Pétur Kr. Hafstein, fyrrum hæstaréttardómari, fyrrum forseti kirkjuþings og forsetaframbjóðandi í forsetakosningunum árið 1996, segir að krafa stjórnvalda um að auknu framlagi til þjóðkirkjunnar fylgi sú krafa um að kirkjan skuldbindi sig til að hefja þegar samningsviðræður um endurskoðun á öllum samskiptum ríkis og kirkju sé fjarstæðukennd. Pétur segir þessa kröfu vera „ekkert annað en ofbeldi gagnvart þjóðkirkjunni“ og að hún sé að hans dómi fullkomlega löglaus. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag.
Í greininni rekur Pétur hvernig þjóðkirkjan samþykki axlaði sinn skerf eftir hrunið vegna þess „ógvænlega vanda í ríkisfjármálum“ sem þá blasti við. Upphaflega hafi niðurskurður til kirkjunnar aðeins að hafa átt við árið 2010 en hann hafi síðan verið framlengur næstu fjögur ár.
Kirkjuþing 2015 hafi talið rétt að staðar yrði numið enda allar aðstæður í íslensku þjóðfélagi nú betri en þær voru árin eftir hrun. Því fór kirkjuþing fram á að ríkið efndi að fullu kirkjujarðarsamkomulagið sem gert var árið 1997.„Þá bregður svo við að meirihluti fjárlaganefndar Alþingis samþykkir 27. nóvember 2015 að setja skilyrði fyrir því að ríkið standi við gerða samninga. Í nefndaráliti er lagt til að framlag til þjóðkirkjunnar hækki um 370 milljónir króna og miðist hækkunin við „að framlag ríkissjóðs verði reiknað samkvæmt upphaflegu kirkjujarðasamkomulagi og þar með að allar aðhaldskröfur sem gerðar hafa verið til Þjóðkirkjunnar frá og með árinu 2009 verði afturkallaðar árið 2015.“ Síðan kemur sú fjarstæðukennda viðbót í nefndarálitinu að skilyrði þess að ríkið standi við gerða samninga séu þau „að kirkjan skuldbindi sig til þess að hefja þegar samningaviðræður um endurskoðun kirkjujarðasamkomulagsins sem feli í sér endurskoðun allra fjárhagslegra samskipta ríkis og kirkju (þ.m.t. hvað varðar sóknargjöld, jöfnunarsjóð sókna, framlög til kirkjumálasjóðs og Kristnisjóðs) með verulega einföldun þessara samskipta og hagræðingu að markmiði.“ Þessi krafa á hendur þjóðkirkjunni er að mínum dómi algjörlega löglaus.“
Ekkert annað en ofbeldi gagnvart þjóðkirkjunni
Í kirkjujarðasamkomulaginu frá 1997 kemur m.a. fram að það líti á eignaafhendingu og skuldbindingu sem í því felist sem fullnaðaruppgjör vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907. Þau værðmæti voru allar kirkjujarðir í landinu, sem þá voru ríflega 600 talsins. Í staðinn átti ríkið um ókomna tíð að greiða laun biskups Íslands og vígslubiskupa, 138 starfandi presta og prófasta þjóðkirkjunnar og 18 starfsmanna biskupsembættisins. Í samningum er kveðið á um að samningaaðilar geti, að liðnum 15 árum frá undirritun hans,
óskað eftir endurskoðun á fjölda þeirra sem þannig fá greidd laun úr ríkissjóði, engu öðru. Síðan hafi verið gerðir viðbótarsamningar haustið 1998 og 2006.
Pétur segir það vera grundvallaratriði samningaréttar og allrar réttarskipunar í landinu að samninga beri að virða. „Kirkjujarðasamkomulagið frá 1997 fól í sér fullnaðaruppgjör vegna þeirra verðmæta sem þjóðkirkjan lét ríkinu þá í té. Báðir samningsaðilar gætu vitaskuld ákveðið af fúsum og frjálsum vilja að endurskoða þann samning eins og raunin er um alla samninga. Við kirkjujarðasamkomulaginu verður hins vegar ekki hróflað einhliða á þeirri forsendu sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leyfir sér að setja fram fyrir því að ríkisvaldið standi við gerða samninga. Það er ekkert annað en ofbeldi gagnvart þjóðkirkjunni.“