­ar­­kaup og laun ráð­herra sem og nýlega úrskurði um ríf­­legar hækk­­­anir á laun­um emb­ætt­is­­manna. Að öðrum kosti er borin von að aðilar vinn­u­­mark­að­­ar­ins geti hald­ið á­fram veg­­ferð sinni um bætt vinn­u­brögð við kjara­­samn­inga­­gerð, ferli sem kennt hefur verið við Salek.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiInnlent
None