Isavia, sem á og rekur flugvelli landsins, spáir því að 28,4 prósent fleiri farþegar muni fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári en gera það árið 2015. Útlit er fyrir að heildarfarþegafjöldi verði 4,9 milljonir í ár, sem er um fjórðungsaukning frá árinu 2014. Isavia spáir því að þeir verði 6,25 milljónir á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri farþegaspá Keflavíkurflugvallar sem kynnt var í morgun. Heildarfarþegafjöldi telur til bæði skiptifarþega, þá erlenda ferðamenn sem sækja landið heim og þá Íslendinga sem fljúga frá Íslandi.
Til að takast á við þessa miklu aukningu hefur verið unnið að því að auka afkastagetu flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Í þeim aðgerðum felst m.a. að klára yfirstandandi stækkanir flugstöðvarinnar, auka afköst til þess að nýta þá fermetra sem fyrir eru betur, auka sjálfvirkni á öllum stigum ferðalagsins um flugstöðina og tryggja betri mönnun. Næsta sumar verður flugstöðvarbyggingin um 16 prósent stærri en hún var í byrjun þessa árs, eða um 65.000 fermetrar. Að auki verða opnuð þrjú ný flugvélastæði.
Isavia segir að fyrir liggi að flest flugfélög sem fljúgi til Íslands muni auka tíðni sína á árinu 2016 eða bæta við áfangastöðum. Auk þess muni nokkur ný flugfélög hefja flug hingað til lands á næsta ári. Alls munu 25 flugfélög fljúga til 80 áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli sumarið 2016.
Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað um tæp 30 prósent það sem af er þessu ári og búist er við að þeim fjölgi um 22,2 prósent á því næsta. Það þýðir að þeir verði 1.540 þúsund árið 2016, eða 75,7 prósent af öllum farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll. Skiptifarþegum mun fjölga hratt á næsta ári og er gert ráð fyrir því að þeir verði 35 prósent allra farþega á næsta ári. Isavia reiknar með því að íslenskum ferðamönnum fjölgi um tíu prósent á árinu 2016 og að Íslendingar verði þá 24,3 prósent af heildarfjöldanum.
Í tilkynningu frá Isavia segir að farþegaspáin sé unnin út frá gögnum flugfélaga um sætaframboð og áætluð er ákveðin sætanýting. Spáin er samtala komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega um flugvöllinn. Hún telur því erlenda og innlenda ferðamenn bæði við komu og brottför auk þeirra sem einungis stoppa á flugvellinum til þess að ferðast áfram til annars lands.