Segir ekki boðlegt að Helgi sitji í stjórnum fyrirtækja sem lífeyrissjóður Verzlunarmanna á í

helgi-magn--sson-newrender.jpg
Auglýsing

Ólafía B. Rafns­dótt­ir, for­maður VR, hefur beitt sér fyrir því að Helg­i ­Magn­ús­son, vara­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs Verzl­un­ar­manna, sitji ekki í stjórn fyr­ir­tækja ­sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á í við­skiptum við. Ólafía segir að það sé ekki boð­leg­t að vara­for­maður stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins „sitji í stjórn­um þeirra fyr­ir­tækja sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er að versla við. Alveg sama hvort að það sé í krafti eignar líf­eyr­is­sjóðs­ins eða í krafti ein­stakra eign­ar­hluta að­ila.“ Þetta kom fram í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 fyrr í dag.

Helgi Magn­ús­son, sem lengi var stjórn­ar­for­mað­ur­ Líf­eyr­is­sjóðs Verzl­un­ar­manna en er nú vara­for­maður stjórn­ar, er umsvifa­mik­ill fjár­festir. Hann situr í stjórn þriggja félaga sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á hlut í: N1, Marel og Sím­ans. Alls situr Helgi í stjórn fimmtán félaga, en hann á um­tals­verða eign­ar­hluti í bæði N1 og Mar­el. Líf­eyr­is­sjóður Verzl­un­ar­manna er ­stærsti eig­andi N1 með um 14 pró­sent eign­ar­hlut og á um níu pró­sent hlut í Mar­el. Þetta kom fram í skýrslu sem Talna­könnun vann nýverið að beiðni Sam­taka ­spari­fjár­eig­enda. Helgi er umsvifa­mesti stjórn­ar­maður lands­ins sam­kvæmt ­skýrsl­unni.

Ekki boð­legt

Eign Líf­eyr­is­sjóðs Verzl­un­ar­manna í N1 kom til tals í Viku­lok­unum fyrr í dag vegna skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um elds­neyt­is­mark­að­inn, sem sýndi að neyt­endur eru að greiða um fjóra millj­arða króna of mikið fyrir elds­neyti á ári vegna „veru­lega skertr­ar“ sam­keppni og og ­mik­illar álagn­ingar olíu­fé­lag­anna, meðal ann­ars N1.

Auglýsing

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.Helgi Selj­an, þátt­ar­stjórn­andi Viku­lokanna, spurði Ólaf­íu hvort það væri ekki sér­stakt að full­trúar líf­eyr­is­sjóðs­ins sitji í stjórn N1, í krafti líf­eyr­is­greiðslna fólks­ins í land­inu, á sama tíma og þeir væru hugs­an­lega að svína á neyt­end­um.

Ólafía benti á að VR skipi fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í Líf­eyr­is­sjóði Verzl­un­ar­manna. Hinir fjórir séu skip­aðir af atvinnu­rek­end­um. Stjórn­ar­menn í líf­eyr­is­sjóð­inum hefðu ekki heim­ild til þess að ganga inn í dag­legan rekst­ur ­fyr­ir­tækja.

Helgi benti þá á að nafni hans Helgi Magn­ús­son sæti í stjórn­ N1. Ólafía svar­aði: „Það er aldeilis rétt hjá þér og mjög ­gott þhjá þér að vekja athygli á þessu vegna þess að Helgi situr ekki þarna í krafti stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins heldur vegna þess að hann á sjálfur í N1. En það er mjög áhuga­verð skýrsla sem var birt í októ­ber, þar sem var verið að taka ­saman stjórn­ar­menn í félögum á mark­aði, og það er mjög athygl­is­vert að Helg­i ­Magn­ús­son trónir þar á toppnum í fjölda þeirra stjórna sem hann situr í.“

Hún sagð­ist síðan hafa sent erindi um að það væri ekki ­boð­legt að vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs Verzl­un­ar­manna „sitji í stjórn­um þeirra fyr­ir­tækja sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er að versla við. Alveg sama hvort að það sé í krafti eignar líf­eyr­is­sjóðs­ins eða í krafti ein­stakra eign­ar­hluta að­ila.“

 

Ólafía sagði að skýrsla Talna­könn­unar sýndi að „þetta er ekki eðli­legt að þetta sé gert með þessum hætti og ég mun beita mér fyr­ir­ því að breyta þessu.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None