Rússnesk orrustuþota skotin niður í Sýrlandi

Tyrkir segja Rússa hafa brotið lofthelgi sína. Rússar vilja rannsaka áður en þeir fella dóma. NATO-ríki hefur aldrei fyrr skotið beint á Rússa.

Myndband sýnir þotuna hrapa til jarðar.
Myndband sýnir þotuna hrapa til jarðar.
Auglýsing

Tyrk­nesk yfir­völd segj­ast hafa grandað rúss­neskri orr­ustu­þotu með flug­skeytum eftir að hún flaug inn í tyrk­neska loft­helgi í morg­un. Á Twitter hafa birst mynd­bönd af þot­unni hrapa til jarðar og af því sem talið er vera flug­menn­irnir tveir í fall­hlíf­um. Er þetta í fyrsta sinn sem með­limur NATO á í beinum átökum við Rússa. Frá þessu er meðal ann­ars greint á The Guar­dian.

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands segir orr­ustu­þotu sína aldrei hafa farið inn í loft­helgi Tyrkja, það sýni fluggögn. Á meðan Vest­ur­lönd fljúga flug­vélum sínum frá Tyrk­landi til þess að hæfa skot­mörk í Sýr­landi, hafa Rússar flogið frá her­svæði sínu við sýr­lenskar strendur Mið­jarð­ar­hafs­ins. Ráðu­neytið segir þotu sína að öllum lík­indum hafa verið skotna niður með flug­skeyti frá jörðu. Enn sé verið að kanna ástand flug­mann­ana og hvernig þot­unni hafi veirð grand­að. Sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá stjorn­völdum í Tyrk­landi þá flaug þotan inn í loft­helgi lands­ins.

Auglýsing

Heim­ildir innan skrif­stofu for­seta Tyrk­lands, Recep Tayyip Erdogan, þá var rúss­neska þotan af SU-24 gerð.



Hér er talið að um flug­menn­ina sé að ræða og að þeir hafi stungið sér úr flug­vél­inni áður en hún féll til jarð­ar:



Þó Banda­ríkin hafi ekki átt þátt í þessu atviki þá er til­efni til að ryfja upp yfir­lýs­ingar bæði Rússa og Branda­ríkja­manna um að jafn­vel þó bæði löndin kasti sprengjum á hið svo­kall­aða Íslamska ríki í Sýr­landi og Írak, þá muni ríkin forð­ast að lenda í beinum átökum eða verða í vegi hvors ann­ars. Ekk­ert sam­starf eða sam­ráð hefur verið milli NATO-­ríkj­anna og Rúss­lands um loft­árás­irn­ar. Eftir hryðju­verka­árás­irnar í París fyrir rúmri viku hafa frétta­skýrendur hins vegar gert að því skóna að hugs­an­lega væri verið að und­ir­búa sam­starf.

Orrustuþota af SU-24.

Frek­ari fréttir verða færðar þegar þær ber­ast.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None